Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Side 5

Bókasafnið - 01.01.2003, Side 5
samþykkti um vorið að skyldi heita Menntasmiðja Kennaraháskóla íslands. Þróun í Reglum fyrir Kennaraháskóla íslands nr. 843/2001 var stjórnsýslu Kennaraháskólans skipað á fjögur svið sem taka til helstu þátta í starfi hans: kennslusvið, rann- sóknarsvið, þjónustusvið og rekstrarsvið. Þjónustusvið- ið lýtur að málefnum Menntasmiðju Kennaraháskól- ans, þ.e. þjónustu til stuðnings námi, kennslu og rann- sóknum í skólanum. Sumarið 2002 var kerfisþjónusta skólans með fjórum stöðugildum færð af rekstrarsviði í Menntasmiðju og þangað var einnig færð uefstjórastaða skólans og gerð að fullu starfi eftir að hafa í tvö ár verið hluti af starfi fulltrúa rektors. Eftir þá skipulagsbreyt- ingu starfa 18 manns2 í Menntasmiðju og starfsemin er í tveimur deildum, safni og smiðju. Frá því í nóvember 2002 er allt undir sama þaki í Hamri, nýbyggingu Kennaraháskólans á Rauðarárholti, nema lítil safndeild á íþróttafræðasetri Kennaraháskólans að Laugarvatni.3 Rætur safns og smiðju Áðurnefndar starfseiningar áttu sér mislanga sögu og voru misstórar. Söfnin voru öll byggð upp í samræmi við hlutverk skólanna. Bókasafn Kennaraháskólans var einkum byggt upp eftir að skólinn komst á há- skólastig árið 1971 en átti þó rætur mun lengra aftur.4 Safnið átti við sameiningu yfir 60 þúsund gögn, veitti umfangsmikla og persónulega þjónustu en bjó orðið við þröng húsakynni þótt það hefði flutt í nýtt hús- næði árið 1984. Söfn Fósturskólans og Þroskaþjálfa- skólans bjuggu einnig þröngt í almennum kennslu- stofum en sinntu vel þörfum sinna skóla, voru vel skipulögð og veittu persónulega þjónustu. Safn íþróttakennaraskólans var eldra að stofni en þar var umfangsminni starfsemi. í hinum söfnunum störf- uðu bókasafnsfræðingar og söfnin voru skráð og flokkuð þótt safnkostur þeirra væri ekki skráður í Gegni fyrr en eftir sameiningu. Kennslumiðstöðin var upphaflega stofnuð af Námsgagnastofnun en var færð til Kennaraháskólans árið 1993. Hún þjónaði fyrst og fremst starfandi kenn- urum og var bæði kennslugagnasafn og miðstöð sem stóð fyrir ýmiss konar fræðslu- og leiðbeiningarstarf- semi. Vegna erfiðra húsnæðisskilyrða dróst starfsemin að ýmsu leyti saman eftir að hún flutti af Laugavegi 166 upp í Kennaraháskólahúsið við Stakkahlíð árið 1998 en kennaranemar nutu góðs af ríkulegu kennslugagna- safni og ráðgjöf reynds kennara sem þar starfaði. Safn Fósturskólans var flutt í Stakkahlíð vorið 2001 og safn Þroskaþjálfaskólans ári síðar. Alls fjölgaði gögnum í safninu um hátt í 20 þúsund við sameininguna. Upphaf smiðjunnar má rekja til ársins 1978 þegar svokallað nýsigagnaverkstæði var sett á fót í einni kennslustofu Kennaraháskólans. Verkstæðið var fyrst einkum miðstöð tækjalána en þar var einnig kennt að búa til kennslugögn. Það var síðar kallað gagnasmiðja og bjó við sveiflukennd skilyrði en varð upp úr miðjum níunda áratugnum sjálfsagður og ómissandi hluti af vinnuaðstöðu nemenda og starfs- liðs. Gagnasmiðjan var þá einsdæmi í íslenskum há- skólum en hefur orðið fyrirmynd að skipulagi starfs- eininga sem sinna þróun kennslutækni og veita ýmiss konar tæknilega aðstoð við að nýta upplýs- inga- og samskiptatækni í skólastarfi. Á síðasta ára- tug hefur hún haft sívaxandi hlutverki að gegna, ekki síst eftir að fjarkennsla um tölvunet hófst í janúar 1993. í raun fóstraði gagnasmiðjan tölvuvæðingu Kennaraháskólans fyrstu skrefin en einstakir kenn- arar og síðar íslenska menntanetið, sem var um tíma rekið af Kennaraháskólanum, áttu stóran þátt. Á allra síðustu árum, eftir að sérstök kerfisþjónusta var sett BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003 3

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.