Úrval - 01.10.1945, Qupperneq 4
2
ÚRVAL
Ef þessi sex ára tími er látinn
gilda fyrir Bandaríkin, eru með-
taldir rúmlega 18 mánuðir, þeg-
ar lítið var aðhafst til undirbún-
ings þeim háskatímum, sem
framundan voru, (nema í her-
skipasmíðum). Samt hygg ég,
að réttmætt sé að reikna stríðs-
tímann jafnlangan, þótt ekki
væri nema til að sýna, hve
Bandaríkin brugðu fljótt við,
og vegna þess, að allt það, sem
látið var ógert 1939—1940, varð
að gera síðar. Þetta sex ára
tímabil sleppir líka fjórum síð-
ustu stríðsmánuðunum í
Evrópu.
Þessi sex ár voru útgjöld
Bandaríkjanna til stríðsþarfa
235.800.000.000 dollarar og
Stóra-Bretlands 20.457.000.000
sterlingspund. Þessar tölur gefa
reyndar litlar upplýsingar. í
fyrsta lagi er önnur þeirra í
dollurum og hin í pundum.
Enginn getur sagt með vissu,
hve margir dollarar eru í pundi,
þar sem ekki er lengur til frjáls
markaður, sem verzlar með
þessa peninga. Með opinberu
gengi eru um það bil fjórir
dollarar í pundi, og mun bezt
að halda sér við það úr því að
ekki er hægt að finna annan
skiptigrundvöll. Með því móti
verður upphæð Bandaríkjanna
58.950.000.000 á móti 20.457,-
000.000 hjá Bretum.
Hér koma í ljós annars konar
erfiðleikar. Eins og allir vita, er
kaupmáttur peninga minni nú
en var fyrir stríð. Nálega allir
hlutir hafa stigið í verði, en
verðbólgan hefir orðið meiri í
Bretlandi en Bandaríkjunum.
Sterlingspund er nú minna virði.
í dollurum en það var áður en
stríðið skall á. Það er ekki.
öruggt að breyta einfaldlega
upphæð dollara í pund án þess
að lenda á villigötum. Til þess
að fá út sæmilega réttar tölur,
verður að hafa um hönd tor-
velda hagfræðilega útreikninga,
Upphæðirnar verður að reikna
um, ekki til að sýna hve mörg-
um dollurum eða pundum hafi í
raun rétti verið eytt, heldur hve
miklu mundi hafa verið eytt, ef
engar verðhækkanir hefðu orðið
og dollarar og pund haldið
sama kaupmætti og fyrir stríð,
Ef umreiknað er á þennan hátt,
verða útgjöld Bandaríkjanna
42.400.000.000 pund með sama
gildi og fyrir stríð og útgjöld
Breta 16.125.000.000 pund.
Ennþá sýna þessar tölur ekkx
sérlega mikið, því að stærð
þessara tveggja landa er mjög;