Bókatíðindi - 01.12.2010, Page 136
134
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 0
Fræði og bækur almenns efnis
1001 gamansaga
Helgi Seljan
Helgi Seljan fyrrverandi al-
þingismaður er hnyttinn
maður og húmoristi. Hann
hefur um árabil komið fram
á fjölda skemmtana og farið
með gamanmál. Hér er þús-
und og ein saga úr safni hans:
Af honum sjálfum, barna-
börnum hans og miklu fleiri
börnum – og ótal mörgu
öðru góðu fólki. Bók sem létt-
ir lund! Má lesa í skömmtum
daglega en einnig alla í heild
– með bros á vör.
160 bls.
Bókaútgáfan Æskan
ISBN 978-9979-767-88-6
Leiðb.verð: 3.480 kr.
„að skilja undraljós“
Greinar um Þórberg Þórðar-
son, verk hans og hugðarefni
Ritstj.: Bergljót Kristjánsdóttir
og Hjalti Snær Ægisson
Greinarnar eiga flestar rætur
í fyrirlestrum frá árinu 2008
þegar þess var minnst, bæði
í Háskóla Íslands og á Þór-
bergssetri, að 120 ár voru
liðin frá fæðingu Þórbergs,
en hann er í hópi fremstu rit-
höfunda Íslendinga. Í safninu
gefst lesendum meðal ann-
ars kostur á að lesa um ætt-
ir hans og frændgarð; skipti
hans við útgerðarmann og
prest; handrit og skáldverk
svo ekki sé minnst á esper-
antóáhuga og tengsl við er-
lendar framúrstefnuhreyf-
ingar.
120 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 978-9979-54-879-9
Leiðb.verð: 3.900 kr. Kilja
Af ást til heimsins
Hannah Arendt um
heimspeki, stjórnmál,
alræði og illsku
Ritstj.: Sigríður Þorgeirsdóttir
Hannah Arendt (1906–1975)
var einn merkasti stjórnmála-
heimspekingur 20. aldar og
hér birtist í fyrsta sinn á ís-
lensku úrval ritgerða eftir
hana. Umfjöllun hennar um
samfélagið miðaði að því
að greina vanda stjórnmála,
sem hafa verið ofurseld valdi
fjármálaheimsins og skort-
ir aðhald frá borgurum sem
lifa í neyslusamfélagi og eru
sinnulausir um stjórnmál.
Henni sjálfri var umhugað
um að heimspeki væri ekki
bara ást á visku, heldur einn-
ig ást á heiminum. Greinun-
um sem hér birtast er ætl-
að að gefa innsýn í nokkur
helstu viðfangsefni hennar.
Þær fjalla um samband heim-
speki og stjórnmála, alræði,
illsku mannsins og mannrétt-
indi. Í inngangi fjallar Sigríður
Þorgeirsdóttir, prófessor, um
ævi hennar og verk og tengir
stjórnmálaheimspeki hennar
við lýðræðisumræðu samtím-
ans og kröfuna um að virða
vistfræðilegar forsendur lífs
mannkynsins á jörðinni.
220 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 978-9979-54-880-5
Leiðb.verð: 3.900 kr. Kilja
Jólabækurnar
færðu í
Ég ætla að spara í ár!Ég tla að spara í ár!
®