Bókatíðindi - 01.12.2018, Page 11
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Ekki opna þessa bók aftur
Andy Lee
Þýð.: Huginn Þór Grétarsson
Ekki opna þessa bók! Slepptu henni! Strax! Finnurðu
þessa fýlu?! Hún er af BÓKINNI! Farðu frekar og gláptu
á sjónvarpið. Það er stórhættulegt að lesa bækur. Ég
heyrði að ef þú lest bækur geti augun dottið úr þér!
30 bls.
Óðinsauga útgáfa
C
Elsku Míó minn
Astrid Lindgren
Lesari: Hjalti Rúnar Jónsson leikari
Það sem Búi finnur í garðinum virðist við fyrstu sýn
bara vera ósköp venjuleg flaska. En Búi trúir ekki sínum
eigin augum þegar andi skýst út um stútinn á flöskunni
hans.
Elsku Míó minn er saga um baráttu góðs og ills, og er
ein af vinsælustu bókum höfundarins.
H 3:25 klst.
Hljóðbók.is
D F C
Fíasól gefst aldrei upp
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Myndir: Halldór Baldursson
Lesari: Kristín Helga Gunnarsdóttir
Nú snýr Fíasól aftur, tíu ára og kraftmeiri en nokkru
sinni fyrr. Hún stofnar björgunarsveit sem berst fyrir
réttindum barna, glímir við tuddana í bekknum og
spilar stuðbolta. Eldfjörug og ríkulega myndskreytt
bók fyrir alla fjölskylduna og sjálfstætt framhald fyrri
bóka um Fíusól sem hlotið hafa fjölda viðurkenninga og
notið mikilla vinsælda.
208 bls. / H 2:30 klst.
Forlagið – Mál og menning
D F
Draumurinn
Hjalti Halldórsson
„Atvikið sem breytti lífi mínu átti sér stað viku áður en
Íslandsmótið í 4. flokki hófst. Refsingin virtist í fyrstu
alveg hræðileg og gera endanlega út um drauminn …
en reyndist síðan vera það besta sem hefur komið fyrir
mig.
Alveg þangað til ég ákvað að hætta í fótbolta.“
126 bls.
Bókabeitan
E
Drengurinn sem vildi verða maður
Jørn Riel
Þýð.: Jakob S. Jónsson
Þegar Leifur læðist um borð í skipið hafði hann það
huga að hefna föður síns. Hann grunaði ekki að hans
biði ferð til Grænlands þar sem flest var ólíkt því sem
hann átti að venjast á Íslandi. Fróðleg bók fyrir unga
lesendur um íslenskan dreng og ævintýri hans á meðal
ínúíta við lok víkingaaldar.
112 bls.
Nýhöfn
D I
Dvergasteinn
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Húsið hennar ömmu Karólínu heitir Dvergasteinn.
Í garðinum á bakvið það er líka stór og dularfullur
steinn sem ber sama nafn. Þegar Ugla heimsækir ömmu
sína verður hún margs vísari og gamalt leyndarmál
verður til þess að hún kemst í kynni við íbúa steinsins.
Verðlaunabókin Dvergasteinn kom fyrst út árið
1991 og hefur notið mikilla vinsælda. Hún hefur verið
þýdd og gefin út á fjölda tungumála, en hér birtist hún
að nýju með upphaflegum teikningum Erlu Sigurðar-
dóttur.
130 bls.
Dimma
11
Barnabækur SK ÁLDVERK