Skinfaxi - 01.03.2019, Side 42
42 SKINFAXI
UMFÍ heldur þrjú stór mót í samstarfi við sambandsaðila og sveitar-
félög á nýju ári. Þetta eru Landsmót UMFÍ 50+, Íþróttaveislan og
Unglingalandsmót UMFÍ. Búast má við mörg þúsund þátttakendum
á viðburðunum þremur.
„Næsta ár verður mjög stórt mótaár. Það verður mjög spennandi
en krefjandi enda verða allir þessir stóru viðburðir UMFÍ á Suður-
landi og suðvesturhorninu,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, landsfull-
trúi UMFÍ og framkvæmdastjóri allra móta UMFÍ.
LANDSMÓT UMFÍ 50+
Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið dagana 19.–21. júní 2020.
Mótið er haldið í samstarfi við Ungmennasamband Borgarfjarðar
og Sveitarfélagið Borgarbyggð. Landsmót UMFÍ 50+ er blanda
af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á
besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið hefur farið fram árlega
síðan 2011 og er öllum opið sem verða 50 ára eða eldri á árinu.
Boðið verður upp á skemmtilega keppni í ýmiss konar íþróttum, s.s.
körfubolta, fótbolta og fleiri greinum. Keppni í boccía, stígvélakasti
og pönnukökubakstri eru auðvitað fyrir löngu orðnar klassískar
greinar á mótinu og njóta þær mikillar athygli á hverju móti.
Fylgist með mótinu á www.umfi.is
ÍÞRÓTTAVEISLAN
Íþróttaveisla UMFÍ verður haldin í Kópavogi dagana 26.–28. júní
2020. Skrifað var undir samning þessa efnis í lok október. Þetta
verður gríðarlega stór og fjölmennur viðburður. Að Íþróttaveislunni
standa, auk UMFÍ, Kópavogsbær og Ungmennasamband Kjalarnes-
þings í nánu samstarfi við stóru íþróttafélögin í bænum, Breiðablik,
Gerplu og HK. Ljóst er að heljarinnar þriggja daga lýðheilsuhátíð
er í vændum þar sem boðið verður upp á marga viðburði tengda
hreyfingu og hressleika og má gera ráð fyrir fjölda þátttakenda sem
njóta þess að prófa skemmtilega hreyfingu. Ármann Kr. Ólafsson,
bæjarstjóri í Kópavogi, sagðist við undirritun hlakka til Íþróttaveisl-
unnar. Þar sé frábær aðstaða sem nýtist vel fyrir viðburð af þessari
stærðargráðu.
Fylgist með mótinu á www.ithrottaveisla.is
UNGLINGALANDSMÓT
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Selfossi um verslunar-
mannahelgina 2020. Mótið er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð.
Þúsundir gesta mæta á mótið á hverju ári. Keppni er miðuð við
aldurinn 11–18 ára og hefur ungmennum fjölgað í hópnum.
Eins og alltaf verður fjöldi viðburða fyrir alla fjölskylduna alla
verslunarmannahelgina. Til stendur að vera með skógarhlaup
fyrir alla og bjóða upp á keppni í rafíþróttum.
Fylgist með mótinu á www.ulm.is
Sjáumst á
heilmiklu
mótaári 2020
Þátttakendur í viðburðum UMFÍ þurfa hvorki að vera skráðir í
ungmenna- né íþróttafélag til að geta tekið þátt. Það eina sem
þarf er að hafa áhuga á hreyfingu eða að láta drauminn rætast og
skemmta sér með fjölskyldu og vinum á heilbrigðum og skemmti-
legum forsendum.