Skinfaxi - 01.04.2016, Qupperneq 15
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 15
Frístundakort eru ekki í boði í Ísafjarð-
arbæ. Margrét Halldórsdóttir, sviðs-
stjóri skóla- og tómstundasviðs Ísa -
fjarðarbæjar, segir peningana nýtast betur
með því að niðurgreiða íþrótta- og tóm-
stundastarf fyrir börn.
„Við teljum að peningar, sem lagðir eru í
íþrótta- og tómstundastarf barna og ung-
menna, nýtist betur með þeim hætti sem
við bjóðum upp á en með frístundastyrkj-
um til foreldra. Börnin geta valið hvað þau
vilja stunda,“ segir Margrét.
Ísafjörður býður foreldrum barna og
ungmenna ekki upp á frístundastyrk. Þess
í stað niðurgreiðir bærinn íþrótta- og tóm-
stundastarf barna. Ísafjarðarbær og Hér-
aðssamband Vestfirðinga gerðu sín á milli
samstarfssamning árið 2008 um íþrótta-
starf barna í bænum. Samningurinn hefur
tekið breytingum við endurnýjun og í dag
leggur sveitarfélagið til 15,6 milljónir króna
til frístundaskóla og rekstrarstyrki til
íþróttafélaga auk annarra fjármuna.
„Ef nemendafjöldi í 1.–4. bekk er skoð-
aður með hliðsjón af þeirri upphæð sem
fer í frístundaskóla greiðir Ísafjarðarbær
45–50 þúsund krónur fyrir hvert barn. Á
sama hátt gera rekstrarstyrkir og niður-
greiðslur íbúða fyrir þjálfara íþróttafélaga
félögunum kleift að halda æfingagjöldum
lágum fyrir eldri nemendur. Núna greiða
foreldrar barna í 1.–4. bekk 8.000 kr. á önn,
sama hversu margar íþróttagreinar barnið
stundar,“ segir Margrét.
Jákvætt að geta valið
Nú stendur yfir sjötta starfsár Íþróttaskóla
HSV. Í vetur er skólinn í samstarfi við Frí-
stund fjórða árið í röð. Frístund er sam-
starfsverkefni HSV, Grunnskólans á Ísafirði,
heilsdagsskólans Dægradvalar og tónlistar-
skóla.
Skipulagið er með þeim hætti að á
hverjum degi er gert hlé á skóladeginum
klukkan 11 fyrir nemendur til að sinna
íþróttum og tómstundum í eina klukku-
stund. Sumir velja íþróttir eða tónlist en
aðrir kjósa að fara út að leika. Þetta er
gert til að brjóta upp dag nemenda og
flétta íþrótta- og tómstundastarfi inn í
skóladaginn.
„Þetta er jákvætt því allir taka þátt í ein-
hverju íþrótta- og tómstundastarfi. Svo-
leiðis var það ekki áður. Foreldrar greiða
fyrir íþróttaiðkun barna og tónlistarnám
eins og áður. En það eru líka margar tóm-
stundir í boði sem sveitarfélagið greiðir
fyrir að fullu því börnin geta valið útivist,
dans, frístundafjör, yoga, rólegheitastund,
bókasafn og frjálsan leik þar sem hægt
er að gera ýmislegt. Við erum ánægð og
stolt af þessu verkefni,“ segir Margrét.
Telja hag-
kvæmara að
niðurgreiða
íþrótta- og
tómstunda-
iðkunina
Margrét Hall-
dórsdóttir, sviðs-
stjóri skóla- og
tómstundasviðs
Ísafjarðarbæjar.
Frístundastyrkir tíðkast ekki í Vopna-
firði. Sveitarfélagið leggur rúmar
4,2 milljónir króna á þessu ári til
íþrótta- og æskulýðsstarfs, að stórum
hluta til Ungmennafélagsins Einherja.
Hlutaðeigandi félög nota styrki sína
bæði í þágu ungmenna og fullorð-
inna. Hjá Ungmennafélaginu Einherja,
Hestamannafélaginu Glófaxa og Björg-
unarsveitinni Vopna er rekið umtalsvert
ungmennastarf. Er starfið hjá Einherja
að sjálfsögðu umfangsmeira en hinna,
stundar góður hluti nemenda Vopna-
fjarðarskóla æfingar hjá félaginu sumar
sem vetur. Einherji býður jafnframt
upp á æfingar í fótbolta og blaki. Er til
þess tekið hversu starfið er blómlegt
en Einherji heldur úti meistaraflokki í
karla- og kvennaflokki, sem er skipað-
ur heimafólki að langmestu leyti.
Um nokkurt árabil hefur verið í gildi
samningur Vopnafjarðarhrepps og
útgerðarfyrirtækisins HB Granda um
rekstur íþróttahúss Vopnafjarðarhrepps.
Með samningnum er tryggt að allir fái
frítt aðgengi að líkamsrækt íþróttahúss-
ins og hefur það eðlilega mælst ákaf-
lega vel fyrir. Nemendur 8.–10. bekkjar
Vopnafjarðarskóla mega stunda þar
æfingar undir eftirliti og þetta er fyrir-
taksgrunnur fyrir fullorðinsárin. Sveitar-
félagið rekur jafnframt félagsmiðstöð-
ina Drekann og er hún opin öllum nem-
endum grunnskólans að kostnaðar-
lausu. Þar er starfsmaður í 30% starfs-
hlutfalli.
Í gegnum tíðina hefur Vopnafjarðar-
hreppur lagt umtalsvert fé til menningar-
mála og staðið að margs konar ung-
mennastarfi, s.s. listasmiðjum, sem
lokið hefur með sýningu þátttakenda.
Hefur starfið lengstum verið krökkun-
um að kostnaðarlausu.
Mikið æskulýðs- og
ungmennastarf í
Vopnafjarðarhreppi
ÍSAFJARÐARBÆR
VOPNAFJARÐARHREPPUR