Úrval - 01.10.1945, Qupperneq 122
120
URVAL
inn okkar, var fróðari um fíla
en nokkur annar svertingi í
Afríku. Aðferð hans virtist í
fyrstu fremur fávísleg, því að
hann dróst oftast áfram rnuldr-
andi og eins og hálf sofandi.
En leikar fóru svo, að við
treystum honum í blindni. Ég
hefi séð hann „finna þefinn af“
dýrunum líkt og blóðhundur.
Hann gat séð á bældu grasinu,
hve langt var síðan fílsfótur
hafði stigið þar til jarðar. Það
virðist svo sem bælt gras sé
um þrjár stundir að réttasigvið
aftur, og hin mismunandi horn,
sem stráin mynda, eru því ná-
kvæm tákn urn tímann.
Á beygðri trjágrein sá þessi
kynlegi öldungur að dýrahjörð
hafði farið framhjá, í hvaða átt
hun hafði haldið og hve langt
var síðan — honum skeikaði
ekki meira en um fimm mínút-
ur. Ef hann fann ekki slóð eftir
fíla, yppti hann öxlum og taut-
aði eitt af þrennu: „Shauri ako“
(Verk hvítamannsins).„Shauri
’mungu." (Verk guðs). „Shauri
’mona.“ (Verk regnsins).
Og hvenær, sem Boculy kom
fram með einhverja af þessum
ástæðum, og lét í Ijós að skyn-
samlegt væri að hætta flakkinu
þann daginn — þá hættum við.
Við kynntumst svo vel lifnað-
arháttum og eðli fílanna árin,
sem við dvöldum við Paradísar-
vatn, að við fórum að skilja
lotninguna, sem Boeuly bar
fyrir þeim. Þessi gæðadýr,
virðuleg, vanaföst og skynsöm,
lifa lífinu út af fyrir sig og láta
aðrar skepnur í friði. Fílar
berjast dálítið innbyrðis, en
halda vel hópinn og hugsa
ágætlega um afkvæmi sín.
Við Martin höfðum mikið
yndi af öllu ungviði, en þó sér-
staklega af fílsungunum. Eitt
sinn kom það fyrir, að lítill
fílsungi var á leið til vatnsbóls,
ásamt öðrum fílum. Það var
ákaflega heitt í veðri, svo að
unginn dróst aftur úr, hrein og
öskraði. Loks brast móðurina
þolinmæðina, hún þreif í eyrað
á honum, hélt honum niðri með
fætinum og gusaði vatninu yfir
hann. Unginn staulaðist á fæt-
ur smá hrínandi, en leið auð-
sjáanlega betur. Hann þreif
með rananum í rófu móður sinn-
ar alveg eins og barn tekur í
hönd móður sinnar, og stóð kyrr
meðan hún drakk.
Dag nokkurn rákumst við á
fjórar fílamæður í skóginum.
Þær voru að kenna ungunum
sínum að öskra með rananum.