Skinfaxi - 01.04.2016, Side 28
28 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
H ugmyndin að Unglingalandsmóti
UMFÍ kom fyrst fram hjá Ung-
mennasambandi Eyjafjarðar (UMSE)
árið 1991. Upphafsmaður hug-
myndarinnar var Jón Sævar Þórðarson,
þáverandi framkvæmdastjóri UMSE.
Strax í upphafi kom fram sú hugsun að
mótið ætti ekki fyrst og fremst að miðast
við toppárangur í einstökum íþróttagrein-
um. Blandað yrði saman keppni og kvöld-
vökum, skemmtun, útivist og þarna yrði
eitthvað fyrir alla. Upphaflega var farið af
stað með það að halda mótið þriðja hvert
ár en frá árinu 2002 hefur mótið farið fram
á hverju ári og alltaf um verslunarmanna-
helgina.
Allt frá fyrsta móti hefur Unglingalands-
mót UMFÍ verið vímulaus íþrótta- og fjöl-
skylduhátíð. Mótið er opið öllum á aldrin-
um 11–18 ára. Allir geta tekið þátt, óháð
hvort viðkomandi sé í einhverju íþrótta-
félagi eða ekki.
Í ár var mótið haldið í Borgarnesi um
verslunarmannahelgina. Mótshaldari var
Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB).
Keppendur voru um 1.400 talsins og voru
drengir heldur fleiri þátttakendur en stúlkur.
„Algerlega frábært að
komast á þessi landsmót“
Flestir keppendur komu frá HSK en næst-
flestir frá UMSK. Fjölmennustu keppnis-
greinarnar voru knattspyrna og frjálsar
íþróttir.
Hvernig fannst
þér mótið?
Sú nýjung var gerð eftir mótið í ár að raf-
ræn könnun var send til þátttakenda eða
forráðamanna þeirra. Tilgangur og mark-
mið könnunarinnar voru að heyra álit þátt-
takenda á mótshaldinu og afþreyingu,
skemmtun og hvernig þeim fannst aðstað-
an. Svarhlutfall var um 25%. Svörin voru
öll nafnlaus. Flestir svarenda voru ýmist for-
eldrar eða aðrir forráðamenn keppenda.
1Alls fannst um 84% svarenda fram-
kvæmd greina á Unglingalandsmóti
UMFÍ í Borgarnesi mjög góð eða góð.
Helstu athugasemdir voru þær að keppni
í knattspyrnu og frjálsum íþróttum var í
nokkrum tilvikum á sama tíma. Eins komu
fram athugasemdir með dómgæslu í körfu-
knattleik og knattspyrnu. Í körfunni voru
dómarar gagnrýndir fyrir að fylgja ekki
1 Hvernig fannst þér framkvæmd
greina sem þú tókst þátt í?
Mjög gott
Gott
Hvorki né
Slæmt
Mjög slæmt
40,0%
43,8%
14,6%
2 Hvernig upplifðir þú afþreyingu
á mótinu?
Mjög góð
Góð
Hvorki né
Slæm
Mjög slæm
Annað
32,9%
50,0%
11,3%