Skinfaxi - 01.03.2019, Page 37
SKINFAXI 37
Fyrir Alþingi liggur þings-
ályktunartillaga um þjóðarátak
í lýðheilsutengdum forvörnum.
Fram kemur í greinargerð með
þingsályktunartillögunni að
helstu áhættuþættir í heilsufari
Íslendinga séu hreyfingarleysi,
áfengisneysla, reykingar og
óheilsusamlegt mataræði.
UMFÍ var á meðal þeirra sem skiluðu inn
umsögn um tillöguna. UMFÍ fagnar því að
málefni tengd lýðheilsu séu sett í fremstu
röð og aukin áhersla lögð á málaflokkinn.
Bent er á í umsögn UMFÍ að skynsamlegt
sé að líta á forvarnir og lýðheilsutengd mál
sem ákjósanlegt endamark sem gott sé að
stefna að. Þar er um að ræða langhlaup
sem byggja þarf undir og styrkja til að
gera það viðráðanlegt svo að allir komist
í mark. Stefna og reyndar allt starf UMFÍ
miði að því að veita sem flestum tækifæri til
þátttöku og að hvetja fólk til að velja ávallt
hollasta kost sem í boði sé hverju sinni og
draga með þeim hætti úr lífsstílstengdum
áhættuþáttum. Vitnað er til lokaritgerðar
Erlu Gunnlaugsdóttur frá Háskólanum á
Akureyri en niðurstaða hennar var sú að
forvarnaverkefni UMFÍ sé alltumlykjandi í
starfi ungmennafélagshreyfingarinnar og
verkefni sem sífellt þurfi að vinna að. UMFÍ
vinni stöðugt að forvörnum en á hverju ári
bætist við nýir árgangar ungs fólks sem
þurfi að fræða. Forvarnaverkefnið sé því
eðlilega endalaust.
Eigi verkefni um bætta heilsu íslensku
þjóðarinnar að verða að veruleika þurfi að
mati UMFÍ að tryggja fjárhagslegan grund-
völl þess og nærtækt sé að nýta þá reynslu
sem nágrannaþjóðir okkar hafi aflað sér,
byggja á þeim grunni sem sé til staðar í
samfélaginu, styðja betur við þá stólpa sem
starfsemin hvílir á og styrkja möguleikana
til samstarfs.
Ályktunina, greinargerð og umsagnir má
lesa á vefsíðu Alþingis: www.althingi.is
Alltaf til staðar
Notaðu N1 punktana
Þú færð afslátt og punkta
með N1 kortinu
N1 punktarnir eru inneign sem safnast hratt upp þegar
þú verslar á N1 og gildir einn punktur sem ein króna í öllum
viðskiptum við N1 um allt land. Ef þú ert ekki með
N1 kort þá sækirðu einfaldlega um eitt í hvelli á N1.is.
til að kaupa eldsneyti, gómsætan
bita og kabolla eða til að lækka
verðið á nýju dekkjunum enn meira.
UMFÍ styður átak í forvörnum