Bókatíðindi - 01.12.2010, Page 152
150
Fræði og bækur almenns efnis B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 0
Íslenska 3
Ragnhildur Richter, Sigríður
Stefánsdóttir og Steingrímur
Þórðarson
Íslenska þrjú er kennslubók
fyrir framhaldsskóla. Íslensk-
ar fornbókmenntir og erindi
þeirra við nútímann eru við-
fangsefni bókarinnar. Hún
hentar því til kennslu í ÍSL 303
í áfangaskólum og samsvar-
andi bekkjum í bekkjaskól-
um. Bókin er hvort tveggja
í senn, kennslubók og sýn-
isbók. Í henni eru dæmi
um flestar greinar fornbók-
mennta og bókmenntasögu-
legur fróðleikur.
282 bls.
ForLAGIð
Mál og menning
ISBN 978-9979-3-3178-0 Ób.
Íslenzkir þjóðhættir
Jónas Jónasson frá Hrafnagili
Þessi merka bók séra Jón-
asar frá Hrafnagili er með-
al hornsteinanna í íslenskri
bókmenningu. Íslenzkir þjóð
hættir eru nú gefnir út í 4. út-
gáfu eftir að bókin hefur ver-
ið ófáanleg um langt skeið.
Íslenzkir þjóðhættir mörk-
uðu þáttaskil í þjóðfræðum
hér á landi og bókin hefur
staðist tímans tönn með ein-
skærum glæsibrag, enda er
hún afar skemmtileg aflestr-
ar og stútfull af tímalausum
fróðleik um líf forfeðra okkar.
Fjölmargar og margrómað-
ar skýringarmyndir Tryggva
Magnússonar prýða bókina.
504 bls.
Bókaútgáfan Opna
ISBN 978-9935-10-032-0
Jesús frá Nazaret
Benedikt páfi XVI
Þýð.: Elín Guðmundsdóttir
Í þessari stórbrotnu bók
fjallar Benedikt páfi XVI um
manneskjuna Jesú. Hver
var Jesús frá Nasaret í raun?
Hver var kjarni tilvistar hans?
Heillandi bók, rituð af miklum
lærdómi, skarpskyggni og
innsæi. Þetta er fyrsta bókin
sem Joseph ratzinger skrifar
eftir að hann varð páfi.
350 bls.
Bókafélagið Ugla
ISBN 978-9979-651-67-3
John Dewey í hugsun
og verki
Menntun, reynsla, lýðræði
Ritstj.: Jóhanna Einarsdóttir
og Ólafur Páll Jónsson
Greinasafn á sviði heimspeki
og uppeldisfræði. Í safninu
eru níu frumsamdir kaflar
um hugmyndir Johns Dewey
og hvernig þeim hefur ver-
ið beitt á vettvangi uppeldis
og menntunar auk þýðinga á
þremur eftir hann sjálfan.
200 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 978-9979-54-884-3
Leiðb.verð: 3.900 kr. Kilja
Einstakir staðir á Íslandi
Jökulsárlón
– Árið um kring
– All year round
– Eisberge im Spiegel der
Jahreszeiten
– Le Lagon glaciaire sous
toutes ses facettes
Þorvarður Árnason
Jökulsárlón á Breiðamerkur-
sandi hefur á síðustu árum
orðið nokkurs konar tákn-
mynd Íslands í augum um-
heimsins. Aðdráttarafl stað-
arins er með ólíkindum og
umhverfi lónsins magnað.
Þorvarður Árnason tók all-
ar ljósmyndirnar í bókinni.
Myndirnar eru teknar við
ýmis veðurskilyrði yfir allt árið
og á ólíkum tímum dagsins –
og við blasir veröld sem er
lyginni líkust.
128 bls.
Bókaútgáfan Opna
ISBN 978-9935-10-039-9/
040-5/-041-2/-042-9
Joseph Ratz inger
Benedikt páfi
XVI
J E S Ú S
frá Nasaret
Í þessari stórbrotnu bók fjallar Benedikt páfi XVI um
manneskjuna Jesú. Hver var Jesús frá Nazaret í raun?
Hvernig lýsa guðspjöllin honum? Hver er kjarni tilvistar
hans? Benedikt páfi XVI dregur upp heillandi mynd af
Jesú, manneskju af holdi og blóði.
Hrífandi bók, rituð af miklum lærdómi, skarpskyggni og
frábæru innsæi.
Joseph Ratzinger hefur lengi verið í fremstu röð guð-
fræðinga, en þetta er fyrsta bókin sem hann skrifar eftir
að hann varð páfi.
B
enedikt páfi X
V
I
JE
S
Ú
S
frá N
asaret
Úrval ljóða
þjóðskáldsins