Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 13

Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 13
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 C (lang) Elstur í bekknum Bergrún Íris Sævarsdóttir Lesari: Sigríður Láretta Jónsdóttir Það getur verið dálítið skrítið að byrja í nýjum skóla þar sem maður þekkir engan. En það er eiginlega stórfurðu- legt þegar níutíu og sex ára gamall karl sest við hliðina á manni og enginn kippir sér upp við það! Fljótlega verða bekkjarfélagarnir Eyja og Rögnvaldur ágætis vinir þrátt fyrir níutíu ára aldursmun. Þegar Eyja kemst að leyndarmáli Rögnvaldar gera þau með sér samning en tekst Eyju að standa við hann? H 57 mín. Storytel D Langelstur í leynifélaginu Bergrún Íris Sævarsdóttir Eftir skemmtilegan skólavetur eru vinirnir Eyja og Rögnvaldur komin í sumarfrí. Þegar hinn háaldraði Rögnvaldur flytur á dvalarheimili fær Eyja að fylgja honum á meðan foreldrar hennar eru í vinnu. Áður var Rögnvaldur langelstur í bekknum en nú hafa hlutverkin snúist við og Eyja er orðin langyngst á dvalarheimilinu. 120 bls. Bókabeitan D Leyndarmál Lindu 5 Sögur af EKKI-SVO-GÁFAÐRI sem-veit-allt Rachel Renée Russell Þýð.: Helgi Jónsson Það eru engin takmörk fyrir því hvað ein stelpa getur átt mörg leyndarmál. Linda sér um það. Alveg ókeypis. Fimmta bókin um Lindu og leyndarmál hennar er sú allra skemmtilegasta hingað til. 320 bls. Tindur G Litla-Mús og töfrar hugans Anna Lísa Björnsdóttir Myndskr.: Anna Lísa Björnsdóttir Litla-Mús leitar mömmu sinnar og á leið sinni nýtir hún hugarhæfileika sína öðrum dýrum til hjálpar. Þakkir dýranna færa Litlu-Mús svo nær markmiði sínu. Litla- Mús hjálpar t.d. flughræddum svani og hunangsflugu með frjókornaofnæmi. Gætu töfrar hugans hjálpað heima hjá þér? Hugljúf saga fyrir börn og foreldra. Einnig til á ensku. 84 bls. Anna Lísa Björnsdóttir D Ljóðpundari Þórarinn Eldjárn Myndir: Sigrún Eldjárn Í þessari bráðskemmtilegu barnaljóðabók má meðal annars lesa um kláran klár, vinina Urg og Surg, f íl í postulínsbúð og beinan banana. Bækur Þórarins og Sig- rúnar Eldjárn hafa notið gríðarlegra vinsælda um árabil, jafnt hjá börnum og fullorðnum, og aflað höfundum sínum fjölda verðlauna. 50 bls. Forlagið – Vaka-Helgafell E F Hrollur 6. Besti vinur minn er ósýnilegur 7. Draugaskólinn R. L. Stine Þýð.: Birgitta Elín og Marta Hlín Draugaskólinn og Besti vinur minn er ósýnilegur. Tvær glænýjar í Hrollsbókaflokknum. Léttar hroll- vekjur fyrir 8 ára og eldri. 128 bls. Bókabeitan E Hulduheimar Hafmeyjarif Skýjaeyjan Rosie Banks Þýð.: Arndís Þórarinsdóttir Skemmtilegu sögurnar af spennandi ævintýrum þeirra Evu, Sólrúnar og Jasmínar í Hulduheimum hafa öðlast miklar vinsældir meðal íslenskra barna. Hér eru tvær nýjar léttlestrarbækur um vinkonurnar hugrökku og átök þeirra við Nöðru drottningu og illþýði hennar. 120/112 bls. Forlagið – JPV útgáfa D F Jólasveinarannsóknin Benný Sif Ísleifsdóttir Myndskr.: Elín Elísabet Einarsdóttir Dagana þrettán fyrir jól sefur Baldur álíka lítið og gamlir afar. Hann er andvaka af spenningi yfir fjalla- bræðrunum þrettán og rannsókninni sem hann og vinir hans, Elías og Hjörtur, ætla að gera. Vopnaðir spjaldtölvum, reglustiku, jólaseríum og apa ætla þeir nefnilega að komast að því hvort jólasveinar séu til í alvörunni! 140 bls. Bókabeitan D Jólasyrpa 2018 Walt Disney Jólasyrpan er löngu orðin ómissandi partur af jólum margra. Fjörug lesning um íbúana í Andabæ, sem kemur öllum í hátíðarskap! 256 bls. Edda útgáfa D Ljósaserían Korkusögur Ásrún Magnúsdóttir Myndskr.: Sigríður Aðils Magnúsdóttir Korka er með sítt ljóst hár og stór blá augu. Sumir segja að hún sé algjör fyrirmyndarstúlka en foreldrar hennar vita betur. Korka er nefnilega algjör prakkarakringla sem ræður stundum ekki við fjörið innra með sér og hefur lag á því að koma sér í vandræði. Það er samt sjaldnast henni að kenna, það gerist bara alveg óvart. 64 bls. Bókabeitan 13 Barnabækur SK ÁLDVERK
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.