Skinfaxi - 01.04.2016, Blaðsíða 16
16 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Agnes Helga Sigurðardóttir
kannaði hvernig stuðningi
sveitarfélaga væri háttað
vegna íþrótta- og tómstunda-
þátttöku barna og unglinga
þegar hún gerði BA-verkefni sitt í félags-
ráðgjöf við Háskóla Íslands árið 2013. Nið-
urstöður hennar eru þær að stuðningur-
inn er mjög misjafn eftir sveitarfélögum,
ef hann er þá til staðar. Tækifæri barna til
æfinga er að sama skapi ójöfn.
Eins og fram kemur í könnun UMFÍ get-
ur stuðningur sveitarfélaga birst með mis-
munandi hætti. Hann getur verið í formi
beins fjárstyrks til foreldra eða foráða-
manna barna og ungmenna í formi inn-
eignar eða frístundastyrks, fjárframlags til
íþrótta- og ungmennafélaga, sem sjá þá
um alla íþrótta- og tómstundaþjónustu
sveitarfélagsins en líka í formi húsnæðis-
styrkja. Misháir frístundastyrkir tíðkast á
höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggðinni
er stuðningurinn í formi frístundastyrkja,
inneignar og með beinum fjárframlögum
til íþróttafélaga.
69 sveitarfélög
með stuðning
Þegar Agnes gerði rannsókn sína studdu
aðeins fimm sveitarfélög börn og ungl-
inga ekki á nokkurn hátt. Af þeim 69 sem
studdu íþrótta- og tómstundaiðkun ung-
menna á einhvern hátt gerðu 27 sveitar-
félög það með beinum fjárstyrkjum. Inni
í þeim fjölda voru ekki þau sveitarfélög
sem buðu upp á sund án endurgjalds.
Agnes sagði niðurstöðurnar sýna að
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og
þau stærri líka beini stuðningi sínum frekar
til einstaklinga en sveitarfélög á lands-
byggðinni styðji íþrótta- og tómstunda-
iðkun frekar almennt.
Framboð íþrótta og tómstunda er mis-
jafnt eftir landshlutum og virðist fara nokk-
uð eftir búsetu. Sveitarfélögin eru ekki lög-
bundin til að taka þátt í niðurgreiðslu á
þátttöku barna og unglinga í íþróttum og
tómstundum og er verðlagningin með
ýmsu móti.
Agnes segir niðurstöðurnar hafa komið
mjög á óvart. Í upphafi rannsóknar hafi
hún talið að sveitarfélög væru lögbundin
til að veita stuðninginn, eins ef eitt barn
fengi hann þá hlytu öll börn að njóta þess
sama. Annað kom á daginn.
Komin út á land
„Mér finnst mikilvægt að börn, hvar sem
þau búa, hafi sambærilega möguleika á
því að stunda íþróttir. Það er ekki raunin.
Þótt sveitarfélög úti á landi bjóði ekki öll
upp á frístundastyrki heldur beinan fjár-
stuðning við íþróttafélög í sveitarfélaginu
þá er framboðið takmarkað, stundum
aðeins hópíþróttir og áherslan jafnvel á
eina grein umfram aðra,“ segir hún.
Agnes var búsett í Reykjavík þegar hún
vann lokaverkefni sitt árið 2013. Eftir út-
skrift fluttist hún vestur í Stykkishólm og
er hún þar íþrótta- og tómstundafulltrúi
bæjarins og í forsvari fyrir 149 grunnskóla-
börn.
Fjölbreytni er kostur
Agnes bendir á að mikilvægt sé að börn
finni sig í íþrótta- og/eða tómstundastarfi
þar sem slíkt sé mikilvæg forvörn.
Eins og flestir vita er körfubolti í háveg-
um hafður í Stykkishólmi og hafa körfu-
boltaliðin skarað fram úr á landsvísu. Körfu-
bolti er þó ekki fyrir alla. Æfingar í körfu-
bolta standa öllum aldursflokkum til boða
oft í viku og á móti er boðið upp á fótbolta
og frjálsar íþróttir en alls ekki eins oft. Þá er
Börnin
fá misjöfn
tækifæri
Agnes Helga Sigurðardóttir
Íþrótta- og tómstundaþátttaka barna og unglinga: