Skinfaxi - 01.04.2016, Síða 12
12 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
* Skýringar (frh.)
Grindavík: Fyrirkomulagið í Grindavík er með nokkuð öðrum hætti. Ekki er
greiddur frístundastyrkur með tilheyrandi umsýslu heldur gerður beinn samn-
ingur við UMFG og félög sem bjóða upp á frístundastarf. Í raun er þetta því
beinn styrkur til foreldra. Þetta þýðir að börn á grunnskólaaldri geta t.d. æft
eins margar íþróttir innan UMFG og þau vilja fyrir eitt gjald. Sem dæmi rukkar
UMFG eitt æfingagjald, 22.500 kr. á ári, fyrir hvert barn. UMFG sér um umsýslu
í gegnum Nora. Innan UMFG er svo formúla sem reiknar út styrkinn frá
bænum til deildanna.
Bláskógabyggð: Greiddir fastir vísitölutryggðir styrkir til íþróttafélaga og
björgunarsveita núna í ár, þ.e. 2016.
Vesturbyggð
Vesturbyggð er ekki með beina frístundastyrki en styrkir íþróttafélögin og
starf þeirra bæði með beinum styrkjum og einnig með niðurgreiðslu á leigu
á íþróttamannvirkjum. Kostnaður við þátttöku barna og ungmenna á nám-
skeiðum hjá íþróttafélögum á vorönn nam lægst 8.500 kr. fyrir eina grein og
23.680 kr. fyrir þrjár greinar. Íþróttaskóli er starfræktur fyrir börn 6–9 ára og
kostar hann 1.750 kr. á mánuði.
Snæfellsbær: Snæfellsbær niðurgreiðir 100% alla tíma sem ungmennafélög-
in nota í barna- og unglingastarf, bæði í íþróttahúsi og sundlaug. Reiknaður
styrkur til þeirra nemur 11,5 milljónum króna. Að auki er beinn styrkur til
ungmennafélaganna upp á 3,2 milljónir króna og launastyrkur vegna fram-
kvæmdastjóra íþróttastarfs barna og unglinga upp á 1,1 milljón kr.
Einar Haraldsson, formaður og fram-
kvæmdastjóri Keflavíkur, íþrótta- og
ungmennafélags, segir frístunda-
styrki koma bæði börnum og foreldrum
til góða. Að hans mati myndi rafræn skrán-
ing hvata- og frístundastyrkja einfalda
utanumhaldið.
Reykjanesbær greiðir árlega hverju
barni, sem lögheimili á í bæjarfélaginu og
er í grunnskóla, 15.000 krónur til niður-
greiðslu á viðurkenndu íþrótta-, tómstunda-
og listgreinastarfi. Skilyrði þess að hægt sé
að nýta hvatagreiðslurnar er að um skipu-
lagt starf sé að ræða, sem er stundað undir
leiðsögn þjálfara og kennara/leiðbeinanda
og nái yfir eina önn eða að lágmarki átta
vikur. Hafi viðkomandi ekki nýtt sér hvata-
greiðslur að hluta eða að fullu falla eftir-
stöðvar niður um áramót.
Einar segir að hvatagreiðslurnar hafi
verið frekar lágar fyrstu árin. Þær hafi verið
10.000 kr. um skeið en hafa hækkað. Hvata-
greiðslur eru á þessu ári eru 15.000 kr. Hann
segist telja að þær eigi að hækka í 21.000
kr. 2017. Það er jákvætt skref, að hans mati
þó svo að þær mættu vera hærri.
Umsýsla greiðslna og frístundastyrkja
er mjög mismunandi milli sveitarfélaga. Í
sumum tilvikum eru ávísanir sendar foreldr-
um í pósti eða styrkirnir greiddir eftir á og
haldið utan um greiðslurnar á bæjarskrif-
stofunum með einföldum hætti, svo sem
í töflureikni á borð við Excel. Í Reykjanesbæ
senda íþróttafélögin skýrslur um þátttöku
barna í íþróttum á bæjarskrifstofuna svo
fólk geti gengið frá hvatagreiðslum. Að
mati Einars myndi það einfalda alla umsýslu
verulega að hafa eina gátt á borð við vef-
skráningar- og greiðslukerfið Nóra, sem
mörg íþróttafélög nýta sér.
Til viðbótar við hvatagreiðslur styrkir
Reykjanesbær Íþróttabandalag Reykjanes-
bæjar um 18 milljónir króna á ári í formi
þjálfarastyrks sem bandalagið útdeilir
eftir ákveðinni reiknireglu. Til þess að eiga
tilkall í þennan styrk þurfa félögin að vera
innan Íþróttabandalags Reykjanesbæjar
og vera fyrirmyndarfélag/deild innan ÍSÍ.
Einar telur nauðsynlegt að styrkja skipu-
legt íþrótta- eða tómstundastarf barna og
ungmenna auk þess að styrkja foreldra
með frístundastyrk eða hvatagreiðslum.
„Um leið og íþróttaiðkun og tómstundir
kosta iðkendur ekkert þá verður starfið
ómarkvissara. Þjálfarar vita ekki hve mörg
börn mæta á æfingar og skipulagið verður
upp og ofan og reiðileysi verður ofan á.
Hvatagreiðslur koma í veg fyrir þetta. Háar
greiðslur eða styrkir hvetja foreldra barna
og ungmenna til að nýta sér þær og þjálf-
arar geta boðið upp á markvissari æfingar
en ella,“ segir Einar Haraldsson.
Háar greiðslur
eða styrkir
hvetja foreldra
barna og ung-
menna til að
nýta sér þær
Einar Haraldsson,
formaður og
framkvæmda-
stjóri Keflavíkur,
íþrótta- og ung-
mennafélags.
REYKJANESBÆR