Úrval - 01.10.1945, Qupperneq 39
WINSTON CHURCHILL
37
Enginn, sem var á Bretlandi
hina hörðu reynsludaga loft-
árásanna, hina löngu mánuði,
þegar innrásaróttinn grúfði yfir
eynni, getur nokkru sinni
gleymt hinni takmarkalausu
trú og hollustu, sem íbúar
hinna eyddu borga létu í ljós,
hvenær sem Churchill sást á
ferð: „Gamli, góði, Winnie.“ —
„Þú bregzt okkur ekki, Winnie.“
IV.
En hvað er þá að segja um
heimsveldishyggju hans? ,,Ég
hef ekki gerzt forsætisráðherra
hans hátignar konungsins til
þess að hafa yfirumsjón með
uppgjöri brezka heimsveldis-
ins,“ sagði hann í borgarstjóra-
veizlu í London, og allur heim-
urinn hrökk við, rétt eins og
Clive og Hastings hefðu risið
úr gröfum sínum. En þótt ein-
kennilegt sé, virtist heimsveld-
inu ekki verða bylt við. Vissu-
lega trúir Churchill á heims-
veldið, og þessi trú hans hefir
réttlætzt dásamlega í þessu
stríði! En hann trúir á heims-
veldi grundvallað á sameiginleg-
um hagsmunum og gagnkvæmu
trausti, heimsveldi, sem er
tengt saman af frjálsum vilja,
en ekki með valdi. Þegar að er
gáð var það Churchill, sem
kom Transvaal-stjórnarskránni
gegnum þingið og lagði þar með
grundvöllinn að hinu núverandi
sambandsríki Suður-Afríku. Og
næstum 20 árum seinna var það
Churchill, sem fann lausn á
írska vandamálinu, ef á annað
borð er hægt að tala um
nokkra lausn á því máli. Það
var Churchill, sem virti hlut-
leysi Irlands út í æsar, þegar
kafbátahættan var sem mest.
Hve margir Bandaríkjamenn
ætli hefðu tekið jafn mikið til-
lit til hlutleysis Kúbu, ef nazist-
arnir hefðu verið einráðir úti
fyrir norðurströnd Suður-
Ameríku ?
Það er enginn vafi á því, að
Churchill er heimsveldissinni.
Hann trúir á sameiningu ensku-
mælandi þjóða, og er jafnvel
fús til að „blandast“ Banda-
ríkjamönnum, „báðum aðilum
og heiminum yfirleitt til hags-
bóta.“ Hann lítur svo á, að
brezka heimsveldið sé mestu og
virkustu alþjóðasamtök í sögu
heimsins. Það eru einu alþjóða-
samtökin, sem hafa staðizt all-
ar raunir. Það eru einu alþjóða-
samtökin, sem eru starfhæf.
Þeir sem óska þess að vígja hin
nýju alþjóðasamtök með því að