Úrval - 01.10.1945, Qupperneq 63
RÓMANTlSKIR GLÆPIR 1 FRAKKLANDI
61
barna. Þó verður hún að vera
undir læknishendi ævilangt,
vegna móðursýki.
Þá koma tveir menn til sög-
unnar: enskur lögf ræðingur,
Abinger að nafni og Mathieu,
þýzkur doktor. Faðirinn berzt
fyrir málstað sonar síns eins
kappsamlega og honum er
unnt, almenningsálitið hikar og
riðar, því að fólk er farið að
fá dálitla nasasjón af því,
hvernig móðursýki lýsir sér.
Málið er tekið upp að nýju, og
eftir margra ára fangelsisvist
er vesalings Roneiére látinn
laus. Hermannsheiður hans
endurreistur, honum er veitt
valdastaða í nýlendunum og
sæmdur heiðursmerkjum.
Hinir öldruðu feður draga
sig í hlé úr opinberu lífi og
deyja saddir lífdaga.
En Maria de Morell, sem
nýtur verndar auðs, tignar, og
áhrifamikilla vina, sleppur
alveg. Enginn dirfist að gefa
í skyn, að ef þessi hættulega
kona er ábyrg gerða sinna, þá
ætti að dæma hana fyrir mein-
særi, og ef hún er ósjálfráð
athafna sinna, þá ætti hún að
vera undir lækniseftirliti.
Hún hefir gert allt sem hún
gat, til þess að koma saklaus-
um rnanni undir fallöxina, og
sé nokkuð það, sem nefna má
„djöfullegt“ í samband við
þetta mál, þá er það hin kald-
rif jaða grimmd hennar, sem svo
oft er fylgifiskur sjúks kyn-
ferðislífs.
CVO^-OG
I>að gerir ekki svo mikið til.
Herforingi kom eitt sinn ásamt þjóni sínum til gistihúss í
Kentucky. Eigandinn kom að máli við þjóninn og sagði:
„Við höfum því miður engin flugnanet yfir rúmunum og er
ég hræddur um að herra yðar verði ekki svefnsamt. Getið þér
ekki vakað og varið hann fyrir árásum flugnanna ?“
„Hafðu engar áhyggjur út af því, karl minn,“ sagði þjónninn.
„Fyrri hluta nætur verður hann svo fullur að hann veitir flug-
unum ekki eftirtekt, en síðari hluta næturinnar verða þær of
fullar til þess að ónáða hann.“