Úrval - 01.10.1945, Qupperneq 12
10
tJRVAL
ekki áhyggjumar trufla þig,
hvaða mynd, sem þeim þóknast
að taka á sig. Segðu heldur eitt-
hvað á þessa leið við undirvit-
imd þína: „Já, þetta er áríðandi,
en það verður samt að bíða, þar
til röðin kemur að því, en þá
skal ég líka gefa mig óskiptan
að því.“ Þú getur auðveldlega
sefað undirvitund þína, ef þú
leggur rækt við það — bezta
ráðið er að snúa sér að því verk-
efni, sem verið er að gera skil,
ef enn meiri áhuga og einbeitni
en áður. Slík er afstaða hins
einbeitta, — eitt í einu! Annað
þurfum við ekki að læra, en án
þess náum við ekki neinum
árangri, hvort sem um vinnu
eða skemmtanir er að ræða.
Arnold Bennett skilgreindi
einbeitingu sem getu til að fyr-
irskipa heilanum ákveðið verk-
efni og tryggja hlýðni hans.
Sú geta ávinnst aðeins með
þjálfun, og þjálfun krefst þolin-
mæði, sem kunnugt er. Breyt-
ingin frá sveimhygli til skýrrar,
hnitmiðaðrar einbeitingar næst
með staðfastri viðleitni. Ef þú
heldur staðfastlega áfram að
beina athygli þinni að fyrirfram
ákveðnu viðfangsefni, vísar
truflununum á bug og setur
verkefni þitt í sæti þeirra — ef
þú aðeins leggur þig eftir því,
mun það viðfangsefni, er þú
valdir, að lokum leggja hug
þinn alveg undir sig, og hrekja
allar hugsanir um annað þaðan
burt. Og loks mun að því koma,
að þú getir eftir vild einbeitt
þér að hverju því efni er þér
sýnist.
Þú þarft að þjálfa einbeit-
ningargáfu þína, en ekki sjálfar
gáfurnar — þær þurfa engrar
þjálfunar með. Þú hefir einbeit-
ingargáfuna, hún er þér ósköp-
uð — hættu ekki að reyna að
laða hana fram, fyrr en hún.
svarar kalli þínu. Þegar þú hefir
tamið þér að beita öllum hæfi-
leikum þínum, óskiptum og að
viðfangsefni líðandi stundar,
muntu hljóta tvenns konar laun
Þú munt sannreyna, að þú get-
ur náð góðum árangri á miklu
fleiri sviðum en þig grunar nú,
og vinnugleði þín, við hvaða
starf sem er, mun stórum auk-*
ast.
Prestur: „Hvenær heyrist innri rödd mannsins?"
Stelpa: „Þegar gaular í görnunum.“