Skinfaxi - 01.03.2017, Blaðsíða 22
22 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Ýmislegt um landsmót DGI
• Fyrsta landsmótið var haldið árið 1862.
Eingöngu var keppt í skotfimi. Danir höfðu
þá barist linnulítið við Prússa um yfirráð
yfir Slésvík frá árinu 1848 og var hæfni í
skotfimi afar mikilvæg. Æfingar í skotfimi
skiluðu Dönum samt litlum árangri því
að Austurríkismenn komu Prússum til
hjálpar í baráttunni um landssvæðið og
höfðu sigur árið 1864.
• Landsmót DGI er stærsti viðburðurinn
sem haldinn hefur verið í sögu Álaborgar.
Þátttakendur voru 25.127.
• 4.000 sjálfboðaliðar frá 135 félögum á
Norður-Jótlandi unnu á landsmótinu.
• Tónlistarfólk tróð upp á 37 tónleikum á
meðan landsmótið stóð.
DGI er systursamtök UMFÍ í Dan-
mörku og má segja að það sé
UMFÍ Danmerkur. Góð samvinna og vinskap-
ur er á milli samtakanna og koma margar fyrir-
myndir að verkefnum UMFÍ einmitt frá DGI.
Í maí 2015 fór stór hópur ungmennafélaga
í heimsókn til DGI til þess að kynna sér verk-
efni og störf þess. Var ferðin styrkt af Evrópu
unga fólksins. Í ágúst 2015 kom svo stjórn
DGI í heimsókn til Íslands til að kynna sér og
upplifa Unglingalandsmót UMFÍ. Heimsókn
sambandsaðila UMFÍ og starfsfólks UMFÍ í
júní sl. var í sama tilgangi, þ.e. að skoða undir-
búning og mótshald DGI.
Þetta árið fór hópur 46 Íslendinga frá sam-
bandsaðilum UMFÍ utan að kynna sér mótið.
Með í för var Sigríður Svavarsdóttir, forseti
bæjarstjórnar í Skagafirði. Hún og aðrir Skag-
firðingar, þar á meðal Ómar Bragi Stefánsson,
landsfulltrúi UMFÍ og framkvæmdastjóri
landsmóta UMFÍ, kynntu sér skipulagningu
mótsins enda verður hið stóra Landsmót
UMFÍ haldið á Sauðárkróki í júlí á næsta ári.
Stefnt er að því að mótið á Sauðárkróki verði
stórt og með bæði breyttu og nýju sniði.
Samvinna og vinskapur UMFÍ og DGI
Öflugur hópur frá UMFÍ á danska landsmótinu í Álaborg.
Aldursskipting þátttakenda
á danska landsmótinu 2017.
15–24 ára
25–39 ára
40–59 ára
60 ára
og eldri