Skinfaxi - 01.04.2016, Síða 30
30 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Smiðjuvellir 32, Akranesi
Sími 431 5090 - Fax 431 5091
www.apvest.is
Opnunartímar:
Virka daga 9–18
Laugardaga 10–14
Sunnudaga 12–14
Útbúum
sjúkrakassa
fyrir fyrirtæki, heimili
og bíla
„Hvatningarverðlaunin vöktu mikla
athygli og fólk talaði mikið um þau,“ segir
Guðríður Aadnegard, formaður HSK.
Héraðssambandið Skarphéðinn hlaut
hvatningarverðlaun Ungmennafélags
Íslands og voru þau afhent á sambands-
ráðsfundi UMFÍ sem haldinn var að Laug-
um 15. október sl. Guðríður og Engilbert
Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK, veittu
þeim viðtöku.
Öflugt og metnaðarfullt
frjálsíþróttastarf
Verðlaunin voru veitt fyrir öflugt og metn-
aðarfullt frjálsíþróttastarf á vegum frjáls-
íþróttaráðs HSK, en ráðið er vettvangur
fjórtán aðildarfélaga HSK um sameigin-
legt frjálsíþróttastarf og hefur frjálsíþrótta-
fólk HSK átt góðu gengi að fagna á mót-
um í gegnum tíðina. Frjálsíþróttaráð HSK
hefur jafnframt rekið frjálsíþróttaskóla
UMFÍ fyrir 11–18 ára börn og ungmenni
síðastliðin sjö sumur. Skólinn er vinsæll
og uppselt hefur verið í hann síðastliðin
tvö sumur. Þetta var í annað sinn sem HSK
hlýtur hvatningarverðlaun UMFÍ.
Guðríður segir að það hljóta verðlaunin
sé mikilvægt og skemmtilegt fyrir þau se
eru svo heppin og þeim hleypur kapp í
kinn. „Þau sem starfa í frjálsum eru mjög
metnaðarfull og leggja mikið á sig. Alltaf
þegar félögum er hampað og fjallað um
þau þá skilar það sér í auknum áhuga á
starfi félagsins,“ segir hún.
Hvatning og umfjöllun skila sér í meiri áhuga á íþróttum
Guðríður Aadnegard, formaður HSK, Haukur
Valtýsson, formaður UMFÍ, og Engilbert
Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK.