Skinfaxi - 01.04.2016, Síða 19
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 19
H já Evrópu unga fólksins (EUF) er
hægt að sækja um fjölda nám -
skeiða yfir árið. Snemma í sumar
sá ég eitt slíkt auglýst og ákvað
að sækja um. Ég var heppin því um haust -
ið fékk ég svar um að umsókn mín hafði
verið samþykkt. Námskeiðið sem ég sótti
um var TOOL FAIR XI og fór fram dagana
7.–12. nóvember á eyjunni Möltu í
Miðjarðarhafi.
Í stuttu máli snerist námskeiðið um að
kynna ýmis verkfæri eða tól sem einstakl-
ingar eða félagasamtök sem starfa með
börnum og ungmennum geta notað í
tengslum við óformlegt nám. Á nám-
skeiðinu var sérstök áhersla á börn sem
hafa orðið út undan í minnihlutahópum,
börn flóttafólks, innflytjenda og hælisleit-
enda, þ.e. hvernig er hægt að auðvelda
þessum hópum að aðlagast nýju sam-
félagi. Alls tóku 126 þátttakendur frá 36
löndum þátt í námskeiðinu, að mestu
sjálfboðaliðar sem sinna ýmsum verkefn-
um í ólíkum félagasamtökum. Slagorð
námskeiðsins var #readyfortheroad.
Verkfærakistan
Dagskráin var mjög þétt og stóð frá kl. 9 á
morgnana og fram á kvöld. Alls voru um
sextíu mismunandi verkfæri eða tól (Enska
orðið Tool eða verkfæri/tól var yfirskrift
námskeiðsins) kynnt en hverjum þátt tak-
anda gafst tækifæri á að velja um fimm
mál stofur og fá þannig góða kynningu á
ákveðnu verkfæri. Jafnframt fóru fram fjórir
fyrirlestrar til þess að kveikja áhuga og
dýpka skilning þátttakenda á viðfangsefni
og markmiðum námskeiðsins. Til viðbótar
fór fram svokallaður markaður þar sem öll -
um þátttakendum gafst tækifæri til að
kynna sín eigin verkfæri fyrir öðrum þátt-
takendum.
Samskipti með tónlist
Þær málstofur sem ég valdi voru ákaflega
mismunandi. Í einni þeirra var þátttakend-
um kynnt hvernig hægt er að eiga sam-
skipti við annað fólk án orða ýmist með
því að nota tónlist eða leik. Í annarri var
sýnt hvernig borðspil nýtist til að kveikja
áhuga fólks á sögu og auka þekkingu
þátttakenda. Í þeirri þriðju var svo farið
yfir hvernig hægt er að nýta brúður til
þess að auka skilning barna á ákveðnum
málefn um og styrkja bæði börn og ung-
menni til þess að opna sig og tjá sig.
Í fjórðu mál stofunni var kynnt hvernig
hægt er að útbúa rými/herbergi með
ákveðinni sögu sem þátttakendur eiga
síðan að reyna að sleppa út úr með því
að leysa ýmsar ólíkar þrautir og verkefni.
Í fimmtu málstofunni voru kynntir leikir
og æfingar fyrir hópa þar sem notast þarf
við mörg tungumál. Í matarhléum og
skoðunarferðum var ekki slegið slöku
við. Þar spjölluðu þátttakendur saman
um heima og geima, um störfin í heima-
landinu, aðstæður og tækifæri.
Innflytjendur í
skipulagt íþróttastarf
UMFÍ vinnur statt og stöðugt að því að
gera hlutina vel og stíga það aukaskref
sem þarf til að gera gott starf betra. Til-
gangur umsóknar minnar um námskeið-
ið á Möltu var liður í undirbúningi í þeim
áformum UMFÍ að auka þátttöku inn-
flytjenda og barna þeirra í skipulögðu
íþróttastarfi. Íþróttir eru ákjósanleg leið.
Reglur í boltan um eru einfaldar og leikur-
inn skemmtileg ur og því eiga bæði börn
og fullorðnir auðvelt með að kynnst
hvert öðru á jafningjagrundvelli. Þátttak-
an og gleðin sem þátt taka í íþróttum
með öðrum felur í sér dregur svo úr hætt-
unni á félagslegri einangrun. Verkefnið er
komið nokkuð á veg og er stefnt að því
að kynna það betur í byrjun nýs árs.
Ég hvet alla þá sem starfa með börn-
um og ungmennum til þess að kynna sér
þau fjölmörgu námskeið sem auglýst eru
á heimasíðu EUF (www.euf.is). EUF styrk-
ir 90% af ferðakostnaði þátttakenda frá
heimili til heimilis. Styrkurinn nýtist þeim
sem vilja stíga út fyrir þægindarammann
og ferðast til annarra landa, kynnast nýju
fólki, auka þekkingu sína og víðsýni og
þroskast.
Eftir námskeiðið á ég heimboð til
margra landa sem ég get ekki beðið
með að nýta mér til þess að auka þekk-
ingu og vinskap enn frekar.
Evrópa unga fólksins
opnar dyr
Evrópa unga fólksins (EUF) er rekin af UMFÍ
í samstarfi við Mennta- og menningarmála-
ráðuneytið og framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins. EUF veitir styrki úr Erasmus+
sem er mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlun
ESB. Þar eru ýmsir styrkir í boði sem geta
gagnast í starfi með ungu fólki. Verkefnin sem
EUF styrkir eru m.a. ungmennaskipti, EVS
sjálfboðaliðaverkefni, þjálfun aðila í æsku-
lýðsstarfi, yfirfærsla þekkingar, nýsköpun
í æskulýðsstarfi, frumkvæði ungs fólks og
fundir ungs fólks og ráðamanna.
Ítarlegri upplýsingar á: www.euf.is.
Hver stóð fyrir ráðstefnunni?
Ráðstefnan Tool Fair var ellefta slíka ráðstefnan
sem fer fram á vegum SALTO-YOUTH, stuðn-
ingsskrifstofa æskulýðshluta Erasmus+.
SALTO-YOUTH býður upp á möguleika á þjálfun
og samstarf með það fyrir augum að auka þekk-
ingu og mat á óformlegu námi. Markmiðið með
SALTO-námskeiðum er að undirbúa og hvetja
þátttakendur til að miðla upplýsingum áfram, en
fá auk þess tækifæri til að vinna áfram með við-
fangsefnin sem SALTO-námskeiðin fjalla um.
Þetta veitir þátttakendunum tækifæri til að þróa
hugmyndir sínar og verkefni innan áætlunar-
innar.
Ítarlegri upplýsingar á: www.salto-youth.net