Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 4
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
G I
Dæmisögur Esóps
Val Biro
Þýð.: Steingrímur Steinþórsson
Þekktustu sögurnar úr sagnasafni Esóps, með mynd-
skreytingum Val Biro. Hér birtast klassískar sögur eins
og Drengurinn sem hrópaði Úlfur!, Ljónið og músin,
Gæsin sem verpti gulleggjum og margar fleiri sögur
sem glatt hafa börn á öllum aldri í gegnum aldirnar.
199 bls.
Skrudda
B
Einar Áskell
Einar Áskell leikur sér
Vinir Einars Áskels
Gunilla Bergström
Þýð.: Sigrún Árnadóttir
Hinn ástsæli Einar Áskell hefur kætt ótal íslensk börn
og hér er hann kominn enn á ný í skemmtilega mynd-
skreyttum bendibókum fyrir þau yngstu. Það er nóg
að gera hjá snáðanum þar sem hann dundar sér við
skemmtilega leiki og föndur, einn eða með vinum
sínum.
12 bls.
Forlagið – Mál og menning
D
Elmar
David McKee
Þýð.: Jakob F. Ásgeirsson
Litskrúðugi f íllinn Elmar hefur unnið hug og hjörtu
barna um allan heim. Hugljúf og skemmtileg barnabók
um f íl sem sker sig úr f ílahjörðinni. Einstaklega fallega
myndskreytt bók um gleði, umburðarlyndi og fjöl-
breytileika.
32 bls.
Ugla
D
Elmar fer í göngutúr
David McKee
Þýð.: Jakob F. Ásgeirsson
Elmar sér og heyrir margt ótrúlegt í göngutúrnum
sínum, en hin dýrin eru of önnum kafin til að stoppa og
njóta þess með honum. Hvað skyldum við uppgötva í
göngutúrnum hans Elmars?
Ný bók í hinum vinsæla bókaflokki um Elmar, f ílinn
fjölskrúðuga.
32 bls.
Ugla
D
En við erum vinir
Hafsteinn Hafsteinsson
Hundurinn og kötturinn eru bestu vinir sem hafa ratað
í ótal ævintýri saman og alla leið út í geim. Loks snúa
þeir aftur til Jarðarinnar en lenda á stórfurðulegum stað
þar sem skrítnar risaskepnur halda því fram að hundar
og kettir séu óvinir. Þessi fallega saga um vináttuna
er sjálfstætt framhald verðlaunabókarinnar Enginn sá
hundinn. Bjarki Karlsson stílfærði í bundið mál.
32 bls.
Forlagið – Mál og menning
D
Bláhvalur
Jenni Desmond
Þýð.: María S. Gunnarsdóttir
Krakki nær sér í bók og fer að lesa um steypireyði, sem
er langstærsta dýr jarðar. Hún er grá, en í sjónum virðist
hún bláleit og er þess vegna líka kölluð bláhvalur.
Textinn er sambland af fróðleik og skemmtilega hug-
vitsömu sprelli. Afar fallegt myndmál Jenni Desmond
höfðar til allra.
Hentar 3-10 ára krökkum.
48 bls.
litli Sæhesturinn
B
Bókin um hljóðin
Soledad Bravi
Þýð.: Guðrún Vilmundardóttir
Fallega myndskreytt harðspjaldabók fyrir yngstu
lesendurna. Frönsk klassík sem kemur nú í fyrsta sinn
út á Íslandi. Hrikalega gaman að lesa saman.
120 bls.
Benedikt bókaútgáfa
D
Byrjum snemma að leika og læra
Þýð.: Bjarki Karlsson
Í þessari bók fáum við innsýn í dæmigerðan skóladag
hjá fimm ungum vinum sem eru að hefja skólagöngu.
Tilvalin lesning með foreldrum fyrir drengi og stúlkur
sem vilja vita við hverju er að búast þegar þau byrja sjálf
í skóla.
26 bls.
Unga ástin mín
D
Dala-dala
Satomi Ichikawa
Þýð.: Guðrún C. Emilsdóttir
Dala-dala fjallar um ungan strák, Juma, sem ferðast
með pabba sínum í lítilli dala-dala rútu á eyjunni sinni,
Zanzibar í Austur-Afríku, og uppgötvar hafið og að það
séu fleiri lönd lengra í burtu …
Einstaklega innihaldsrík bók, með fallegum,
nákvæmum teikningum, sem vekja forvitni og langanir.
Hentar 3-8 ára krökkum.
36 bls.
litli Sæhesturinn
D F
Drekinn innra með mér
Laila M. Arnþórsdóttir
Myndskr.: Svafa Björg Einarsdóttir
Lítil súlka kemst að því einn daginn að innra með henni
býr dreki sem er besta skinn Hann kennir henni að
þekkja tilfinningar sínar og hvernig hún getur brugðist
við þeim.
Samnefnd sýning var sett upp í Eldborgarsal Hörpu
við miklar vinsældir barna á aldrinum 4-7 ára.
28 bls.
Veröld
4
Barnabækur MYNDSKREY T TAR