Úrval - 01.10.1945, Page 115
ÆVINTÝRABRÚÐURIN
113
dauður árlangt, kom fram á
tjaldinu. Villimennirnir voru
ákaflega hræddir. „Töfrar“
Martins höfðu vakið upp dauð-
an mann.
Eftir þetta urðum við vör
við greinilega breytingu í fram-
komu villimannanna gagnvart
okkur. Við vorum ekki lengur
smeyk við undirferli og svik.
Nú nálguðust þeir okkur með
hógværð og sýndu okkur virð-
ingarmerki. Þó var sýnilegt,
að þeir vonuðust eftir ein-
hverju. Þegar við spurðumst
fyrir um, hvað það væri, kom
í Ijós, að þeir vildu fá tóbak
sem borgun fyrir að hafa horft
á kvikmynd okkar.
Nagapate bauð okkur að
heimsækja sig í þorp sitt, og
þáðum við boðið,enhöfðummeð
okkur þrjá hvíta menn og 26
fylgdarmenn, alla vopnaða. Við
dvöldum í viku í „ríki“ Naga-
pates, og notaði Martin tímann
til þess að kvikmynda lifnaðar-
hætti þorpsbúa. Síðan eyddum
við nokkrum mánuðum í að
sigla urnhverfis Malekula, til
þess að rannska hana og aðrar
smáeyjar þar í nánd. Við rák-
um okkur á marga villimanna-
siði og venjur; þar á meðal
sáum við „höfðamusterið“, þar
sem körfum, fullum af þurrk-
uðum mannshausum, var stafl-
að upp eins og svörtum ávöxt-
um, en hauskúpukeðjur héngu
niður úr loftsbitunum. Við sá-
urn stúlku, sem hljóðaði af
sársauka, því að glóandi heitur
steinn hafði verið settur í aðra
hnésbót hennar og fóturinn síð-
an bundinn upp að mjöðm.
Eiginmaður hennar hafði keypt
hana fyrir 20 grísi, og hún hafoi
strokið að heiman hvað eftir
annað! Við komum og þar að,
sem villimenn sátu umhverfis
eld og steiktu mannakjöt.
Átta mánaða dvöl meðal skít-
ugra mannæta, varð þess vald-
andi, að ég fékk ákafa heimþrá.
Ég fór að þrá venjulega hluti og
mitt eigið fólk-ogheittvatnog
sápu. Og Martin þráði þetta líka.
En þegar við höfðum verið
heima í Bandaríkjunum um
skeið, og önnur kvikmynd okk-
ar frá Malekula, Mannætur í
Su'ðurhöfum, hafði fengið góð-
ar viðtökur, héldum við til
Boraeo, til þess að kvikmynda
villimenn þar. Við tókum um
50 þúsund fet af kvikmyndum í
þeim Ieiðangri, og Martin ákvað
að sýna myndina sem sanna
lýsingu af Borneo — villimönn-
um, dýralífi og öðru.