Skinfaxi - 01.04.2016, Page 37
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 37
Sendiherra
Bandaríkjanna
leist vel á
mótið
Robert C. Barber, sendiherra Bandaríkj-
anna á Íslandi, var á ferðalagi með vina-
hópi í námunda við mótocrosssvæðið á
Akranesi laugardaginn 30. júlí þegar
keppnin á Unglingalandsmótinu fór þar
fram. Hann varð forvitinn og fylgdist með
hluta mótorkeppninnar. Guðmundur
Sigurbergsson, sem sæti á í varastjórn
UMFÍ, hitti Barber á mótssvæðinu. Barber
þekkti ekki til Unglingalandsmóts UMFÍ
og fræddi Guðmundur hann um það.
Leist Barber vel á, að sögn Guðmundar.
UMFÍ vinnur þessa dagana að verkefni sem hefur það markmið að auka
þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþrótta-
starfi. Fjölmörg félög hafa sýnt því áhuga að koma að verkefninu með
UMFÍ. Er félag þitt að vinna að þessum málum?
Hefur þú áhuga á að koma að verkefninu?
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Sigurðardóttir, landsfulltrúi UMFÍ.
Netfang ragnheidur@umfi.is
Hvað er UMFÍ?
Ungmennafélag Íslands er samtök ungmennafélaganna á
Íslandi, skammstafað UMFÍ. Samtökin voru stofnuð árið 1907.
Hlutverk og gildi UMFÍ er Ræktun lýðs og lands. UMFÍ leggur
áherslu á að vinna að líkamlegum, andlegum og félagslegum
þroska félagsmanna, forvörnum og lýðheilsu ásamt því að
kenna þeim að bera virðingu fyrir umhverfi og náttúru landsins.
UMFÍ lætur sig varða lýðheilsu almennings og leggur sitt af mörk-
um við að búa komandi kynslóðum sem best uppvaxtarskilyrði.
UMFÍ er þjónustu- og samræmingaraðili fyrir 29 sambands-
aðila og um 340 aðildarfélög þeirra. Félagsmenn eru rúmlega
160 þúsund um allt land.
Meirihluti barna- og ungmennastarfs á Íslandi er innan vé-
banda UMFÍ. UMFÍ leggur áherslu á fagleg vinnubrögð, jákvæð
samskipti og samstarf með sameinaða krafta félagsmanna að
leiðarljósi.
Veggspjald sem minnir á að koma vel
fram og vinna gegn einelti. Hægt er að
nálgast eintök í þjónustumiðstöð UMFÍ.
Mikilvægt er að öllum börnum og
ungmennum líði vel í leik og starfi.
Einn liður í því er að stuðla að jákvæðum
samskiptum þar sem hver og einn er
ábyrgur fyrir orðum sínum og gjörðum.
„Þegar kemur að framkomu við aðra er
ekkert grátt svæði. Öllum persónulegum
séreinkennum, háttum, venjum og siðum
ber að sýna virðingu. Koma skal fram við
aðra af kurteisi og alúð hvernig sem þeir
eru og hvernig sem okkur kann að líka
við þá. Barátta gegn eineltishegðun getur
aldrei verið bara átak, hún verður að vera
viðvarandi hluti af starfseminni, eigi hún
að skila sér.“ Þetta eru orð Kolbrúnar Bald-
ursdóttur, sálfræðings og höfundar bókar-
innar Ekki meir, sem er leiðarvísir í aðgerð-
um gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta-
og æskulýðsfélaga, foreldra og börn.
Sambandsaðilar UMFÍ geta óskað eftir fræðslu, forvörnum eða úrvinnslu eineltis-
mála með því að hafa samband við Þjónustumiðstöð UMFÍ. Á heimasíðu UMFÍ er
að finna aðgerðaáætlun Æskulýðsvettvangsins, sem UMFÍ er aðili að, gegn einelti
og annarri óæskilegri hegðun. Hægt er að óska eftir eintökum með því að hafa
samband í þjónustumiðstöð UMFÍ.
Segðu ekki meir við einelti og aldrei aftur
Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur og
höfundur bókarinnar Ekki meir.
U
M
FÍ
VERKEFNI
SEM TENGJAST