Skinfaxi - 01.04.2016, Page 3
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 3
„Okkur systurnar hefur dreymt um að fara
á Ólympíuleika og vera körfuberar síðan
ég var 11–12 ára. Afi okkar fór á Ólympíu-
leikana með nokkrum félögum sínum í
Þór til London árið 1948 og var þar í þrjár
vikur. Áhrifin voru slík að hann þreyttist
seint á því að segja okkur frá því,“ segir
Íris Eva en hún er nú 28 ára sjúkraþjálfari
og lýðheilsufræðingur. Íris á ekki langt að
sækja íþróttaáhugann. Hún æfði frjálsar
með Ungmennafélagi Akureyrar (UFA) og
fimleika með Fimleikafélagi Akureyrar.
Beðið eftir Ríó
Íris var á bakpokaferðalagi með vinkonu
sinni í Kína þegar Ólympíuleikarnir fóru
þar fram árið 2012. Þegar þær áðu á kvöld-
in fylgdust þær með leikunum og ákváðu
að fara á þá í Brasilíu árið 2016. Tilviljun réð
því að Íris rak augun í viðtal við mann sem
hafði verið sjálfboðaliði á Ólympíuleikun-
um. Hún fór að kanna málið og saman
sóttu vinkonurnar um að verða sjálfboða-
liðar í Brasilíu.
Íris segir langan tíma hafa liðið frá því
þær sóttu um að komast í hópinn í desem-
ber árið 2014. Umsóknir og ferlið hafi verið
tiltölulega einfalt þar fyrir utan. „Ég fékk
ekki svar fyrr en í júní árið 2016 um hvað
ég ætti að gera og á hvaða velli ég yrði,“
segir Íris. Mikil ásókn er í að verða sjálfboða-
liði á Ólympíuleikunum en þær vinkonur-
nar voru á meðal 80 þúsund umsækjenda.
Gekk með Bolt
Þær vinkonurnar komust báðar að sem
sjálfboðaliðar. En þegar á hólminn var kom-
ið hætti vinkona hennar við. Þær fóru engu
að síður saman út.
Íris þurfti sjálf að borga flugið út og finna
sér þak yfir höfuðið á meðan Ólympíuleik-
unum stóð. „Það eina sem sjálfboðaliðar
fengu voru frímiði í ferðir til og frá dvalar-
stað í Ríó, búningar og uppihald á íþrótta-
vellinum. “
Íris vann í 100 manna teymi á frjáls-
íþróttavellinum í Ríó í sjö daga frá kl. 16 til
miðnættis. Hún sá meðal annars um að leið-
beina keppendum á leikvanginum eftir
hlaup og þess háttar. „Þetta voru mjög ein-
föld störf. Innlendir starfsmenn Ólympíuleik-
anna töluðu flestir ekki ensku og því fengu
þeir sem kunnu bæði portúgölsku og
ensku mikilvægari störf. Það er mjög gott
að kunna tungumálið þar sem Ólympíu-
leikarnir fara fram,“ segir Íris sem kann
ekkert í portúgölsku og fékk því einföld
verkefni, sem hún var ánægð með. „Ég gat
þess vegna horft á Ólympíuleikana og verið
nálægt íþróttamönnunum eins og mig
hafði dreymt um. Ég var líka körfuberi. En
starfið hefur breyst frá því ég var 12 ára og
ekki eins merkilegt og ég hélt,“ segir hún.
Einn þeirra sem Íris komst í návígi við
var spretthlauparinn Usain Bolt frá Jamaíka.
„Hann gekk þarna oft við hliðina á mér.
Það var rosalegt þegar hann kom á völlinn,“
segir hún og bætir við að upplifunin hafi
verið ótrúleg. „Það var mögnuð tilfinning
að upplifa stemninguna á frjálsíþrótta-
vellinum þegar heimsmet féllu.“
Í Brasilíu hitti Íris fólk frá ýmsum lönd-
um sem hafði unnið lengi sem sjálfboða-
liðar á Ólympíuleikum. Sumir unnu þar
allan tímann en aðrir skemur eins og hún.
Ætlar Íris á Ólympíuleikana í Tókýó 2020?
„Ég veit það ekki, er ekki búin að ákveða
hvort ég sæki um sem sjálfboðaliði eða
fer sem áhorfandi. Þetta er nefnilega tölu-
verð vinna.“
· Afi Írisar lék
knattspyrnu með Þór á
Akureyri á árum áður. Liðinu var boðið út á
Ólympíuleikana í London árið 1948 í þrjár vikur.
Ferðin hafði mikil áhrif á hann og leiddist
honum seint að segja barnabörnum sínum frá ferðinni.
· Íris heldur mikið upp á þessa mynd enda fetar hún þar bókstaflega í fótspor
Usain Bolt og fleiri íþróttastjarna sem hún fylgdist með og aðstoðaði á frjálsíþróttavellinum.
Umsóknarferli Írisar
Desember 2014: Sótti um á vef-
síðu að vera sjálfboðaliði. Gat valið
um að vera á frjálsíþróttavelli eða í
fimleikum. Tók ýmis einföld próf,
s.s. í tungumálum.
Mars 2015: Fékk að vita að hún
kæmist áfram.
Júní 2015: Viðtal á Skype um
sjálfboðaliðastarfið.
Nóvember 2015: Samþykkt sem
sjálfboðaliði.
Febrúar 2016: Komst að sem sjálf-
boðaliði á frjálsíþróttavellinum.
Júní 2016: Ítarlegar upplýsingar
um staðsetningu og vinnuna á
Ólympíuleikunum.
Sjálfboðaliðinn sem hitti stjörnurnar
Æskudraumur Írisar Evu Hauksdóttur varð
að veruleika þegar hún fór á Ólympíuleik-
ana í Ríó í Brasilíu í sumar. Hún var sjálfboða-
liði á leikunum og aðstoðaði þar hetjur í frjálsíþrótta-
heiminum. Íris hefur ekki tekið ákvörðun um það
hvort hún ætli til Japan árið 2020 en tvö ár tekur að
sækja um að verða sjálfboðaliði á Ólympíuleikum.