Skinfaxi - 01.04.2016, Side 8
8 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Fimleikadeild Ung-
mennafélagsins
Sindra á Höfn í
Hornafirði hóf í
haust að bjóða upp
á fimleika fyrir full-
orðna eftir vinnu.
Fjöldi iðkenda er um tólf til fjórtán einstakl-
ingar á aldrinum 18–45 ára og hefur hluti
þeirra ekki æft fimleika áður.
Yfirþjálfarinn Einar Smári Þorsteinsson
segir hugmyndina byggja á starfi frænda
síns, sem stýrði fimleikum fullorðinna fyrir
um áratug auk þess sem horft var til þess
að boðið var upp á fimleika einn vetur fyrir
fjórum árum.
„Ég og fleiri íþróttaþjálfarar vildum
hreyfa okkur meira og mér datt í hug að
bjóða fleirum að gera það líka. Þess vegna
fórum við að bjóða upp á fimleika fyrir
fullorðna í Höfn með svipuðu sniði og er í
boði víðar,“ segir Einar.
Æfingar voru fyrstu árin á föstudags-
kvöldum. Það þótti óheppilegt í vikulokin,
tími sem margir vilja eyða með fjölskyld-
unni. Erfitt var að koma fimleikunum fyrir á
öðrum tíma. Einar og bróðir hans, sem var
yfirþjálfari í fimleikum í fyrra, höfðu auga-
stað á Mánagarði, félagsheimili Nesja-
manna. Húsið er farið að eldast, enda vígt
árið 1952. Í húsinu er íþróttasalur sem ekki
er almennt í notkun nema helst undir þorra-
blót og stöku leiksýningar. Fimleikasalur-
inn er ákjósanlegur og fóru þeir bræður að
Félögin bjóða upp á fleiri
möguleika til að hreyfa sig
„Við byrjum á upphitun og förum síðan í
teygjur. Eftir það taka við stökk. Þeir taka
þátt sem telja sig ráða við það. Við end-
um svo alltaf á þreki og léttum teygjum.“
vinna í því að fá að kenna fimleika í húsinu.
Þar fengu þeir inni með æfingar í byrjun árs
2016. Æfingar voru síðar færðar yfir á
þriðjudagskvöld og við það sáu sér fleiri
fært að mæta á æfingarnar.
Það er alltaf gaman að
heyra af einhverju
skemmtilegu og heil-
brigðu sem maður
vissi ekki af og prófa
það. Á sambandsþingi
UMFÍ, sem fram fór í
Vík í Mýrdal í október 2015, fengu allir full-
trúar kynningu á starfsemi Ungmenna-
og tómstundabúða UMFÍ að Laugum í
Sælingsdal. Tveir fulltrúar frá Ungmenna-
félagi Kjalnesinga (UMFK) heilluðust mjög
af kynningunni og starfi búðanna. Þegar
heim var komið var blásið til fundar í
stjórn UMFK og sögðu þeir þar frá starfinu
í ungmennabúðunum.
Ásdís Hallgrímsdóttir, formaður UMFK,
fylgdi málinu eftir. Hún er sérkennslustjóri
leikskólans á Kjalarnesi en hann er sam-
einaður Klébergsskóla sem er grunnskóli
fyrir nemendur í 1.–10. bekk. Ásdís kann-
aði hvort áhugi væri hjá skólastjórnend-
um fyrir að senda nemendur á unglinga-
stigi í búðirnar og fékk hún góðar undir-
tektir.
Þar sem UMFK hafði safnað fjármagni
í sjóð var ákveðið að styrkja alla nemendur
unglingastigsins til ferðarinnar. Þeir hafa
nú farið einu sinni vestur í Dali. Mikil
ánægja var með ferðina og hefur verið
ákveðið að UMFK styrki elsta stig grunn-
skólans (8.–10. bekk) þriðja hvert ár til
þess að fara í Ungmenna- og tómstunda-
búðirnar að Laugum. Venjan er að nemend-
Gaman þegar nemendur
hitta jafningja á Laugum
Allir nemendur á þessum aldri fá
tækifæri til að fara einu sinni á Laugar.
Viltu vita meira um Ungmenna-
búðir UMFÍ á Laugum í Sælingsdal?
Meiri upplýsingar eru á
www.ungmennabudir.is
Ásdís Hallgrímsdóttir, formaður UMFK.
ur 9. bekkja í grunnskólum landsins komi
alla jafna til Lauga. Í Klébergsskóla er sam-
kennsla 8.–10. bekkjar. Nemendurnir eru
um 40 og fá allir á þessum aldri því tæki-
færi til að fara einu sinni á Laugar.
Ásdís segir ferðina hafa verið ákaflega
skemmtilega og var nemendum boðið
upp á fjölbreytt verkefni sem stuðluðu að
frumkvæði þeirra. Gaman hafi líka verið
fyrir nemendur í litlum skóla á borð við
Klébergsskóla að hitta jafningja úr öðrum
skólum.
Hvaða möguleika býður félagið þitt
upp á?“