Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 17
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Þess vegna borðum við ekki dýr
Ruby Roth
Þýð.: Benjamín Sigurgeirsson og Jenný Sigurgeirsdóttir
Þetta er fyrsta barnabókin sem skoðar af einlægni
og samúð tilfinningalíf dýra og hörmulegar aðstæður
þeirra á verksmiðjubúum. Svín, kalkúnar, kýr og mörg
önnur dýr mynda hér litríkar sögupersónur sem kynna
grænmetis- og veganlífsstíl fyrir yngstu kynslóðinni.
52 bls.
Portfolio Publishing
D F
Þitt eigið tímaferðalag
Ævar Þór Benediktsson
Myndir: Evana Kisa
Sögusviðið í þessari æsispennandi bók er nútíðin, for-
tíðin og framtíðin – allt eftir því hvað þú velur. Viltu
hitta víkinga, Rómverja eða risaeðlur? Þorirðu að
athuga hvað er um að vera á Jörðinni eftir 100 ár? Hvað
með 1000? Sjálfstætt framhald af gríðarvinsælum bóka-
flokki þar sem lesandinn tekur virkan þátt í atburða-
rásinni og ræður hvað gerist.
422 bls.
Forlagið – Mál og menning
G
Þín eigin saga
Búkolla
Börn Loka
Ævar Þór Benediktsson
Myndir: Evana Kisa
Þín eigin-bókaflokkur Ævars Þórs hefur notið gríðar-
legra vinsælda á undanförnum árum. Hér spinnur hann
tvo þræði úr þeim bókum í stuttum og aðgengilegum
texta sem hentar byrjendum í lestri. Hér ræður lesand-
inn ferðinni en ef sagan endar illa má alltaf reyna aftur
– það eru meira en tíu mismunandi endar!
72/64 bls.
Forlagið – Mál og menning
D
Kepler62
Þriðja bók: Ferðalagið
Timo Parvela og Bjørn Sortland
Þýð.: Erla E. Völudóttir
Myndskr.: Pasi Pitkänen
Eftir erfiða þjálfun á leynilegri herstöð í Nevada eru
aðalpersónurnar Ari, Jonni og María send af stað í
lengsta ferðalag sem nokkur manneskja hefur tekið sér
fyrir hendur.
Ferðalagið sjálft er fullt af hættum en mögulega er
mesta hættan um borð í einu geimskipinu ...
164 bls.
Bókabeitan
D
Ljósaserían
Tinna trítlimús
Aðalsteinn Stefánsson
Myndskr.: Ingi Jensson
Tinna trítlimús er hugrakkasta músastelpan í Heið-
mörk. Hún lendir í æsilegu ævintýri með besta vini
sínum honum Kola kanínustrák þegar þau leggja af
stað í hættulegan leiðangur til að sækja lyfjagras handa
veikri ömmu Tinnu. Tinna og Koli verða að nýta allt sitt
hugrekki til að bjarga lífi sínu og komast heim til ömmu.
64 bls.
Bókabeitan
D F
Úlfur og Edda: Drottningin
Kristín Ragna Gunnarsdóttir
Lokabókin í þríleiknum um Úlf og Eddu. Systkinin
eru staðráðin í að fara aldrei aftur til goðheima. Þrátt
fyrir það lenda þau í Svartálfaheimi og þurfa að komast
heim. Þau hitta fyrir Ægi, Rán og Miðgarðsorminn og
erkióvin sinn, Loka lævísa. Fyrsta bókin var tilnefnd til
allra helstu verðlauna innanlands og utan.
208 bls.
Bókabeitan
D
Verstu börn í heimi 2
David Walliams
Þýð.: Guðni Kolbeinsson
Kalli kappgjarni, Simbi sísvangi, Pála púki, Matvandi
Matti, Gunna grimma, Olga ofurstjarna, Nei-nei-Níní
og Halli sem lærði aldrei, aldrei heima eru á meðal
verstu barna í heimi. Þau eru svakaleg. Það er alls ekki
hægt að mæla með því að nokkur hegði sér eins og þau
en fyndnar eru þessar sögur og skemmtilegar aflestrar!
Sannkallaður yndislestur.
286 bls.
Bókafélagið
E
Villinorn
Eldraun
Lene Kaaberbøl
Þýð.: Jón St. Kristjánsson
Klöru finnst hún vera venjuleg 12 ára stelpa. Kannski
dálítið feimin og með helst til miklar freknur. En þegar
óvenjulega stór, svartur köttur ræðst á hana í kjallara-
tröppunum heima, uppgötvar Klara að hún hefur sér-
stakar gáfur og eftir það hættir allt að vera venjulegt.
Eldraun er fyrsta bókin í danska bókaflokknum VILLI-
NORN um Klöru og baráttu hennar við öfl í villtri nátt-
úrunni eftir verðlaunahöfundinn Lene Kaaberbøl. Villi-
nornarbækurnar hafa komið út á 17 tungumálum.
160 bls.
Angústúra
G
Vitinn
Róbert Marvin
Svenni er nýsmitaður af unglingaveikinni og ekki enn
orðinn unglingur.
Foreldrar hans átta sig á að hann er í slæmum félags-
skap og senda hann í sveit til frænda síns. Það sem
þau vita ekki, er að þau voru að senda hann í opið gin
glæpamanna.
76 bls.
Bókaormurinn
17
Barnabækur SK ÁLDVERK