Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Blaðsíða 74

Bókasafnið - 01.01.2003, Blaðsíða 74
Skólasöfn fyrir alla í námi og kennslu Stefnuyflrlýsing UNESCO/IFLA um skólasöfn Skólasöfn miðla upplýsingum og hugmyndum sem eru undirstaða þess að ná góðum árangri í nú- tíma þjóðfélagi sem í auknum mæli byggist á upp- lýsingum og þekkingu. Á sfeólasö/num tileinka nemendur sér námsleikni sem þeir búa að œuilangt og auðga ímyndunarafl sitt sem auðveldar þeim að lifa sem ábyrgir borgarar. Hlutverk skólasafna Skólasöfn bjóða upp á þjónustu við nám, bækur og heimildir sem gera öllum í skólasamfélaginu kleift að temja sér gagnrýna hugsun og vera virkir notendur upplýsinga á hvaða formi og á hvaða miðli sem er, ennfremur mynda skólasöfn tengsl við bókasafns- og upplýsingasamfélagið í heild sinni, í samræmi við grundvallaratriði í Yfirlýsingu Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) um almenningsbókasöfn. Starfsfólk bókasafna stuðlar að notkun bóka og annars upplýsingaefnis, frá skáldritum til fræðibóka, frá prentuðum gögnum til stafræns efnis, bæði á eigin safni og á öðrum söfnum. Safnkostur skóla- safna er mikilvæg viðbót við kennslubækur, kennslu- efni og kennsluaðferðir. Það hefur verið sýnt fram á að þegar bókasafns- og upplýsingafræðingar og kennarar vinna saman, ná nemendur betri tökum á læsi, lestri, námi, verkefn- um sem og upplýsinga- og samskiptatækni. Allir í skólasamfélaginu verða að hafa jafnan að- gang að þjónustu skólasafna, án tillits til aldurs, kyn- þáttar, kynferðis, trúar, þjóðernis, tungumáls, starfs eða þjóðfélagsstöðu. Sértæk þjónusta og safngögn verða aö vera fyrir hendi fyrir þá sem eru ófærir um að notfæra sér venjubundna þjónustu og hefðbundin gögn safna. Aðgengi að þjónustu og safngögnum ætti að byggjast á Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og ætti ekki að vera undirorpið neins konar hug- myndafræðilegri, stjórnmálalegri eða trúarlegri rit- skoðun eða viðskiptaþvingunum. Fjármögnun, lagasetning og samvinna Skólasöfn eru frumskilyrði fyrir sérhverja langtíma stefnumörkun um læsi, menntun, aðgengi að upplýs- ingum sem og efnahagslega, félagslega og menning- arlega þróun. Þar sem skólasöfn eru í verkahring sveitarfélaga, svæðisstjórna og ríkis verður að finna þeim stað í sértækum lögum og reglugerðum. Þau verða að hafa nægilegt og stöðugt fjármagn fyrir þjálfað starfsfólk, safnkost, tækni og aðstöðu. Að- gangur að skólasöfum á að vera ókeypis. Skólasöfn ættu að vera hluti afbókasafns- ogupp- lýsingakerfi sveitarfélags, svæðis og þjóðar. Þar sem skólasöfn deila aðstöðu og/eða safnefni með öðrum safnategundum, svo sem almennings- bókasafni, verður að viðurkenna og taka tillit til sér- tækra markmiða skólasafnsins. Markmið skólasafna Skólasöfn eru óaðskiljanlegur hluti menntunarferl- isins. Eftirfarandi atriði eru grundvallaratriði í þróun læsis, upplýsingalæsis, kennslu, náms og menningar og eru kjarninn í þjónustu skólasafna: • Að styðja við og bæta fræðslumarkmið eins og þau eru sett fram í stefnumörkun og námskrá skólans. • Að þroska og halda við hjá börnum og ungling- um ánægju af lestri og námi og notkun annarra bókasafna út í gegnum lífið. • Að bjóða upp á tækifæri og reynslu við að skapa og nota upplýsingar til aukinnar þekkingar, til skilnings, hugmyndasköpunar og ánægju. • Að styðja alla nemendur til námsleikni og við að þjálfa með sér færni við að meta og nota upplýs- ingar, án tillits til forms, stærðar og gerðar eða miðils, að meðtöldum skilningi á samskiptaleið- um innan samfélagsins. • Að veita aðgang að heimildum í sveitarfélaginu, landinu og í alþjóðasamfélaginu, ennfremur tækifæri til að kynnast margvíslegum hugmyn- dum, reynslu og skoðunum. • Að skipuleggja starfsemi sem stuðlar að menn- ingarlegri og félagslegri meðvitund og skilningi. • Að vinna með nemendum, kennurum, stjórn- endum og foreldrum að því að ná fram mark- miðum skólans. • Að kunngera þá heildarhugmynd að vitsmuna- legt frelsi og óheftur aðgangur að upplýsingum séu frumskilyrði fyrir virkum og ábyrgum ríkis- borgararétti og þátttöku í lýðræðisríki. 72 BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.