Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 14
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Miðnæturgengið
David Walliams
Þýð.: Guðni Kolbeinsson
Á miðnætti eru flest börn í fasta svefni, nema auð-
vitað ... Miðnæturgengið. Það er eimitt þá sem ævintýri
þeirra eru rétt að hefjast ... Sérlega hugljúf og fyndin
bók eftir David Walliams, hinn geysivinsæla barna-
bókahöfund, sem heillað hefur íslenska lesendur sína
upp úr skónum. Hér í frábærri þýðingu meistara Guðna
Kolbeinssonar.
478 bls.
Bókafélagið
D
Milli svefns og Vöku
Anna Margrét Björnsson
Myndir: Laufey Jónsdóttir
Vaka er oftast huguð og glaðvær stelpa. En þegar
rökkrið sækir að líður henni ekki vel. Á nóttunni er eins
og allt breytist og myrkrið gerir allt svo óhugnanlegt.
Ekki bætir úr skák þegar dularfull vera kemur í heim-
sókn í eina nóttina og undarlegir hlutir fara að gerast.
64 bls.
Salka / Útgáfuhúsið Verðandi
D
Múmínálfarnir
Litlu álfarnir, Halastjarnan, Pípuhattur galdrakarlsins
Tove Jansson
Þýð.: Þórdís Gísladóttir og Steinunn Briem
Allir þekkja múmínálfana sem hafa glatt ótal börn og
fullorðna áratugum saman. Hér birtast tvær af sög-
unum ástsælu saman í bók en einnig sú fyrsta, Litlu
álfarnir, sem aldrei hefur komið út á íslensku fyrr.
Ævintýrin eru ótrúleg – allt fer á flot, múmínsnáðinn
og félagar halda í háskaferð upp í Einmanafjöll og pípu-
hattur galdrakarlsins stefnir öllu í voða.
352 bls.
Forlagið – Mál og menning
D
Spæjarastofa Lalla og Maju
Múmíuráðgátan
Martin Widmark
Þýð.: Íris Baldursdóttir
Myndir: Helena Willis
Á listasafninu í Víkurbæ virðist 3000 ára gömul egypsk
múmía hafa vaknað til lífsins. Dauðskelkaður nætur-
vörður er vitni í málinu en sömu nótt hverfur einnig
dýrmætasta málverk safnsins. Lalli og Maja ákveða að
fara og kanna málið betur. Spennandi ný saga úr Ráð-
gátubókaflokknum vinsæla en spæjarar á aldrinum
6–10 ára geta lesið þær aftur og aftur og í hvaða röð
sem er.
92 bls.
Forlagið – Mál og menning
E
Nornirnar
Roald Dahl
Þýð.: Sólveig Sif Hreiðarsdóttir
Myndskr.: Quentin Blake
Sagan segir frá dreng einum sem lendir óvart á ársþingi
norna í Englandi en þeim er mjög í nöp við börn eins og
allir vita. Afleiðingarnar verða örlagaríkar. Drengurinn
og amma hans taka þá til sinna ráða. Fyndin fantasía
með fallegan boðskap úr smiðju Roalds Dahls.
240 bls.
Kver bókaútgáfa
D
Lukka og hugmyndavélin:
Hætta í háloftunum
Eva Rún Þorgeirsdóttir
Myndir: Logi Jes Kristjánsson
Lukka og Jónsi eru komin í langþráð frí og ætla að njóta
sveitakyrrðarinnar hjá hinum virta fornleifafræðingi,
prófessor Gulldal.
En skjótt skipast veður í lofti í lífi Lukku. Áður en
hún veit af hafa systkinin dregist inn í stórhættulega
atburðarrás og það reynir heldur betur á hugrekkið í
þriðju og síðustu bókinni um ævintýri Lukku.
144 bls.
Salka / Útgáfuhúsið Verðandi
G
Markmaðurinn og hafið
Maria Parr
Þýð.: Sigurður Helgason
„Hver er venjulega í marki?“ Ég varð forviða. Hvernig í
ósköpunum vissi hann það ekki? Allir í bænum vissu að
Lena er markvörður í strákaliðinu.
Maria Parr er margverðlaunaður barnabókahöfundur
og hafa margir líkt henni við Jóhönnu Spyri höfund
Heiðubókanna og Astrid Lindgren.
229 bls.
Bókaormurinn
E
Matthildur
Roald Dahl
Þýð.: Sólveig Sif Hreiðarsdóttir
Myndskr.: Quentin Blake
Matthildur er eldklár og býr að auki yfir ofurkröftum,
en foreldrum hennar þeim Myllu og Hrappi gæti varla
verið meira sama um hana. Sem betur fer hittir hún
Eddu og Unu og fleira gott fólk – það er verra með
Krýsu skólastjórann hrikalega!
Söngleikurinn Matthildur verður sýndur í vor
í Borgarleikhúsinu.
233 bls.
Kver bókaútgáfa
D C
Maxímús Músíkús fer á fjöll
Hallfríður Ólafsdóttir
Myndir: Þórarinn Már Baldursson
Lesari: Valur Freyr Einarsson
Maxímús Músíkús verður steinhissa þegar tvær ókunn-
ugar mýs spretta upp úr tösku erlends hljómsveitar-
stjóra. Viva og Moto eru spennt að sjá Ísland og saman
eiga mýsnar ævintýralega daga á fjöllum. Sögurnar um
Maxa hafa notið gríðarlegra vinsælda og heillað jafnt
börn og fullorðna um allan heim. Hljóðbókinni fylgir
tónlist flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands.
41 bls. / H 1:23 klst.
Forlagið – Mál og menning
D
Meira af Rummungi ræningja
Otfried Preußler
Þýð.: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Rummungur ræningi er aftur kominn á kreik og hefur
numið ömmu á brott. Nú eru góð ráð dýr. Kasper, Jobbi
og Fimbulfúsi yfirvarðstjóri eiga ekki margra kosta
völ, en vonandi tekst þeim að hafa hendur í hári þessa
óskammfeilna svikahrapps.
Önnur bókin af þremur um Rummung ræningja sem
hefur heillað lesendur í meira en hálfa öld og birtist hér
í fallegri afmælisútgáfu.
126 bls.
Dimma
14
Barnabækur SK ÁLDVERK