Skinfaxi - 01.04.2016, Blaðsíða 36
36 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Sambandsaðilar UMFÍ geta óskað
eftir því að fá námskeiðið til sín
endurgjaldslaust með því að hafa
samband við Þjónustumiðstöð
UMFÍ. Það er Æskulýðsvettvangur-
inn, samstarfsvettvangur UMFÍ,
BÍS, KFUM og K og Slysavarna-
félagsins Landsbjargar sem greiðir
fyrir námskeiðið. Hvert námskeið
er 3 klst. Hægt er að nálgast bók-
ina Verndum þau í Þjónustumiðstöð UMFÍ.
U
M
FÍ
„Þetta var flott. Ég lærði hvernig ég á að
setja upp ræður, draga úr stressi áður en ég
tala fyrir framan hóp af fólki og hvernig ég
á að standa þegar ég kem fram. Þetta lær-
um við ekki nema að hluta í skólanum,“
segir Vaka Agnarsdóttir, 15 ára nem-
andi við Hraunvallaskóla í Hafnarfirði.
Á meðal þess sem Vaka lærði var að byggja ræður upp á réttan hátt, koma á staðinn
þar sem mun flytja ræðu talsvert á undan öðrum og fara yfir efnið góðri stundu áður
en hún á að koma fram. „Ég lærði það á námskeiði UMFÍ,“ segir Vaka.
Lærðu að undirbúa framsögn
Sambandsaðilar UMFÍ geta haft
samband við þjónustumiðstöð
UMFÍ og óskað eftir því að fá
námskeiðið til sín eða senda ung-
mennaráð og félaga á námskeið í
þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík.
Sabína Steinunn Halldórsdóttir,
landsfulltrúi UMFÍ, hefur veg og
vanda af kennslunni og utanum-
haldi námskeiðsins Sýndu hvað í
þér býr. Sabína hefur farið um allt
land með námskeiðið fyrir bæði
ungmenni og stjórnendur ung-
mennafélaga. Um 200–300 manns
sitja námskeiðið á hverju ári.
VERKEFNI
SEM TENGJAST
Vaka kom í lok nóvember, ásamt 17
öðrum grunnskólanemendum sem sæti
eiga í Ungmennaráði Hafnarfjarðar og
Ungmennaráði Mosfellsbæjar, í þjónustu-
miðstöð UMFÍ. Þar sátu þau félagsmála-
námskeiðið Sýndu hvað í þér býr. Á nám-
skeiðinu var farið yfir ýmsa þætti sem
tengjast ræðumennsku, framkomu, ræðu-
flutningi og raddbeitingu, fundarsköpum,
fundarreglur, boðun funda, fundarskipan,
meðferð tillagna, kosningar og fleira. Þátt-
takendur vinna jafnframt einföld verkefni
og fara í leiki til þess að brjóta upp nám-
skeiðið.
Þetta eru orð Höllu Karí Hjaltested, fram-
kvæmdastjóra fimleikadeildar Fjölnis.
Í haust fékk félagið námskeiðið Verndum
þau til sín. Halla Karí sagði jafnframt,
„námskeiðið vakti mig til umhugsunar
um hvað það er mikilvægt að huga að
einstaklingunum en ekki bara að faglegri
þjálfun. Eftir námskeiðið þekki ég betur
ferlið með hvað skal gera ef grunur um
ofbeldi kemur upp.“
Á námskeiðinu Verndum þau er fjallað
um hvernig bregðast eigi við grun um
ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og
ungmennum. Námskeiðið er ætlað öllum
þeim sem starfa með börnum og ung-
mennum á sviði íþrótta- og æskulýðsmála.
Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrota-
fræðingur (t.v.), og Þorbjörg Sveinsdóttir,
sálfræðingur (t.h.).
„Mikilvægt að allir einstaklingar sem vinna
með börnum fái námskeið á þessu sviði“
Nokkrar umsagnir um námskeiðið:
„Virkilega fræðandi námskeið og frábærir kennarar.“
„Vekur mig til umhugsunar um hvað það er mikilvægt
að huga að einstaklingnum en ekki bara að faglegri
þjálfun.”
„Fylgist betur með hvernig iðkendur mínir eru,
hvernig þau tala og hvernig þeim líður.”
„Mikilvægt að allir einstaklingar sem vinna með
börnum fái námskeið á þessu sviði.”
„Þekkjum betur ferlið með hvað skal gera ef grunur
um ofbeldi kemur upp.“
Höfundar bókarinnar Verndum þau,
Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrota-
fræðingur, og Þorbjörg Sveinsdóttir, sál-
fræðingur, sjá um kennslu á námskeiðinu.
Báðar starfa þær í Barnahúsi og hafa mikla
reynslu af barnaverndarmálum.