Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Page 31

Bókasafnið - 01.01.2003, Page 31
Ingveldur Tryggvadóttir Skjalastjórn sveitarfélaga Inngangur Á undarförnum árum hafa sveitarfélög á íslandi verið að taka upp rafræna skjalastjórn í sífellt ríkari mæli. Kerfisbundin skráning og geymsla á skjölum, í hvaða formi sem er, verður sífellt mikilvægari sökum laga og reglna sem gera sveitarfélögum skylt að varðveita skjöl og koma þeim í varanlega vistun hjá Þjóðskjala- safni og/eða héraðsskjalasöfnum. Þá er einnig gert ráð fyrir aukinni upplýsingagjöf til einstaklinga og stofnana og hafa sveitarfélög verið að mæta þessum kröfum með kaupum og notkun á skjalavistunar- kerfum. Einnig hafa verið ráðnir skjalastjórar til sveitarfélaga til að hafa umsjón með skjölum og innleiðingu á skjalavistunarkerfum. Nýtt starfsheiti Á árunum 1998-1999 voru ekki margir skjalastjórar starfandi hjá sveitarfélögum og starfsheitið skjala- stjóri til að mynda ekki til í kjarasamningum bóka- safns- og upplýsingafræðinga, en því hefur síðan þá verið bætt inn í nýjustu kjarasamninga. Það má því segja að fyrstu skjalastjórar sveitarfélaganna séu brautryðjendur í sínu fagi. Ekki voru til formlegar starfslýsingar fyrir skjala- stjórana og eru þess dæmi að þeir hafi útbúið sínar starfslýsingar sjálfir. Reikna má með að svipað starfsumhverfi hafi mætt nýráðnum skjalastjórum um land allt. Óform- leg könnun meðal skjalastjóranna hefur leitt í ljós að í fæstum tilfellum hafði verið gerð skjalakönnun eða frumkönnun á skjölum deilda og sviða áður en ráð- inn var skjalastjóri og farið var að nota og skrá í skjalavistunarkerfi. Geymsluáætlanir sem segja til um hversu lengi skal vista skjöl voru fáar. Eitthvað var um það að gert hafi verið átak í að skrá gömul skjöl í geymslum og eru því nokkur sveitarfélög ágæt- lega stödd í þeim málum. Búið var að vinna skjala- lykil í tveimur sveitarfélögum en hjá hinum útbjuggu skjalastjórarnir sjálfir lykla byggða á bókhaldslyklum sveitarfélaga eða upp úr handbókinni um skjala- vörslu sveitarfélaga. Félag skjalastjóra Þar sem skjalastjórar eru yfirleitt einu sérfræðingarn- ir á sínu sviði innan sveitarfélags síns þurfa þeir oft að horfa til annarra sveitarfélaga ef þeir vilja skiptast á faglegum skoðunum og bera saman bækur sínar, ekki síst varðandi skjalavistunarkerfi. Níu sveitarfé- lög nota nú sama kerfið, GoPro Case, sem Hugvit hf. hannar og selur. Skjalastjórar hafa því stofnað félag sem hefur fengið heitið LyfeiII — samtök skjalastjóra/- skjalafulltrúa sem starfa hjá sveitarfélögum og fyrirtœkj- um þeirra. Fyrsti fundur nýs félags var haldinn í Reykjanes- bæ þann 4. nóvember 2002 og mættu þar Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, skjala- og upplýsingafulltrúi Húsavíkurkaupstaðar, Ingveldur Tryggvadóttir, skjalastjóri Akureyrarbæjar, Hulda Hauksdóttir, upplýsingafulltrúi Garðabæjar, Sólveig Magnúsdóttir, héraðsskjalavörður í Mosfellsbæ, Alma Sigurðar- dóttir, skjalastjóri Hafnarfjarðarkaupstaðar, María Frímannsdóttir, skjalavörður umhverfis- og tækni- sviðs Reykjavíkurborgar, Halla María Árnadóttir, for- stöðumaður skjalasafns Reykjavíkurborgar, Ása Þórð- ardóttir, skjalastjóri Seltjarnarnesskaupstaðar, Signý Harpa Hjartardóttir, skjalastjóri Árborgar og Dagný Gísladóttir, skjalastjóri Reykjanesbæjar. Skjalastjóri ísafjarðarbæjar var boðuð á fundinn en komst ekki. Á dagskrá þessa fyrsta fundar voru ýmis málefni en þar ber fyrst að nefna lög félagsins sem eru svo- hljóðandi: Lög fyrir samtök skjalastjóra/skjalafulltrúa sem starfa hjá sveitarfélögum og fyrirtækjum þeirra. 1. grein Félagið heitir Lykill og er samtök skjalastjóra/- skjalafulltrúa og þeirra sem hafa umsjón með skjala- vistun sveitarfélaga og/eða fyrirtækja þeirra. Heimili þess og varnarþing er hjá formanni hverju sinni. 2. grein Félagar geta orðið allir þeir sem gegna starfi skjalastjóra/skjalafulltrúa fyrir sveitarfélög og/eða fyrirtæki þeirra. 3. grein Tilgangur félagsins er að auka kynni og stuðla að samstarfi félagsmanna, styrkja og efla áhrif þeirra stofnanna er félagar vinna fyrir, vinna að framþróun og umbótum og standa vörð um hagsmuni. 4. grein Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að halda fiÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003 29

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.