Skinfaxi - 01.03.2019, Side 24
24 SKINFAXI
Kvikmyndagerðarmaðurinn og allra-
handamaðurinn Óskar Páll Sveinsson
hefur fylgt Veigu eins og skugginn í meira
eða minna heilt ár og fylgt henni eftir
í öllu sem tengdist kajakróðri hennar
umhverfis Ísland og kynleiðréttingunni.
Í myndinni eru viðtöl við Veigu, systkini
hennar, vini og marga fleiri. Hjálpar-
kokkar Veigu í myndinni eru engir auk-
visar. Þau Kristín Ólafsdóttir og Pétur
Einarsson eru framleiðendur, Sykurmolinn
Margrét Örnólfsdóttir skrifar handrit og
Högni Egilsson, tónlistarmaður í hljóm-
sveitinni Hjaltalín, semur tónlist.
Heiti myndarinnar er í samræmi við
margt sem Veiga tekur sér fyrir hendur.
Upp á íslensku heitir hún Á móti straumn-
um en Against the Current á ensku.
Stefnt er að frumsýningu snemma árs á
kvikmyndahátíðum erlendis, annaðhvort
í Bandaríkjunum eða í Evrópu.
„Vonandi verður hún sýnd sem fyrst á
Íslandi, helst fyrst á Ísafirði, áður en hún
fer í ferðalag um heiminn,” segir Veiga.
Frekari upplýsingar um Veigu
Áhugasamir geta fylgst með Veigu á samfélagsmiðlum. Þar eru
ítarlegar upplýsingar um líf hennar, breytinguna og fyrirlestrana
sem hún heldur víða um land. Á vefsíðu Veigu er jafnframt hægt
að hafa samband við hana og panta fyrirlestur.
Ísland er eitt erfiðasta land í heimi til að
róa í kringum, að sögn Veigu. „Þetta tók
á. En ég sagði fyrir ferðina að þetta væri
auðveldara en kynleiðréttingarferlið. Þetta
var barnaleikur miðað við ferlið. Það er
eitt það erfiðasta sem nokkur manneskja
gengur í gegnum. Þá breytist allt í lífinu,
bæði líkamlega og andlega. Við leiðrétt-
inguna er testósterónmagnið í líkamanum
keyrt niður í núll á mjög stuttum tíma og
ég framleiði engin hormón lengur. Á
sama tíma er estrógenið keyrt upp. Við
þetta varð ég tilfinninganæmari en áður,
upplifi hormónasveiflur og þarf minna
til að fara að gráta og vöðvarnir rýrna.
Hálsinn hefur minnkað um þrjá sentimetra
og lærin stækkað um fimm því fitan fer
að safnast á aðra staði og æðar þrengj-
ast og ég því er kulsæknari en áður.”
Orðin kulsæknari en áður
Veiga í bíó um allan heim
Heimasíða: www.veiga.is
Facebook: Against The Current Iceland
Instagram: against_the_current_iceland