Skinfaxi - 01.04.2016, Qupperneq 24
24 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Á vefsíðunni má lesa fjölmarga
pistla frá íþróttamönnum, þjálf-
urum og fleiri sem vinna með
börnum og ungmennum.
Hér eru ráð úr völdum pistlum.
„Það er persónu-
bundið hvort fólk
kýs að velja sér
raunhæfari mark-
mið sem eru inn-
an seilingar eða
draumkennd
markmið sem
kannski er langsóttara að ná. En það
er allavega á hreinu að markmiðin
nást ekki, sama hversu stór þau eru,
ef þau eru ekki mótuð og skilgreind
í huga manns.“ – Hannes Þór Hall-
dórsson, aðalmarkvörður íslenska
landsliðsins í knattspyrnu.
„Bestu æfingarnar eru þær þar sem
við skiljum allar óþarfa hugsanir
eftir við dyrnar og sökkvum okkur
ofan í viðfangsefnið. Við þurfum
öll einhverja leið til að kveikja á
þessu hugarástandi. Mín leið er
hneigingin. Hvað notar þú?“ –
María Helga Guðmundsdóttir,
bikarmeistari í karate.
Sýnum karakter er langtímaverkefni sem
byggir á stöðugri söfnun og miðlun upp-
lýsinga til að gera gott starf með börnum
og ungmennum enn betra.
Verkefnið hefur það aðalmarkmið að
þjálfa sálræna og félagslega færni barna
og ungmenna í íþróttum. Hugmynda-
fræði verkefnisins byggir á að hægt sé að
þjálfa og styrkja sálræna og félagslega
færni iðkenda eins og líkamlega færni.
Grunnhugmyndin að verkefninu kemur
frá dr. Viðari Halldórssyni, félagsfræðingi
við Háskóla Íslands, og Valdimar Gunnars-
syni hjá UMSK. Á undanförnum misserum
hefur verkefnið verið prófað og þróað inn-
an UMSK og er nú svo komið að stærstu
íþróttahreyfingar Íslands, Ungmennafélag
Íslands (UMFÍ) og Íþrótta- og Ólympíusam-
band Íslands (ÍSÍ), hafa tekið höndum sam-
an um það að koma verkefninu á framfæri
út í íþróttahreyfinguna.
Verkefninu var ýtt úr vör með stórri ráð-
stefnu 1. október síðastliðinn þar sem frá-
bærir fyrirlesarar tóku þátt og fjölluðu um
ýmsa þætti sem varða sálræna og félags-
lega þjálfun. Ráðstefnan tókst með ein-
dæmum vel og fór fjöldi þátttakenda
fram úr björtustu vonum. Í lok nóvember
var önnur ráðstefna haldin í Háskólanum
á Akureyri og mættu um 180 þátttakendur.
Áhersla var lögð á fyrirlesara af svæðinu
sem tengir félögin á Norðurlandi enn frek-
ar við verkefnið.
Verkefnið Sýnum karakter er rétt að byrja
enda mörg tækifæri fyrir íþróttahreyfing-
una til að gera gott starf betra. Nú þegar
Hver er reynsla þín af þjálfun
sálrænna og félagslegra þátta?
Veistu um rannsóknir, greinar eða
dæmi sem geta gagnast öðrum?
Sendu okkur línu á
synumkarakter@synumkarakter.is
Sýnum karakter
bætir starfið í félögunum
hafa nokkur félög tekið Sýnum karakter
markvisst inn í sitt starf og vinna með verk-
efnið í öllu starfi sínu. Á þann hátt tryggja
félög enn frekar að allir þjálfarar gefi öllum
börnum sömu jákvæðu og uppbyggilegu
skilaboðin, hvort sem barnið æfir eina
íþrótt eða fleiri. Á heimasíðu Sýnum
karakter má lesa pistla frá einstaklingum
sem starfa við eða koma að þjálfun barna
á einn eða annan hátt.
Mynd að ofan:
Aðstandenur ráð-
stefnunnar Sýnum
karakter sem hald-
in var í Reykjavík
1. október sl.
Valdimar Gunnars-
son, framkvæmda-
stjóri UMSK, flytur
ávarp.
Pálmar Ragnars-
son, Jónína
Margrét Guðbjarts-
dóttir, Dagný Linda
Kristjánsdóttir og
Sævar Árnason
voru á ráðstefn-
unni á Akureyri.