Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Page 35

Bókasafnið - 01.01.2003, Page 35
Ásdís H. Hafstað og Stefanía Arnórsdóttir Upplýsingalæsi og kennarahlutverk bókasafnsfræðingsins Inngangur í þessari grein munum við greina frá nokkrum helstu atriðum sem fjallað var um í Norræna sumar- skólanum á námskeiðinu „Informationskompetence og bibliotekarens pædagogiske rolle“ eða „Upplýs- ingalæsi og kennarahlutverk bókasafnsfræðingsins" sem haldið var í Danmarks Biblioteksskole í Kaup- mannahöfn í júní 2002. Inn á milli munu slæðast hugmyndir okkar og vangaveltur sem gerjast hafa í þessu sambandi í millitíðinni. í Freqnum, 3. tbl. 2002, sögðum við frá námskeiðinu í stuttu máli og einnig höfum við kynnt nokkra þætti þess á fundum með Vinnuhópi um notendafræðslu í háskólabókasöfnum og í Samstarfshópi bókasafnsfræðinga í framhalds- skólum. Upplýsingalæsi ALA skilgreinir upplýsingalæsi þannig: „Upplýsingalœs einstaklingur getur dœmt huenœr upplýsinga erþörfog erfœr um aðfinna, meta og nota nauðsynlegar upplýsingar á árangursríkan hátt.“ Á námskeiðinu var fjallað um upplýsingalæsi og þjálfun í því í nokkrum háskólum á Norðurlöndum. Aðalfyrirlesari fyrsta daginn var Claus Poulsen og sagði hann frá „Godin projectet" þar sem hann var verkefnisstjóri. Þetta var tveggja ára verkefni við háskólann í Hróarskeldu sem hófst í nóvember 1999 og var hluti af tilrauna- og þróunarverkefni í PBL (Problem-Based Learning) í Hróarskelduháskóla sem hófst árið 1995. Á dönsku heitir Godin projectet fullu nafni: „Problembaseret undervisning i auanceret informa- tions- og literaturspgning og anvendelse af virtuelle fagbibiioteker." Verkefnið var kennsla í upplýsingaleit fyrir fyrsta og annars árs nemendur í tveggja ára undirstöðunámi í félags-, hug- og náttúruvísindum. Nýjungin í þessu verkefni var aðferðin, PBL eða lausnaleitarnám eins og þetta hugtak hefur verið þýtt á íslensku. Markmiðið með því var að kennslan yrði beinskeyttari, tengdist betur námi nemenda - og yrði skemmtilegri fyrir kennara. Lokaskýrsla um verkefnið „Problembaseret under- visning i informationsspgning: Teori, erfaringer, metoder og undervisningsmateriale" var gefin út vorið 2002. Stuðst er að nokkru leyti við skýrsluna í þessari grein. (Skýrslan er til útláns á Landsbókasafni íslands - Há- skólabókasafni.) Markmiðið með Godin-verkefninu var að auka áhuga nemenda og þar með þátttöku í upplýsinga- leitarnámskeiðum, en hún hafði verið fremur dræm og brottfallið mikið. Mismunandi leiðir voru farnar í deildunum þremur, en aðeins er fjallað um náttúru- fræðideildina, þar sem ekki fékkst fé til úrvinnslu á gögnum úr hinum. í náttúrufræði kenndu bókasafns- fræðingar og fagbókaverðir, menntaðir í náttúruvís- indum og var PBL-aðferðin notuð. Nemendur fengu verkefni til að leysa, en enga sérstaka kennslu í með- ferð leitarverkfæra, en á vef safnsins var búið að auðvelda aðgang að gögnum með faggáttum og þar var líka hægt að læra leitaraðferðir. Nemendum var skylt að gera grein fyrir leitarferlinu í tengslum við verkefnin. Reynslan af fyrstu önninni var í stuttu máli: • Nemendur skildu betur mikilvægi námskeiðsins, vegna aukinnar fagmennsku. • Virðing safnkennslunnar jókst. • Kynning á faglega hlutanum tók of langan tíma og var of erfið fyrir kennara án menntunar í náttúruvísindum. • Nemendum fannst þeir ekki taka nógu miklum framförum. • Brottfall minnkaði mikið. • Vegna skorts á undirbúningi nemenda í tengsl- um við fagleg verkefni var vandasamt að leið- beina þeim. Aðalvandamálið var að kennarar sem voru bóka- safnsfræðingar gáfust upp á kennslunni, vegna fag- legra erfiðleika þegar unnið var með raunveruleg verkefni nemenda. Árið 2000 var byggt á reynslu næstliðins árs og breytt um aðferð og stefnt að því að stúdentar lærðu almennt nothæfa aðferð sem hægt væri að nýta í heimildaleit við lausn ákveðins verkefnis. Árangur þessa árs var: • Mæting var mjög léleg. • Aðeins 2 af 25 hópum notuðu sér aðstoð við heimildaleit við fagverkefni. BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003 33

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.