Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 8
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Mömmugull
Katrín Ósk Jóhannsdóttir
Mömmugull er hjartnæm og persónuleg bók frá höf-
undinum Katrínu Ósk Jóhannsdóttur. Hún hefur áður
skrifað bækurnar um Karólínu kónguló.
„Fjársjóðurinn hennar mömmu er dýrmætari en allt
gull og gersemar veraldar.“
30 bls.
Óðinsauga útgáfa
D
Nammigrísinn
Huginn Þór Grétarsson
Glæný og betrumbætt útgáfa af vinsæla ævintýrinu um
hann Nonna nammigrís! Nonni lendir í ævintýri þar
sem galdrakarl, tannpínupúki og nammitré koma við
sögu. Hann fær illt í magann og tannpínu af sælgætisáti
en fyrir vikið lærir hann að borða hollan og góðan mat.
30 bls.
Óðinsauga útgáfa
D
Næturdýrin
Bergrún Íris Sævarsdóttir
Tónlist: Ragnheiður Gröndal
Systkinin Lúna og Nói vita fátt skemmtilegra en að
leika sér saman – líka á nóttunni! Í þessari gullfallegu
barnabók sameinast kraftar þeirra Ragnheiðar Gröndal
og Bergrúnar Írisar. Þær búa yfir einstakri næmni sem
endurspeglast í töfrandi tónum, heillandi teikningum
og ljúfri sögu. Geisladiskur með öllum lögunum fylgir.
48 bls.
Töfraland – Bókabeitan
D
Hvolpasveitin
Píla fer á flug
Þýð.: Hildigunnur Þráinsdóttir
Flughetjan hennar Pílu er á leið til Ævintýraflóa að
halda flugsýningu. Flughetjan lendir í vandræðum með
flugvélina sína á leiðinni og þarf að leita til Róberts og
hvolpana. Píla lendir í aðalhlutverki í björgunaraðgerð-
unum og fær ríkulega launað.
32 bls.
Töfraland – Bókabeitan
G
Rosi fer í bað
Bergljót Arnalds
Myndir: Daniel Sauvageau
Eftir af hafa leikið sér úti allan daginn finnst Rosa fátt
skemmtilegra en að fara í bað, og þar heldur leikurinn
áfram. Bráðskemmtileg baðbók fyrir yngstu bóka-
ormana.
8 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
B
Prinsessur
Lesum og skreytum
Walt Disney
Sögur, límmiðar og myndarammar! Skreyttu uppá-
haldspersónurnar um leið og lesið er og skreyttu her-
bergið með myndum. Fjórar litríkar myndir, á vegginn
eða hilluna, fylgja ásamt yfir 85 margnota límmiðum til
að skreyta með!
16 bls.
Edda útgáfa
D
Litla ljúfa skrímsla
Huginn Þór Grétarsson
Litla ljúfa SKRÍMSLA fjallar um samskipti föður við
litla prakkarann á heimilinu. Þó svo að litla stúlkan sé
með ólæti og brjóti allt og bramli þykir pabba ekkert
eins dásamlegt í heiminum og að eiga svona lítið ljúft
skímsli.
44 bls.
Óðinsauga útgáfa
B
Litla mörgæsin og ævintýrið mikla
Kynnstu ást og vináttu
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Fylgstu með ævintýralegu ferðalagi litlu mörgæsarinnar
þar sem hún kemur til margra framandi staða og kynn-
ist fjölmörgum spennandi persónum. Verður ævintýrið
eins og hún vonaðist til? Ævintýraleg og falleg saga fyrir
börn frá þriggja ára aldri.
20 bls.
Setberg bókaútgáfa
G
Litum og leikum með Binnu
Litum og leikum með Jónsa
Sally Rippin
Nú getur þú litað og leikið með Binnu og Jónsa.
Í þessum bókum eru myndir til þess að lita en þú getur
einnig æft þig í teikningu, orðarugli og fleiri verkefnum.
Svo má ekki gleyma öllum límmiðunum.
16 bls.
Rósakot
G
Mandala afþreyingarbók
Töfraheimur
Töfrandi táknmyndir
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Með trépinnanum geturðu smátt og smátt skafið burt
svörtu kápuna og afhjúpað 12 frábærar mandalamyndir.
Finndu hvað það er slakandi að skafa og skapa! Allar
myndirnar er hægt að losa úr bókinni og hengja upp!
15 bls.
Setberg bókaútgáfa
8
Barnabækur MYNDSKREY T TAR