Skinfaxi - 01.04.2016, Síða 10
10 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Þátttaka barna og ungmenna í
skipulögðu íþrótta- og tóm-
stundastarfi er gott veganesti
út í lífið. Niðurstöður árlegrar
könnunar rannsóknarmið-
stöðvarinnar Rannsóknir og greining
benda einmitt til þess að börn og ung-
menni, sem stunda íþróttir og reglulega
hreyfingu, horfi til jafningja sinna og minni
líkur séu á að þau leiðist út í tóbaks-
neyslu en þau börn og ungmenni sem eru
ekki í skipulögðu íþrótta- og tómstunda-
starfi. Niðurstöður miðstöðvarinnar benda
jafnframt til að beint orsakasamband sé
á milli líkamlegs atgervis, hreyfingar og
námsframmistöðu barna og unglinga/
ungmenna.
Sveitarfélög hjálpa til
Á Íslandi eru 74 sveitarfélög. Langflest
þeirra veita styrki, hvatagreiðslur eða nota
aðrar útfærslur til að niðurgreiða fyrir skipu-
lagt íþrótta- og æskulýðsstarf barna og
ungmenna. Sveitarfélög landsins eru hins
vegar ekki bundin af lögum til að veita
stuðning sem þennan. Útfærsla á stuðn-
ingi sveitarfélaga er jafn misjöfn og sveit-
arfélögin eru mörg. Engu skiptir hvort
sveitarfélögin eru á höfuðborgarsvæðinu
eða í dreifðari byggðum landsins. Eftir-
tektarvert er að í þéttbýli er beinn fjárstyrk-
ur algengara stuðningsform en í dreifbýli.
Þá skiptir fjöldi íbúa í sveitarfélögum líka
máli en í sumum þeirra eru afar fá börn,
eins og í Árneshreppi á Ströndum.
Hvað er þinn
frístunda-
styrkur hár?
Misháir styrkir í mislangan tíma
Frístundastyrkir eru víðast hvar í kringum 30.000 krónur á ári
en getur verið lægri. Eins er hann á sumum stöðum nokkuð
hár, upp í 50.000 krónur og meira eins og í Ásahreppi á Suður-
landi, Breiðdalshreppi á Austurlandi og víðar. Talið hefur verið
til hagsbóta að bjóða upp á hærri styrki en lægri. Hækkun varð
sem dæmi ofan á í Reykjavík en borgarstjórn ákvað á fundi
sínum snemma í desember 2016 að hækka hann úr 35.000 kr.
í 50.000 kr.
En upphæðin segir ekki allt. Útfærslan á frístundastyrkjum
eða hvatagreiðslum er misjöfn eftir sveitarfélögum og misjafnt
hvað börnin eru gömul sem rétt eiga á styrkjum eða niður-
greiðslu vegna þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Börnin
geta verið allt frá fæðingu og upp í 16 til 18 ára.
Það getur tekið í buddu foreldra að greiða fyrir þátttöku
barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta- og æskulýðs-
starfi. Flest sveitarfélög landsins létta undir með foreldr-
um og styðja við skipulagt starf með ýmsum hætti.
Ýmist er veittur beinn fjárstyrkur til einstaklinga/barna
og ungmenna í formi frístundastyrks eða hvatagreiðslu
eða þá að þátttökugjöld eru niðurgreidd með beinum
stuðningi við íþróttafélög.