Bókasafnið - 01.01.2003, Blaðsíða 73
unarlöndum, til þess að ná þannig fram um heim
allan þeim hagsbótum sem upplýsingar fyrir alla á
Netinu hafa upp á að bjóða.
IFLA hvetur ríkisstjórnir til að þróa grunnupplýs-
ingakerfi á landsvísu sem veitt geti öllum þegnum
þjóðarinnar aðgang að Netinu.
IFLA hvetur öll stjórnvöld til að styðja óhindrað
flæði upplýsinga, sem aðgengilegar eru á Netinu, á
bókasöfnum og upplýsingamiðstöðvum og að standa
gegn sérhverri tilraun til að ritskoða og hindra að-
gengi.
IFLA mælir eindregið með því við bókasafnasam-
félagið og þá sem taka ákvarðanir á landsvísu svo og
í sveitarfélögum að þróa aðferðir, reglur og áætlanir
sem útfæra þau grundvallaratriði sem koma fram í
ofangreindri stefnuyfirlýsingu.
Stefnuyfirlýsingin var útbúin af IFLA/FAIFE, samþykkt
af framkvæmdastjórn IFLA í Haag í Hollandi þann 27.
mars 2002 og staðfest af IFLA þann 1. maí 2002. Sam-
þykkt samhljóða án mótatkvæða eða hjásetu á
fulltrúaráðsfundi IFLA á 68. ársþingi samtakanna í
Glasgow í Skotlandi þann 23. ágúst 2002.
Þórdís T. Þórarinsdóttir þýddi ©2002
Á BÓKASAFNINU
J.K. Rowling
Harry Potter og leyniklefinn
(Bjartur 2000)
Þegar hann yfirgaf Stóra salinn ásamt Ron og Hermione til að ná í Quidditchdótið bættist enn eitt áhyggjuefnið
á mæðulista Harrys sem lengdist jafnt og þétt. Hann hafði aðeins stigið fæti á neðsta þrepið í marmaratröpp-
unum þegar hann heyrði röddina_
„Drepa í þetta skiptið... láttu mig rífa... slíta..."
Hann hrópaði upp yfir sig og Ron og Hermione stukku frá honum af einskærri skelfingu.
„Röddin!" sagði Harry og leit um öxl. „Ég heyrði hana aftur... heyrðuð þið ekkert?"
Ron hristi hausin, stóreygður. En Hermione sló allt í einu hendi á enni sér.
„Harry - ég held að ég hafi uppgötvað dálítið! Ég verð að fara á bókasafnið!"
Og svo stökk hún af stað upp tröppurnar.
„Hvað ætli hún hafi uppgötvað?“ sagði Harry ringlaður og leit í allar áttir til að reyna að átta sig á því hvaðan
röddin hefði komið.
„Allavega meira en ég,“ sagði Ron og hristi hausinn.
„En af hverju þarf hún að fara á bókasafnið?"
„Þannig er Hermione," sagði Ron og yppti öxlum. „Þegar hún er í vafa fer hún og flettir upp í einhverri bók.“
(s. 209-210)
BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003
71