Skinfaxi - 01.04.2016, Síða 40
40 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Samtökin Nordisk samorganisation
for ungdomsarbejde, eða NSU, eru
samtök ungmennafélaga á Norður-
löndunum. Samtökin voru stofnuð
árið 1946 og samanstanda í dag af tólf
aðildarfélögum og fjórum samstarfsfélög-
um. Heildarfjöldi meðlima er um 700.000
einstaklingar. Á vettvangi samtakanna er
unnið mikið af sameiginlegum verkefnum
sem tengja Norðurlöndin saman. Má þar
nefna ungmennaskipti, ungmennavikur,
markmiðsráðstefnur og ungbændaráð-
stefnur. UMFÍ hefur verið aðili að samtök-
unum frá upphafi og tekið góðan þátt í
verkefnum samtakanna. Jafnframt hefur
UMFÍ átt fulltrúa í stjórn samtakanna í
gegnum árin.
Hanne Müller þökkuð
vel unnin störf hjá NSU
Á aðalfundi samtakanna í september 2016
var Hanne Müller, fyrrum framkvæmda-
stjóra samtakanna, þakkað fyrir vel unnin
störf í þágu samtakanna.
„Þetta er eitt það skemmtilegasta sem
ég hef gert og það hefur verið gefandi að
fást við ólík verkefni,“ sagði Hanne þegar
hún þakkaði fyrir sig.
Hanne hefur verið viðloðandi NSU í um
áratug, fyrst fyrir hönd DGI, systursamtaka
UMFÍ, og síðar sem starfsmaður. Í þakkar-
ræðu sinni rifjaði Hanne upp verkefni eins
og leiðtogaskóla á Grænlandi sem fjallaði
um loftslagsbreytingar og námskeið á
Helsingjaeyri 2012 þar sem 30 ungmenni
veltu fyrir sér framtíð samtaka sinna á skap-
andi hátt sem lauk með stórri ráðstefnu í
Kaupmannahöfn.
Breytingar á stjórn NSU
Á aðalfundi samtakanna var í fyrsta skipti
kosið eftir nýju stjórnarfyrirkomulagi og
náði Jörgen Nilsson, frambjóðandi UMFÍ,
kjöri. Pia Nurmio-Perälä frá Finnlandi hlaut
endurkjör sem formaður. Aðrir í stjórn eru
þau Sven Wamser frá SDU í Slésvík, Hjördis
Gaard frá FUR í Færeyjum og Rene Mejer
Lauritsen frá 4H í Danmörku.
Á fundinum var jafnframt samþykkt
starfsáætlun fyrir árið 2017. Stærstu verk-
efnin verða leiðtoganámskeið í Turku í
Finnlandi í febrúar, evrópsk ráðstefna í
Búdapest í Ungverjalandi ásamt fleirum í
maí og ráðstefna í Kaupmannahöfn seinni
hluta árs. Málefni innflytjenda og flótta-
manna verða í brennidepli á viðburðunum
þremur. Horfið verður frá hinum hefð-
bundna leiðtogaskóla og ungmennavik-
um NSU en ýmsir viðburðir eru í gangi á
vegum aðildarfélaga samtakanna sem
samtökin hafa hug á að bjóða norrænum
gestum til.
Skrifstofa NSU flyst
til Helsinki
Um áramótin flyst skrifstofa NSU til
Helsinki í Finnlandi þar sem Anna-Emilie
Lindberg hjá Finlands Svenska Ungdoms-
förbund (FSU) verður nýr starfsmaður. Um
leið lýkur löngu samstarfi við ISCA sem
hýst hefur skrifstofu NSU um áraraðir.
Frá vinstri: Hanne fráfarandi framkvæmdastjóri, Pia formaður og Anne verðandi framkvæmdastjóri.
Þekkir þú NSU?