Skinfaxi - 01.04.2016, Qupperneq 34
34 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
UMFÍvinnur nú að því
að koma á fót
útivistar- og
íþróttalýðháskóla á Íslandi sem byggi á
óformlegu námi með nálgun danska
prestsins Nikolai Frederik Severin Grundvig,
föður lýðháskóla hugmyndafræðanna, að
leiðarljósi. Dagana 31. október til 4. nóvem-
ber fór sjö manna hópur á vegum UMFÍ
til Danmerkur með stuðningi frá Evrópu
unga fólksins og kynnti sér tvo lýðháskóla.
Hópurinn fór til Danmerkur með það
markmið að afla sér þekkingar frá tveimur
lýðháskólum, þ.e. Vejle og Gerlev, og flytja
þekkinguna heim. Áhersla var lögð á inn-
viði skólanna, faglega nálgun þeirra á fram-
setningu, námsframboð, rekstur og stefnu-
mótun námsins. Nauðsynlegt er að vanda
vel til verka þegar kemur að því að stofna
nýjan skóla, undirbúa námið, framsetningu
þess, heildarmarkmið og áherslur.
Staða mála í dag
Umræðan um lýðháskóla á Íslandi hefur
farið fram um árabil en segja má að nú sé
hún komin á annað stig sem grundvallast
af nokkrum þáttum.
Fyrst ber að nefna tillögu til þingsálykt-
unar um lýðháskóla. Þar segir: „Alþingi
ályktar að fela mennta- og menningarmála-
ráðherra að hefja vinnu við gerð frum-
varps til almennrar löggjafar um lýðhá-
skóla á Íslandi. Markmið löggjafarinnar
verði að gera lýðháskóla að viðurkennd-
um valkosti í menntun sem njóti laga-
legrar umgjarðar og stuðnings hins opin-
bera. Við vinnuna verði horft til þess fyrir-
komulags sem gildir um starfsemi lýðhá-
skóla annars staðar á Norðurlöndum. Ráð-
herra leggi fram frumvarp eigi síðar en á
vorþingi 2016.“
Allsherjar- og menntanefnd hefur feng-
ið UMFÍ til álitsgjafar á ályktuninni, bæði
þar sem UMFÍ hefur verið leiðandi afl í mál-
efnum ungs fólks um árabil og einnig lengi
stutt íslensk ungmenni til námsdvalar við
lýðháskóla í Danmörku.
Af hverju Vejle og Gerlev?
UMFÍ hefur átt í nánu samstarfi við báða
skólana síðastliðin ár. UMFÍ hefur gert
samning við Højskolernes Hus varðandi
móttöku á íslenskum ungmennum til
náms ytra og hafa þessir skólar verið mjög
Lýðháskóla heim
vinsælir meðal íslenskra ungmenna. Sam-
starfið hefur verið gott og farsælt og
skólarnir báðir hafa heimsótt UMFÍ reglu-
lega. UMFÍ hefur einnig kynnt skólana
vítt og breitt, bæði í eigin miðlum og á
formlegum kynningum, fyrir ungmenn-
um á Íslandi.
Báðir skólarnir búa yfir góðri faglegri
þekkingu á starfi lýðháskóla og áralöng
saga og hefð er til staðar. Skólarnir eru
ólíkir og námsframboð þeirra mjög ólíkt
þó báðir séu í grunninn með íþróttir og
útivist sem aðalfög.
UMFÍ veitir styrki til náms
UMFÍ veitir ungu fólki, sem hyggur á nám
við lýðháskóla í Danmörku, styrk fyrir árið
2017. Markmið með styrkveitingunni er að
gefa ungu fólki tækifæri til að víkka sjón-
deildarhring sinn. Einnig tækifæri til að
kynnast nýju tungumáli og menningu,
auka færni sína og þekkingu á völdu sviði
í gegnum óformlegt nám og styrkja leið-
togahæfileika sína um leið. Allar nánari
upplýsingar er að finna á heimasíðu UMFÍ.
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2017.