Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 7
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Lárubækur
Afmæli hjá Láru
Lára fer til læknis
Birgitta Haukdal
Myndir: Anahit Aleqsanian
Láru-bækurnar eru sjálfstæðar sögur Birgittu Haukdal
um töfrana í hversdegi Láru og bangsans Ljónsa. Lára
undirbýr afmælisveislu fyrir Ljónsa af miklu kappi og
það gengur á ýmsu en á leið heim af fótboltaæfingu
dettur hún af hjólinu sínu og getur ekki hreyft fótinn.
Hún þarf að fara til læknis og kvíðir því hvað hann ætlar
að gera við fótinn. Í bókunum eru litríkar og fallegar
myndir sem krakkar hrífast af.
41 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
D
Leika?
Linda Ólafsdóttir
Þessi fallega bók fangar töfra vináttunnar á einstakan
hátt þannig að smæstu bókaormar hrífast með og vilja
leika. Linda Ólafsdóttir hefur getið sér gott orð fyrir
myndir sínar og sögur innan og utan landsteinanna og
hefur tvívegis hlotið Barnabókaverðlaun Reykjavíkur.
32 bls.
Forlagið – Mál og menning
D
Leitin að Jólakettinum
Ólíver Þorsteinsson
Myndir: Sumarliði E. Daðason
Eftir sögustund hjá ömmu ákveður Sara að halda af
stað upp á Esju til þess að fanga jólaköttinn. Hún leggur
af stað með sínum bestu vinum, Ara og Rósalind. Þau
lenda í alls kyns ævintýrum með furðuverum og skrýt-
inni konu, en enda loks á slóð jólakattarins.
48 bls.
Tindur
D
Inga einhyrningur
Aaron Blabey
Þýð.: Bragi Valdimar Skúlason
Ingu dreymir um að verða einhyrningur.
Draumar geta svo sannarlega ræst en er endilega
betra að vera einhver annar en maður er?
Fallega myndskreytt bók í dásamlegri þýðingu Braga
Valdimars.
32 bls.
Töfraland – Bókabeitan
D
Jólalögin okkar
Myndskr.: Úlfur Logason
Tónlist: Jón Ólafsson
Tónbækur Jóns Ólafssonar píanóleikara hafa svo
sannarlega slegið rækilega í gegn hjá börnunum. Nú
færir Jón okkur kærleiksanda jólanna í nýrri bók með
20 sígildum og skemmtilegum jólalögum; Í skóginum
stóð kofi einn, Jólasveinar ganga um gólf, Jólin alls
staðar og fleiri perlum. Einstakar myndskreytingar Úlfs
Logasonar ásamt textum laganna prýða bækurnar.
64 bls.
Sögur útgáfa
B
Jólanóttin
Töfrandi jólasaga
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Á jólanótt ríkir friður og ró. Varla heyrist nokkurt hljóð,
ekki einu sinni músatíst! Þessi sígilda og töfrandi saga
með skemmtilegum og líflegum myndum er kjörin til
að búa börn og foreldra undir komu jólanna.
20 bls.
Setberg bókaútgáfa
D
Kíkjum heim til dýranna
Anna Milbourne
Skoðum hvar og hvernig ýmiss konar dýr búa – í
holum, húsum, trjám og líka í sjónum.
Einföld harðspjalda flipabók sem er bæði skemmtileg
og fræðandi fyrir forvitna krakka 2 ára og eldri.
12 bls.
Rósakot
D
Kormákur
Einn, tveir og Kormákur
Kormákur krummafótur
Jóna Valborg Árnadóttir
Myndir: Elsa Nielsen
Kormákur er duglegur strákur sem vill fara sínar eigin
leiðir þótt það feli í sér að vera í krummafót eða reyna
að telja upp í endalaust.
Tvær fallegar bækur um Kormák eru komnar út.
28 bls.
Salka / Útgáfuhúsið Verðandi
7
Barnabækur MYNDSKREY T TAR