Úrval - 01.10.1945, Síða 40
38
■Orval
gera út af við hin einu sigur-
sælu samtök, sem til eru, hefðu
gott af að hlusta á ummæli þau,
sem Churchill hafði um þetta
bandalag árið 1943:
„Fyrir 3 árum gætu jafnt vin-
ir sem fjendur, allir, sem
höfðu ekki næga trú, vel hafa
álitið, að við værum á hröðum
vegi til glötunar. Við stóðum
einir á móti sigrihrósandi veldi
Hitlers með gráðuga ítalina í
skottinu og höfðum svo lítilf jör-
legar stoðir okkur til styrktar,
að mann hryllir jafnvel ennþá
við, að rifja það upp. Þá var
sannarlega tími fyrir heims-
veldið að sundrast, fyrir sér-
hvert hinna dreifðu sambands-
ríkja þess að leita öryggis hjá
þeim aðilum stríðsins, sem virt-
ust vera að sigra, fyrir þá sem
töldu sig kúgaða, að varpa af
sér okinu. Þá var rétti tíminn.
En hvað skeði?
Það hefir sannazt, að bönd
þau, sem tengja okkur saman,
eru sterkari en stál, þótt þau
séu rúmgóð og teygjanleg. Þá
sannaðist, að þau voru andleg
bönd, sem gátu staðizt ísmeygi-
legustu uppgjafatilboð og
grimmilegustu tortímingarhót-
anir. Á þeirri dimmu, ægilegu,
en einnig dýrlegu stundu, feng-
um við þær kveðjur frá öllum
samveldislöndum hans hátignar,
að við myndum allir farast
saman eða standast raunina 1
sameiningu. Ég veit, að mér
fyrirgefst þótt ég fagni yfir
hinum trausta grunni veldis
okkar og lýsi yfir trú minni á
velfarnaði okkar.“
Umhyggja hans fyrir óskerð-
leik heimsveldisins hefir vafa-
laust haft íhaldssöm, sumir
mundu segja þröngsýn, áhrif
á afstöðu hans til heimsstjórn-
mála. Hann, sem barðist á Ind-
landi og í Afríku, hefir aldrei
vanmetið gildi siglingaleið-
arinnar til Austur-Asíu fyrir
Bretland, og það hefir ráð-
ið skoðunum hans í Miðjarðar-
hafsmálum, á Suez-skurðinum.
á Egiptalandi og Indlandi.
Þegar hættan af Japan blasti við
augum, tók hann einbeitta og
jafnvel þrjóskufulla afstöðu til
indverska sjálfstæðismálsins.
Mörgum mönnum, sem voru
nógu langt frá vettvangi og
þægilega ófróðir um það, hvað
málið er flókið, virtist stefna
hans í Indlandsmálum vera
mörkuð yfirgangshyggju. Samt
var það á stjórnarárum hans,
að Sir Stafford Cripps flutti
indverska þjóðþingsflokknum