Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Blaðsíða 20

Bókasafnið - 01.01.2003, Blaðsíða 20
1. áfangi - Afmörkun verkefnisins Uppgötvanir Útskýringar Áætlanir -> Upplýsingaöflun -> Markmiðssetning -> Verkefnastjórnun -> Markhópagreining -> Verkefnayfirlit -> Verkefnaáætlun -> Viðskiptaumhverfi -> Hlutverkaskipan -> Aðrar aðferðir -> Notendaprófanir -> Upphafsfundur statt í leið sinni að vefvæðingu? Ætlar það alfarið að færa starfsemi sína á vefmn eða aðeins að hluta til? Mikilvægt er að skoða heildarmyndina áður en ráðist er í framkvæmdir. Verkferli og vinnubrögð starfsmanna, tæknilausnir, vefviðmót og framtíðar- áform þarf að skoða sem eina heild. Þá fyrst er hægt að ákveða hvaða skref á að taka í átt að rafrænum viðskiptum eða gagnvirkri vefsíðu. í þessari grein er gengið út frá því að fyrirtæki ráði utanaðakomandi aðila eða verktaka til að aðstoða sig við verkið. Fyrir- tækið sem er að endurskoða vefinn sinn er oft kallað verkkaupi. Fyrsta skrefið í grunnferlinu er að skilgreina verk- efnið. Þessum áfanga er skipt niður í þrjá kafla; upp- götvanir, útskýringar og áætlanir. Eftir að upplýs- ingaöflun hefur átt sér stað eigum við að geta m.a. skilgreint markmið, markhópa og viðskiptaumhverfi fyrirtækisins. Skilgreiningar og áætlanir fjalla síðan um skjölun á því því efni sem kom fram við upplýs- ingaöflun. Uppgötvanir Áður en markmiðssetningar og framkvæmdaáætlan- ir eru gerðar varðandi vefsvæði eða vefvæðingu, verða fyrirtæki að fara í gegnum „naflaskoðun". Það þarf að afla upplýsinga, greina markhópa og skoða viðskiptaumhverfi. Öll fýrirtæki hafa sína sérstöðu og því er ekki hægt að setja fram aðferðafræði sem hentar öllum. Það er samt óþarfi að finna sífellt upp hjólið og flest fyrirtæki geta nýtt sér grunnferlið við vefsíðuhönnun. Hér á eftir verða nefndar nokkrar aðrar aðferðir sem reynst hafa vel við greiningar- vinnu fyrir hugbúnaðar- og vefsíðugerð. -> Upplýsingaöflun Markmiðið með upplýsingaöflun er að afmarka um- fang verkefnisins og finna upplýsingar sem nýtast. Þessi hluti getur tekið allt frá einni viku upp í mánuð eða lengur eftir aðstæðum. Hvað sem líður stærð og umfangi verkefnisins þá byrjar það alltaf með könnun sem send er til lykil- starfsmanna fýrirtækisins. Spurningar varðandi nú- verandi vefsíðu, ástæðu endurhönnunar, tæknimál, markaðsmál og margt fleira. Með því að spyrja réttu spurninganna færðu starfsmenn og stjórnendur til að skoða vefmálin í nýju ljósi og samræma þau mark- miðum fyrirtækisins. Eftir greiningu ættum við því að vera búin að fá yfirsýn yfir nokkur atriði: -> Markmið og undirmarkmið Markmiðin geta t.d. verið að auka sölu, minnka álag á þjónustuborð eða gera notendavænni vefsíðu. • Notendur Hverjir eru notendur vefsins? Á hvaða aldri eru þeir og hverjar eru vefvenjur þeirra? • Vefútgáfa Hvert er markmiðið með þessari útgáfu af vefn- um? Hver er munurinn á þessari útgáfu og þeirri fyrri? • Væntingar Hverjar eru væntingar og viðhorf starfsmanna til vefsins? Vilja þeir fágaðan og margbrotinn vef eða á hann að vera „ýkt cool“? • Umfang Hver eru mörk verkefnisins eins og tækniþarfir, tímaáætlun og kostnaður? • Viðhald Hvernig er framtíðarsýn fyrirtækisins varðandi vefinn? Hverjir bera ábyrgð á uppfærslum og viðhaldi? Þessum spurningum er best svarað með því að senda út stutta könnun sem tekur á þessum málum. • Vinnuhópar Hverjir eiga að koma að verkefninu? Hvaða hóp- ar þurfa að vera tiltækir? Hvaða tengiliðir eru nauðsynlegir? í þessum áfanga er gott að nota könnun á tæknistigi fyrirtæksins. Könnunin svarar spurningum um gagna- grunna og aðra bakvinnslu fyrirtækisins. Niðurstöð- ur úr henni auðvelda alla ákvarðanatöku varðandi það hvort æskilegt sé að setja af stað sérstakt ferli sem endurskoðar bakvinnslukerfi fyrirtækisins. Einnig er möguleiki að endurskoða þurfi vinnulag og verkferla í fyrirtækinu ef mikil gagnvirkni er á vefsíðunni. 18 BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.