Skinfaxi - 01.04.2016, Side 35
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 35
Harpa Kristín
Björnsdóttir, 21 árs
„Ég vissi ekki hvað mig lang-
aði til að gera, ætlaði í háskóla
en vissi ekki hvað mig langaði
að læra. Ég ákvað því að prófa
eitthvað alveg nýtt. Ég er í
skíðaáfanga en þarf að velja
annað með og valdi spinning
og er líka í styrktarþjálfun.“
Er ekki skrýtið að vera í skíða-
áfanga í Danmörku?
„Jú, það er skrýtið enda engin
fjöll hérna. Við gerum styrktar-
þjálfun fyrir læri og kvið og
förum í skíðaferð til Austur-
ríkis.“
Þetta sögðu þau
eftir ferðina
Sabína Steinunn, landsfulltrúi
UMFÍ: „Við erum komin með verk-
færi í hendur til að takast á við þær
áskoranir sem fylgja stofnun lýð-
háskóla UMFÍ.“
Auður Inga, framkvæmdastjóri
UMFÍ: „Ég er þess fullviss að lýð-
háskóli UMFÍ kemur til með að hafa
umtalsverð áhrif á samfélagið og
það námsframboð sem stendur
íslenskum ungmennum til boða.“
Valdimar, framkvæmdastjóri
UMSK: „Ferðin var frábært tækifæri
til að meta og kynnast námsskrám
skólanna og sjá daglegt líf í skólun-
um sjálfum.“
Valur Rafn, sérfræðingur hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga:
„Þetta var flott tækifæri til að meta
ólíkar nálganir og styrkleika hvers
skóla fyrir sig.“
Hrönn, stjórnarmaður UMFÍ:
„Heimsóknin var mikilvægur hlekk-
ur fyrir frekara samstarf um stofnun
lýðháskóla.“
Í hópnum, sem kynnti sér danska lýðháskóla, voru:
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ;
Björk Óttarsdóttir, sérfræðingur í mennta- og menningar-
málaráðuneytinu;
Valdimar Gunnarsson, framkvæmdastjóri UMSK;
Hrönn Jónsdóttir, stjórnarmaður UMFÍ;
Valur Rafn Halldórsson, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga;
Smári Stefánsson, aðjúnkt við Háskóla Íslands, íþrótta- og
heilsufræði, og
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi UMFÍ.
Skólar með langa sögu
Vejle er íþróttalýðháskóli staðsettur á
Jótlandi. Skólinn var stofnaður um miðja
síðustu öld og á því langa sögu. Skólinn
sérhæfir sig í íþróttum og er jafnframt
með undirbúningsnám fyrir lögreglu-
skóla. Skólinn býður upp á yfir 20 mis-
munandi íþróttagreinar á þremur línum,
þ.e. boltaíþróttir, fitness og útivist. Skólinn
leggur ríka áherslu á gildi hreyfingar og
íþrótta fyrir einstaklinginn, félagsmótun,
sjálfstraust og félagslíf. Horft er til allra
þátta heilsunnar þ.e. líkamlega, andlega
og félagslega.
Gerlev er íþróttalýðháskóli á Sjálandi.
Skólinn var stofnaður 1938 og er hann
einn af þeim elstu í Danmörku. Skólinn
leggur ríka áherslu á samvinnu og lýð-
ræðisleg vinnubrögð. Skólinn býður
upp á fjölbreytt svið íþrótta þar sem
ávallt er leitast við að ögra einstaklingn-
um og fara út fyrir þægindarammann
til að þróast og þroskast. Skólinn vinnur
með skilning einstaklinga á tilgangi
lífsins í gegnum íþróttir og lýðheilsu.
Hver nemandi velur sér aðalfög sem eru
rauði þráðurinn í námi hans og bland-
ar síðan saman við það valfögum allt
frá parkour yfir í heimspeki. Námsfram-
boð í Gerlev er mjög fjölbreytt.
Eru margir Íslendingar í skól-
anum?
„Við erum átta, öll með
danska herbergisfélaga.“
Hver var mesta áskorunin?
„Að fara í nýtt umhverfi og
læra nýtt tungumál.“
Aron Brink, 21 árs
Af hverju Vejle?
„Ég fór á háskólakynningu um
skólann. Mér fannst það frá-
bært og ákvað að skella mér
út. Það var risastórt skref að
fara að heiman, vera fjarri fjöl-
skyldunni, læra nýtt tungu-
mál og prófa eitthvað nýtt.“
Íslendingar hafa um áratuga skeið farið í nám
við danska lýðháskóla. Fjöldi íslenskra ung-
menna var þar þegar fulltrúa á vegum UMFÍ bar
að garði. En hvað heitir fólkið og af hverju kaus
það að fara í nám í lýðháskóla í Danmörku?
Við spurðum þau Hörpu og Aron í Vejle.