Skinfaxi - 01.04.2016, Page 4
4 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Ungmennafélag Íslands. Fyrir hvað
stendur það? Í hugum margra af yngri
kynslóðinni er félagið samtök gamalla
karla og kerlinga sem halda að þau séu
kúl. Þetta er gamaldags. En samt er töff
að vera í íþróttafélagi eða í einhverjum
klúbbum. Er þetta raunveruleikinn? Ég
vona ekki.
Í huga mínum er ungmennafélag
félagsskapur þar sem fólk á öllum aldri,
með ólíkar þarfir á ýmsum sviðum, getur
unnið saman að áhugamálum sínum,
hvort sem það eru félagsmál, íþróttir eða
eitthvað annað sem snertir lýðheilsu og
heilbrigðan lífsstíl.
Ef litið er til baka þá voru ungmenna-
félögin stofnuð af ungu og þróttmiklu
fólki sem vildi koma hugðarefnum sínum
á framfæri. Þau voru vettvangur til að hitt-
ast, skiptast á skoðunum, hafa félagsskap
hvert af öðru og hvetja til hreyfingar. Þessi
félög voru með dansæfingar, settu upp
leikverk, stunduðu íþróttir og margt fleira
gagnlegt. Það má alveg segja að þetta
fólk hafi verið langt á undan sinni samtíð
– allavega áratugum áður en kyrr seta tók
að aukast verulega sem varð til þess að
við urðum að setja verkefni á borð við
Hreyfiviku UMFÍ af stað.
En eitthvað er til í öllu umtali. Þeir sem
starfa innan ungmennafélaganna eldast
eins og aðrir. Yngra fólk þarf að taka við
keflinu. Spurn ingin vaknar auðvitað um
það, hvernig það eigi að fara fram. Erum
við sem eldri erum tilbúin að láta yngri
kynslóðina taka við? Ég held það, allavega
vona ég að ekkert okkar haldi of fast í sitt.
Núna er víða verið að stofna ungmenna-
ráð, bæði innan ungmennafélaga og
einnig hjá sveitarfélögum, því að rödd
unga fólksins á að heyrast. En það er ekki
nóg að stofna ungmennaráð. Við þurfum
að virða unga fólkið okkar og skoðanir
þeirra og vera tilbúin til að hlusta og taka
mark á athugasemdum þeirra. Þetta er
stór hópur kraftmikils fólks með sterkar
UMFÍ veitir ungu fólki
tækifæri til að blómstra
skoðanir á öllu á milli himins og jarðar.
Ungt fólk hefur oft aðra sýn á hlutina held -
ur en við sem eldri erum – og býr yfir þekk -
ingu til að nýta sér tæknina til upplýs inga -
öflunar. Möguleikarnir og þær leiðir sem
ungt fólk getur nýtt sér eru nánast án tak-
markana. Þau eru óhrædd við að skoða
hvað aðrir gera og nýta sér hugmyndir
annarra í stað þess að standa þvermóðsku-
lega föst á sínu. Ungt fólk veit að það þarf
ekki alltaf að finna upp hjólið, enda er
löngu búið að því.
Við sem vinnum með börnum og ungl-
ingum þurfum að vanda okkur. Nýtum
okkur ákafa ungmenna en drepum ekki
niður áhuga þeirra, vinnum saman með
hugmyndir þeirra innanborðs og reynslu
okkar. Þegar reynslan, hugmyndaauðgin
og krafturinn koma saman þá getur nið-
urstaðan ekki orðið neitt annað en góð
og farsæl til framtíðar.
Ef okkur tekst vel til með börnin og
unglingana trúi ég ekki öðru en að upp
vaxi sterk kynslóð ungmenna sem tekur
við keflinu í ungmennafélagshreyfing-
unni. Við getum verið stolt af því.
Leyfum unga fólkinu að blómstra – og
þá blómstrum við öll.
Ragnheiður Högnadóttir,
stjórnarmaður UMFÍ
Leiðari Skinfaxa:
Næsta Unglingalandsmót UMFÍ verður
haldið á Egilsstöðum um verslunarmanna-
helgina 2017. Mótið var síðast haldið á
Egilsstöðum árið 2011 en verður nú haldið
á ný, og sem fyrr í umsjá Ungmenna- og
íþróttasambands Austurlands (UÍA) í sam-
starfi við sveitarfélagið Fljótsdalshérað.
Unglingalandsmót UMFÍ var fyrst haldið
á Dalvík árið 1992 og því verður mótið á
Unglingalandsmót UMFÍ 2017
Egilsstöðum 25 ára afmælismót. Við bætist
að þetta verður tuttugasta árlega mótið, en
þau voru haldin á tveggja ára fresti í byrjun.
Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus
íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin er
árlega um verslunarmannahelgina. Mótið
er öllum opið á aldrinum 11–18 ára. Allir
geta tekið þátt, óháð hvort viðkomandi sé
í einhverju íþróttafélagi eða ekki.
Sjáumst í Hveragerði
á Jónsmessunni 2017
Næsta Landsmót UMFÍ 50+
verður í Hveragerði dagana
23.–25. júní 2017.
Landsmótsnefndin er þegar komin af stað við undir-
búning mótsins. Gísli Páll Pálsson, framkvæmdastjóri
Dvalarheimilisins Áss í Hveragerði, er formaður lands-
mótsnefndar. Gísli segir mótið verða skemmtilegt eins
og alltaf og boðið verði upp á fjölda líflegra og krefjandi
keppnisgreina. Hann nefnir m.a. að umhverfið sé fallegt
í Hveragerði og margar skemmtilegar gönguleiðir í boði.
Mörg gistiheimili og hótel eru í bænum auk tjaldstæða
fyrir þá sem þau kjósa.