Bókatíðindi - 01.12.2018, Page 10

Bókatíðindi - 01.12.2018, Page 10
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 D F Bieber og Botnrassa í Bretlandi Haraldur Freyr Gíslason Hljómsveitin Botnrassa er á leið til Bretlands að keppa fyrir Íslands hönd um að komast á alheimstúr með sjálfum Justin Bieber. Sjálfstætt framhald metsölu- bókarinnar Bieber og Botnrassa sem sló í gegn árið 2017. 314 bls. Bjartur G Birds Hjörleifur Hjartarson Þýð.: Larissa Kyzer Teikningar: Rán Flygenring Falleg bók um íslenska fugla fyrir alla fjölskylduna, nú einnig fáanleg á ensku. Spéfuglarnir Hjörleifur Hjartar- son og Rán Flygenring draga fram helstu sérkenni fuglanna í máli og myndum án þess að taka sig of alvar- lega og niðurstaðan er einstök og óvenjuleg en um leið fræðandi bók um íslenska fugla. 184 bls. Angústúra D Bold-fjölskyldan Julian Clary Þýð.: Magnús Jökull Sigurjónsson Myndskr.: David Roberts Bold-fjölskyldan býr í venjulegu húsi í ósköp venjulegu úthverfi – en hún er fjarri því að vera venjuleg fjölskylda. Frú Bold hannar skringilega hatta úr eggjakössum og kjúklingabeinum. Herra Bold er mikill brandarakall sem hnusar í ruslatunnum nágrannanna. Bobbý nagar sundur stóla og borð og Bettý rekur annað slagið upp skringilegan hneggjandi hlátur. Já, Bold-fjölskyldan er fjarri því að vera venjuleg og hún á sér ótrúlegt leyndar- mál. Bráðfyndin bók fyrir börn á öllum aldri. 268 bls. Ugla D I Brúsi Saga um vináttu manns og refs Finnur Torfi Hjörleifsson Myndskr.: Þóra Sigurðardóttir Brúsi er með óvenju fallegan feld og brúsandi skott og lifir villtur úti í náttúrunni. Hann er fljótur að forða sér þegar veiðimaðurinn nálgast. En maðurinn heillast af honum og lætur byssuna síga. Smám saman kynnast þeir og læra að treysta hvor öðrum. Yndisleg saga um vináttu manns og refs. 67 bls. Skrudda D Dagbók Kidda klaufa 10 Leynikofinn Jeff Kinney Þýð.: Helgi Jónsson Kiddi klaufi gefur ekkert eftir í leit sinni að gleði og hamingju, þótt óheppnin elti hann á röndum. Gleði- lestur fyrir börn og unglinga á öllum aldri. Kiddi hefur aldrei verið sterkari, enda völdu 5000 börn landsins síðustu bókina um hann bestu þýddu unglingabók ársins 2017 í sérstakri athöfn í Hörpu. 224 bls. Tindur Barnabækur skáldverk D Ljósaserían Afi sterki og skrímslin í Kleifarvatni J.K. Kolsöe Myndskr.: Bergrún Íris Sævarsdóttir Ferðalag langfeðganna heldur áfram. Nú fara þeir á Bedfordinum að Kleifarvatni með viðkomu í Stranda- kirkju. Við Kleifarvatn vakna þeir upp við vondan draum. Getur verið að allar þjóðsögurnar séu sannar? Að það séu ekki bara skessur í Þrengslunum og nykur í Hlíðarvatni heldur líka skrímsli í Kleifarvatni? 64 bls. Bókabeitan E Alein úti í snjónum Holly Webb Þýð.: Ívar Gissurarson Dúna litla reynir í örvæntingu að eignast heimili en enginn virðist vilja eiga hana … Þá kemur Ella í heimsókn. Hún verður strax hrifin af Dúnu en mamma hennar er ákveðin – hún vill ekki kött. Dúna og Ella verða ákaflega sorgmæddar. En hvað verður svo um kettlinginn sem enginn vill eiga? 128 bls. Nýhöfn C Amma best Gunnar Helgason Lesari: Gunnar Helgason Nú á Stella að fermast og þess vegna ætlar amma Köben að koma til landsins – amma sem alltaf er svo hress og skemmtileg. Fram undan er líka Norðurlandamótið í spretthjólastólaakstri, fyrsti kossinn og algerlega ótíma- bær dauði! Sögurnar um Stellu og fjölskyldu hennar hafa notið gríðarlegra vinsælda, enda fanga þær hug lesenda frá fyrstu síðu. H 5:04 klst. Forlagið – Mál og menning D I Ástarsaga úr fjöllunum A Giant Love Story Ástarsaga úr fjöllunum Flumbra – Eine isländische Trollgeschichte Flumbra – En islandsk troldemor Flumbra – Une histoire d‘amour des montagnes Guðrún Helgadóttir Myndir: Brian Pilkington Sígild saga Guðrúnar Helgadóttur um tröllskessuna Flumbru og strákana hennar sjö sem heillað hefur kyn- slóðir barna um allan heim. Fyrir þessa nýju útgáfu á fimm tungumálum vann Brian Pilkington spánnýjar myndir í anda þeirra upprunalegu. 32 bls. Forlagið – Vaka-Helgafell 10

x

Bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.