Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Blaðsíða 37

Bókasafnið - 01.01.2003, Blaðsíða 37
• Fjárveiting til að undirbúnings og þróunar? • Tveir kennarar saman, eftirfylgni og miðlun kennslufræðilegrar færni og reynslu? • Skipuleg uppbygging kennslumenningar í allri stofnuninni? Niðurstöður af Godin-verkefninu eru svipaðar og annars staðar í heiminum. Sú spurning kann að vakna hvort ekki sé best að starfsfólk bókasafna leiti með hverjum nemanda og taki hann svo á námskeið í notkun útvaldra leitar- verkfæra. Ef ekki kæmi til skortur á fjármagni væri þetta líklega besta lausnin. Handleiðsluvakt í stað hópkennslu myndi þá fara að deila nemendum í hópa, þá sem hefðu efni á þjón- ustu sem þessari og þá sem ekki hefðu það. Reynslan af almennri kennslu í upplýsingaleit snemma í háskólanámi bendir til hærri einkunna og minna brottfalls hjá þeim er taka þátt í henni, en samt nær aðeins helmingur þátttakenda grundvall- arkunnáttu í faginu. Pessa mótsögn hefur ekki verið hægt að skýra - ekki heldur í tengslum við baslið við að gera nemendur upplýsingalæsa. Samkvæmt mati sem fram fór eftir námskeiðin 1999/2000 kom ekki fram marktækur munur á frammistöðu náttúrufræðinema sem fengu PBL- kennslu og félags- og hugvísindanema sem fengu hefðbundna kennslu með fyrirlestrum og æfingum. Allir fengu eins og hálfs tíma kynningu í upphafi náms og síðan tíu tíma námskeið í upplýsingafærni. Eftir eins og hálfs tíma kennslu gátu 50% nem- enda framkvæmt einfalda efnisleit. Hálfu ári seinna, rétt fyrir 10 tíma námskeiðið, gátu aðeins 30% gert sams konar leit og eftir 10 tím- ana voru 50% fær um það. Þetta er allt í samræmi við alþjóðlegar rannsóknir. Þá kom í Ijós að allir kennarar gátu kennt nemend- um að finna bók í skrá eftir titli og höfundi á einum og hálfum tíma, en bara 2 af 10 kenndu þeim efnisleit. Besti kennarinn kenndi þrisvar sinnum fleiri nemendum efnisleit en sá lakasti. Túlkun þessara niðurstaðna leiðir í ljós að kennsla í upplýsingaleit krefst breytinga á skipulagn- ingu bókasafnsins, þannig að það verði kennslustofn- un, eins og hefur t.d. gerst á bókasafni Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Það þarf miklu að bæta við kennslufærni bóka- safnsfræðinga - ekki aðeins með menntun í kennslu- fræði heldur í formi skipulags og fjármagnsdreifing- ar, sem hvetur starfsmenn til að skiptast á og vinna úr kennslureynslu og kennslufærni. Bókasafnsfræðingurinn sem kennari Poulsen staðhæfir að kennslufræðileg sérþekking sé hagnýt þekking: samþætting vísindalegrar þekkingar á kennslu og samsvarandi verkþekkingu. í menntun bókasafnsfræðinga hefur hingað til ekki verið gert ráð fyrir kennslu í uppeldis- og kennslufræði þrátt fyrir að gerðar séu sífellt meiri kröfur um kennslu á bókasöfnum. Til þess að koma til móts við þessar kröfur hefur verið gripið til þess ráðs að beita samvinnu og liðveislu á vinnustað eða í hópum sem vinna á sams konar bókasöfnum. Einnig er gagnlegt að safna saman kennsluefni á einn stað á Netinu, þar sem allir hafa aðgang að því og ekki þurfi að margvinna verkið. Hann mælir líka með því að fólk komi saman og ræði málin af og til. Mikilvægt er að stjórnendur sýni því skilning að undirbúningur kennslu er tímafrekur. Vel undirbúin kennsla er þró- unarvinna sem skilar sér áfram. Það er talið æskilegt að kennararnir séu tveir og styðji þannig hvor annan í nýju hlutverki. Á Karolinska Institutets Bibliotek í Stokkhólmi var ráðinn kennslufræðingur, David Herron, til að þjálfa starfsfólk í kennslu og hefur það gefið góða raun. Þar hefur verið byggður upp góður vefur með kennsluefni: http://kib.ki.se/pingpong/ index_se.html Venjulega er litið á kennslu í upplýsingaleit sem aukagrein á mjög stuttu námskeiði í upphafi náms. Hingað til hafa verið fremur lítil tengsl milli bóka- safnsins og námsins í háskólanum. Upplýsingaleit er ekki á námsskrá og óljósar kröfur um færni eru gerð- ar. Víða í skrifum um upplýsingaleit kemur fram krafa um að hún verði hluti af kennslu annarra námsgreina og metin sem hluti af einkunn. Sam- þætting þessara þátta gæti aukið gildi upplýsinga- leitar og eflt áhuga á greininni. Þetta gengur þó ekki upp nema kennarar séu fúsir til samvinnu og hafi að einhverju leyti tileinkað sér tæknina. Nokkrar rann- sóknir á notendum upplýsinga hafa sýnt að jafnvel kennara skortir kunnáttu í upplýsingaleit. Staðan á íslandi á líklega eftir að breytast mikið þegar grunnskólabörn dagsins í dag koma ofar í skólakerfið og verður spennandi að sjá hvernig þessi tölvukynslóð stendur sig í upplýsingaleit í fram- tíðinni. Vænlegt virðist að tengja kennslu í upplýsingaleit enn betur við námsgreinarnar, og að hún verði ómiss- andi þáttur þannig að innihald kennslunnar og kennslan þróist upp í að verða einstaklega freistandi tilboð, sem hvorki kennarar né nemendur geta hafnað. Mat Poulsen fannst lítið hafa verið gert af því að meta kennslu í upplýsingaleit. Algengasta matsaðferðin er að leggja fyrir nemendur spurningalista um það hvernig þeim hafi fallið kennslan og hvernig þeim líki á bókasafninu, sem er gott að vita út af fyrir sig og skilyrði fyrir því að nám fari fram. Kannanir af þessu tagi sýna þó ekki hvað nemandinn kann, né hvernig honum gengur að nýta sér kunnáttuna í náminu. BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.