Skinfaxi - 01.03.2017, Síða 33
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 33
UMFÍ hefur starfrækt Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laug-
um í Sælingsdal í ellefu ár eða frá árinu 2005. Nemendur í 9. bekk
grunnskóla geta dvalið þar viku í senn yfir skólaárið frá september
og fram til loka maí á hverju ári. Á hverju skólaári er pláss fyrir
2.000 grunnskólanemendur á Laugum.
Nemendum í 9. bekk, sem dvelja að Laugum, er óheimilt að vera
þar með farsíma og tölvur. Anna Margrét Tómasdóttir, forstöðuko-
na búðanna, segir nemendurna eiga erfitt með að botna í þessu í
fyrstu. Þetta geri þeim hins vegar gott enda nóg um að vera.
Nemendurnir eru í stífri dagskrá alla daga vikunnar í óformlegu
námi sem leitt er af tómstundaleiðbeinendum. Nemendurnir
stunda mikla útivist, fara í gönguferðir
og eru í útileikjum, kynnast íslenskri
þjóðtrú og prófa ýmislegt heilbrigt
sem þau eiga annars ekki kost á. Í Ung-
menna- og tómstundabúðunum að
Laugum kynnast ungmennin styrkleik-
um sínum og veikleikum og læra að
vinna með þá til að bæta félagsfærni sína.
Símalausir nemendur að Laugum í Sælingsdal
NÆSTU MÓT
UMFÍ
2018
Landsmót UMFÍ 13. – 15. júlí á Sauðárkróki. Landsmótið verður með breyttu og nýju sniði.
Landsmót UMFÍ 50+ verður hluti af stóra landsmótinu á Sauðárkróki.
Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina.
2019
Landsmót UMFÍ 50+ í Neskaupstað í júní.
Unglingalandsmót UMFÍ á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina.
2020
Landsmót UMFÍ 50+ í Borgarnesi í júní.
Tilkynnt verður um staðsetningu Unglingalandsmóts UMFÍ á mótinu á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina.
Sjáumst á mótum UMFÍ
Kynntu þér starf Ungmennafélags Íslands, landssambands ungmennafélaga, á WWW.UMFI.IS