Skinfaxi - 01.04.2016, Page 22
22 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
„Ég hef aldrei hitt barn eða ungmenni sem
hefur ekki skoðanir. En ungt fólk er ekki
vant því að vera spurt og því ekki alltaf
með svör á reiðum höndum,“ segir Aðal-
björn Jóhannsson, formaður Ungmenna-
ráðs UMFÍ. Hann er ánægður með umræðu-
partý fyrir fólk á aldrinum 18 til 30 ára sem
stefnt er á að halda reglulega næstu tvö
árin. Áformað var að halda fyrsta umræðu-
partýið í nóvember 2016. Því var frestað
fram í febrúar 2017.
Ástæðan fyrir því að slegið verður upp
ungmennapartýi er sú að margir félags-
menn innan hreyfingarinnar eru börn og
ungt fólk. Rödd þeirra og skoðanir heyrast
sjaldan og vill UMFÍ breyta því. Til veislu eru
líka boðnir stjórnendur íþrótta- og ung-
mennafélaga til að eiga samtal við yngri
ungmennafélaga.
Aðalbjörn segir umræðupartý UMFÍ til
fyrirmyndar enda sé það vettvangur fyrir
ungmenni til að þjálfast í því að vera spurð.
„Við þurfum ekki að hafa sömu skoðanir
heldur finna leið til að koma þeim á fram-
færi. Við finnum stuðning hjá UMFÍ og sá
stuðningur og hvatning sem við fáum frá
UMFÍ er svolítið einstakur. Það er fullt af
samtökum og sveitarfélögum sem eru að
setja á stofn ungmennaráð. En markmið
sumra þeirra er óljóst. Hjá UMFÍ finnum
við að ungmenni hafa tilgang og eru þess
vegna viljug til að taka þátt í starfi ung-
mennaráðs UMFÍ. Það síðasta sem við vilj-
um er að þátttaka í ungmennaráði UMFÍ
verði leiðinleg,“ segir hann.
Frábært á Ungt fólk
og lýðræði
Seta og vinna í ungmennaráði UMFÍ er sjálf-
boðaliðastarf. En hvernig er það, er ekki
talað um að erfitt sé að fá sjálfboðaliða til
starfa nú til dags?
Aðalbjörn telur ástæðuna þá að sumum
félagasamtökum hafi gengið treglega að
fá sjálfboðaliða til starfa og að þau hafi
orðið stór og stofnanavædd. Fólk fái ekki
tilfinningu fyrir samvinnu við slík apparöt,
sérstaklega ekki ungt fólk. Öðru máli gegni
um UMFÍ, sem hafi snemma tekið að virkja
ungt fólk innan hreyfingarinnar. Hann nefn-
ir sem dæmi ráðstefnurnar Ungt fólk og
lýðræði sem haldnar hafa verið á hverju
árið síðastliðin sjö ár. Árið 2016 mættu um
100 ungmenni á ráðstefnuna, sem haldin
var á Selfossi.
„Það var ómetanlegt að sjá jafningja sína
sem skipulögðu ráðstefnuna með UMFÍ
bregðast við þeirri ábyrgð og trausti sem
fylgdi. Tilfinningin fyrir hreyfingunni sjálfri
verður persónulegri og dýpri en áður,“
segir Aðalbjörn og bætir við að á ráðstefn-
una hafi hist ungmenni sem ekki hafi
Aðalbjörn í ungmennaráði UMFÍ:
Ungmenni
hafa rödd
verið virk í afreksíþróttum. „Við erum ekki
með neina elítu. Við viljum samtal við alvö-
ru fólk. Við þurfum að hlusta á þær raddir
sem hafa ekki verið áberandi hingað til.
Það rímar einmitt við UMFÍ og leiðarljósið
í nýlegri stefnu; UMFÍ er fyrir alla.“
Aðalbjörn Gunnlaugsson (afi Aðalbjörns) ásamt Pálma Gísla-
syni, þáverandi formanni UMFÍ.
„Hvaða tækifæri
hafa ungmenni
í félagi þínu?“