Skinfaxi - 01.04.2016, Blaðsíða 11
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 11
Lifandi skjal
Markmiðið með þessari samantekt
er ekki að draga ályktanir eða kom-
ast að einni tiltekinni niðurstöðu.
Það er fremur að ná upplýsingunum
saman með það fyrir augum að sjá
samanburðinn á milli sveitarfélaga
en meta kosti og galla mismunandi
útfærslu á stuðningi sveitarfélaga við
skipulagt íþrótta- og tómstundastarf
barna og ungmenna.
Erfitt er að henda reiður á umfangi
frístundastyrkja og niðurgreiðslu á
skipulögðu íþrótta- og tómstunda-
starfi barna og unglinga. Við hjá
UMFÍ ákváðum því að búa til lifandi
skjal sem aðgengilegt er á vefsíðu
UMFÍ, www.umfi.is. Þar eru jafnframt
ítarlegri upplýsingar um stuðninginn
fyrir einstök sveitarfélög.
Sveitarfélag Styrkur 2016 Aldur
Höfuðborgarsvæðið
Garðabær 30.000 5–18 ára
Hafnarfjarðarkaupstaður 36.000 6–18 ára
Kjósarhreppur
Kópavogsbær 37.000 5–18 ára
Mosfellsbær 27.500 5–18 ára
Reykjavíkurborg 35.000 6–18 ára
Seltjarnarnesbær 50.000 6–18 ára
Suðurnes
Grindavíkurbær *
Reykjanesbær 15.000 6–16 ára
Sandgerðisbær 30.000 4–18 ára
Sveitarfélagið Garður 30.000 4–18 ára
Sveitarfélagið Vogar 10.500 0–16 ára
Vesturland
Akraneskaupstaður 25.000 6–17 ára
Borgarbyggð 20.000
Dalabyggð
Eyja- og Miklaholtshr.
Grundarfjarðarbær 0
Helgafellssveit
Hvalfjarðarsveit 40.000 0–18 ára
Skorradalshreppur 0
Snæfellsbær *
Stykkishólmsbær 0
Vestfirðir
Árneshreppur 0
Bolungarvíkurkaupstaður 20.000 0–20 ára
Ísafjarðarbær *
Kaldrananeshreppur 30.000
Reykhólahreppur 15.000 5–17 ára
Súðavíkurhreppur
Strandabyggð 0
Tálknafjarðarhreppur 0
Vesturbyggð *
Norðurland vestra
Akrahreppur
Blönduósbær
Húnaþing vestra 17.000 6–18 ára
Húnavatnshreppur
Skagabyggð
Sveitarfél. Skagafjörður 8.000 6–18 ára
Sveitarfél. Skagaströnd 15.000 6–16 ára.
Stuðningur sveitarfélaga
við skipulagt íþrótta- og
æskulýðsstarf
Sveitarfélag Styrkur 2016 Aldur
Norðurland eystra
Akureyrarkaupstaður 16.000 5–17 ára
Dalvíkurbyggð 21.600 1 6–18 ára
Eyjafjarðarsveit 30.000 2 6–17 ára
Fjallabyggð 9.000 4–18 ára
Grýtubakkahreppur
Hörgársveit 12.000
Langanesbyggð
Norðurþing 0 5–17 ára
Skútustaðahreppur
Svalbarðshreppur
Svalbarðsstrandarhreppur 17.000 3
Tjörneshreppur 0
Þingeyjarsveit
Austurland
Borgarfjarðarhreppur
Breiðdalshreppur 50.000 0–16 ára
Djúpavogshreppur 0
Fjarðabyggð 0
Fljótsdalshérað 0
Fljótsdalshreppur 6.000
Seyðisfjarðarkaupstaður 0
Vopnafjarðarhreppur 0
Suðurland
Ásahreppur 50.000 0–18 ára
Bláskógabyggð *
Flóahreppur 20.000
Grímsnes- og Grafningshr. 30.000 6–18 ára
Hrunamannahreppur 20.000 6–16 ára
Hveragerðisbær 15.000 0–18 ára
Mýrdalshreppur 0
Rangárþing eystra 0
Rangárþing ytra 0
Sveitarfél. Hornafjörður 40.000 6–18 ára
Skaftárhreppur
Skeiða- og Gnúpverjahr. 55.000 0–18 ára
Sveitarfélagið Árborg 15.000 5–17 ára
Sveitarfélagið Ölfus 0
Vestmannaeyjabær 0
1) 1.800 pr. mán. (allt að 3 greinar).
2) Styrkir 20.000 og niðurgreiðsla 10.000.
3) Fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri.
* Skýringar
Ísafjarðarbær: Þessu er svipað háttað í Ísafjarðarbæ og í Grinda-
vík. Ekki eru greiddir frístundastyrkir heldur er samningur við hér-
aðssambandið og íþróttir og tómstundir mikið niðurgreiddar. Börn
í 1.–4. bekk geta valið allar greinar sem í boði eru en greiða ein-
ungis kr. 8.000 fyrir önnina. Í eldri bekkjum er gjaldið hærra en
samt mun lægra en gengur og gerist vegna styrks sveitarfélags-
ins. Þá geta börn í 1.–4. bekk tekið þátt í fríu tómstundastarfi
klukkutíma á dag á skólatíma. Í ár er boðið upp á jóga, dans, úti-
vist, frjálsan leik og frístundafjör svo eitthvað sé nefnt. Þetta skipu-
lag kemur mjög vel út fyrir alla aðila. (Framhald á bls. 12)
Svona var
könnunin gerð
UMFÍ sendi fyrirspurn í tölvupósti
á tengiliði allra sveitarfélaga lands-
ins. Í fyrsta lagi var spurt hvort boð-
ið væri upp á frístundakort eða nið-
urgreiðslu á íþróttastarfi barna og
ungmenna í viðkomandi sveitar-
félagi. Í öðru lagi var spurt, ef um
styrk var að ræða, hvað hann væri
hár á önn eða ári. Svör bárust í tölvu-
pósti ýmist frá bæjarstjóra, sveitar-
stjóra, oddvita eða tómstundafull-
trúa sveitarfélagsins.
Af þeim 74 sveitarfélögum sem
fyrirspurnin var send til bárust svör
frá 58 sveitarfélögum. Ef beðið var
lengi eftir svörum var ítrekun send.
Svörin voru misítarleg. Hringt var
eftir nokkrum svörum og viðtöl tekin
við þá sem tjá sig hér í umfjölluninni.
Dæmi um svör við
spurningum UMFÍ:
Árneshreppur á Stöndum
„Við erum ekki með frístundastyrki
fyrir börn í hreppnum, börnin eru
mjög fá. En við styrkjum ýmis verk-
efni sem þeim standa til boða, s.s.
danskennslu, keppnisferðir og skóla-
selsferðir. Þetta er ekki með reglu-
bundnum hætti þar sem börnin
eru á misjöfnum aldri frá ári til árs.
Nú hafa orðið miklar breytingar
í skólastarfinu þar sem skipti um
áhöfn nú fyrir skömmu og því er
ekki með öllu ljóst hvernig málum
verður háttað framvegis.“