Skinfaxi - 01.04.2016, Side 32
32 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Þeir sem leið eiga um Álafosskvos-
ina í Mosfellsbæ komast vart hjá
því að taka eftir Hvítbláni, ein-
kennisfána Ungmennafélags
Íslands, sem blaktir þar við hún á
hverjum degi. Þegar nánar er að gáð er
fáninn á tveimur stöðum, á báðum brúar-
stöplunum að Álafosskvosinni og uppi á
hæð, í suðri gegnt Álafossversluninni og
á milli minjavöruverslunar og Sundlaug-
arinnar, hljóðvers hljómsveitarinnar Sigur
Rósar.
Ungmennafélagar spyrja sig efalítið
þess, hverju sæti að Hvítbláinn blaktir við
hún í Álafosskvosinni. Það vita máske þeir
sem eldri eru en tvævetur.
Þegar gengið er inn í Álafossverslunina
og skoðað í hillur er ljóst að þar er saga
Álafoss og ungmennahreyfingarinnar í
hávegum höfð. Á milli lopa, sokka, peysa
og trefla eru innrammaðar eftirprentanir
af ljósmyndum ásamt texta þar sem for-
tíðinni er lýst; íþróttakennslu drengja við
Íþróttaskóla Álafoss, sundkennslu í Varmá
og ýmsum merkum viðburðum á milli
stríðanna stóru.
Sá sem dregur fánann að húni og held-
ur sögu Álafoss á lofti er Guðmundur Arnar
Jónsson, framkvæmdastjóri Álafoss. Hann
er heillaður af sögu staðarins, sérstaklega
glímukónginum Sigurjóni Péturssyni kaup-
sýslumanni sem keypti nær allan hluta í
Álafossi árið 1917 og byggði staðinn upp
sem bæði leiðandi fyrirtæki í ullariðnaði
og íþróttum.
„Þegar ég tók við Álafossi árið 2005
fannst mér svæðið allt svo frábært. Þegar
ég kynnti mér síðan sögu staðarins varð
ég svo heillaður af henni og Sigurjóni
Péturssyni glímukóngi að ég hafði sam-
band við Ungmennafélag Íslands og fékk
hjá því fána og leyfi til að flagga til að
heiðra minningu Sigurjóns og ungmenna-
félagshreyfingarinnar sem honum var
annt um,“ segir Guðmundur.
Flaggar Hvítbláni
á hverjum degi