Bókatíðindi - 01.12.2010, Blaðsíða 3
Efnisyfirlit
1
Kæru bókaunnendur
Í nýlegri bók eftir ítalska fjölfræðinginn og skáldsagna
höfundinn Umberto Eco heldur hann því fram að
bókin sé ein af lykiluppfinningum mannkyns. Hún sé
líkt og hjólið, hugmynd sem í raun verði aldrei betrum
bætt, aðeins útfærð á nýja vegu. Áður en byrjað var að
fjöldaframleiða bækur á 15. öld höfðu bækur verið til
svo öldum skipti, skrifaðar á papýrus, pappír, skinn og
leir. Bókin hefur í árþúsundir verið besta leiðin til að
geyma upplýsingar og varðveita þekkingu og miðla
henni áfram milli kynslóða. Eins og Eco bendir á er ekk
ert sem segir okkur að önnur form á miðlun texta muni
breyta þeirri grundvallarstaðreynd.
Bókatíðindi ársins 2010 eru vegvísir um brot af þessari
miklu sögu. Þau segja enn og aftur að þrátt fyrir hagl
drífu bölmóðsins sem nú dynur á okkur alla daga heldur
bókaútgáfa á Íslandi sínu striki. Það fjölgar meira að
segja aftur þýddum barnabókum og útgáfa á íslenskum
skáldskap hefur sjaldan staðið með jafn miklum blóma.
Bókatíðindi kynna með öðrum orðum til sögunnar fleiri
titla nú en voru skráðir til leiks á fyrstu árum 21. aldar og
þykir án efa ýmsum merkileg staðreynd í ljósi alls og alls.
Þetta segir okkur líka annað. Þegar bitist er um fjármuni
ríkisins á niðurskurðartímum er vinsælt sport að hamra
á að allt sem lúti að menningu og listum sé sérstakur
baggi á þjóðinni og verði að lyfta af klakknum hið snar
asta. Seint verður því þó haldið til streitu að fjárútlát hins
opinbera til bókaútgáfu séu að ríða ríkisklárnum á slig.
Þar sem Íslendingar eiga sér aðeins þá menningarstefnu
sem ákvarðast af duttlungum stjórnvalda hverju sinni,
hefur aldrei tekist að hnýta saman traustum böndum
bókaútgáfu og markmið um viðhald og viðgang móður
málsins. Framlög ríkisins til íslenskrar bókaútgáfu hafa
verið ómarkviss, tilviljanakennd og pólitísk. Opinberar
stofnanir bjóða nánast aldrei út útgáfuverkefni, eins og
þeim ætti þó að vera skylt, og helsti stuðningurinn við
útgáfu á námsefni fyrir grunnskólanemendur – Náms
gagnasjóður – hefur verið skorinn niður við trog.
Gróskan í bókaútgáfu er ekki að þakka stuðningi hins
opinbera við hina óskrifuðu menningarstefnu eða mark
mið sett fram í Íslenskri málstefnu sem Alþingi sam
þykkti 2009. Hún er að þakka íslenska bókamarkað
inum sem drifinn er áfram af ástríðu og áhuga íslenskra
lesenda. Bókatíðindi 2010 eru eins og Bókatíðindi
Félags íslenskra bókaútgefenda fyrr og síðar tileinkuð
íslenskum lesendum. Fjórfalt húrra fyrir þeim.
Kristján B. Jónasson, formaður
Félags íslenskra bókaútgefenda
BÓK ATÍÐ INDI 2010
Útgefandi: Félag íslenskra bóka út gef enda
Bar óns stíg 5
101 Reykja vík
Sími: 511 8020
Netf.: baek ur@simnet.is
Vef ur: www.bokaut gafa.is
Hönnunkápu: Ámundi Sigurðsson
Ábm.: Benedikt Kristjánsson
Upplag: 125.000
Umbrot,prentun
ogbókband: Oddi, umhverfisvottuð prentsmiðja
Dreifing: Íslandspóstur hf.
ISSN 10286748
Leið bein andi verð
„Leiðb.verð“ í Bókatíðindum2010 er áætl að
útsölu verð í smá sölu með virð is auka skatti.
Verð eru á ábyrgð hvers útgefanda.
Íslenskarbarna-ogunglingabækur................. 2
Þýddarbarna-ogunglingabækur.................. 30
Íslenskskáldverk.................................................. 60
Þýddskáldverk..................................................... 98
Ljóð......................................................................... 126
Fræðiogbækuralmennsefnis....................... 134
Saga,ættfræðioghéraðslýsingar.................. 182
Ævisögurogendurminningar........................ 190
Handbækur......................................................... 206
Höfundaskrá....................................................... 224
Útgefendur........................................................... 232
Bóksalar............................................................... 236
Titlaskrá............................................................... 237
Þettatáknmerkirhljóðbók.
Tímalengderuppgefinímínútum.
141 776
UMHVERFISMERKI
PRENTGRIPUR