Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 19
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Settu saman allan heiminn:
Handbók landkönnuðarins
Leon Gray
Myndir: Sarah Edmonds
Hér er á ferðinni einstakur leiðarvísir að öllum heim-
inum. 46 cm hár hnöttur fylgir bókinni. Settu saman
hnöttinn á auðveldan máta og lærðu allt um plánetuna
okkar með handbók landkönnuðarins. Snúðu hnett-
inum, leitaðu að táknunum, finndu svörin við spurning-
unum og uppgötvaðu heilan heim af fróðleik!
48 bls.
Salka / Útgáfuhúsið Verðandi
D
Skrímsla- og draugaatlas heimsins
Federica Magrin
Myndir: Laura Brenlla
Hefur þig einhvern tímann dreymt um að verða
skrímsla- og draugabani? Í þessari bók er lagt af stað í
ferðalag þar sem þú hittir fyrir ófrýnilegustu skepnur,
forynjur og vofur veraldar. En hafðu ekki áhyggjur!
Leiðsögumaður þinn á þessari vegferð er enginn annar
en Van Helsing, frægasti skrímslaveiðimaður allra tíma
og í bókinni finnur þú svör við hvernig á að sigra hverja
ófreskjuna á fætur annarri.
96 bls.
Salka / Útgáfuhúsið Verðandi
G
Slímbók Sprengju-Kötu
Katrín Lilja Sigurðardóttir
Myndir: Sigurjón Ragnar Sigurjónsson
Efnafræðingurinn Sprengju-Kata kann svo sannar-
lega að gera hlutina skemmtilega og aðgengilega fyrir
krakka. Hér útskýrir hún í myndum og máli hvernig má
búa til litskrúðugt slím af ýmsu tagi, breyta og bæta og
leika sér svo með það, teygja það og toga, hnoða og láta
leka. Og svo býr hún líka til trölladeig og kristalla.
46 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
E
Spurningabókin 2018
Hvernig drepa bóaslöngur bráð sína?
Guðjón Ingi Eiríksson
Á hvoru auganu er Stjáni blái blindur? Hvernig drepa
bóaslöngur bráð sína? Hvort lokar maður hurðinni með
dyrunum eða dyrunum með hurðinni? Hvaða litur er
einkennandi fyrir hrekkjavökuna? Hvað heitir hestur
Lukku-Láka? Þetta og margt fleira til í þessari bráð-
skemmtilegu bók.
80 bls.
Bókaútgáfan Hólar
G
Ísland á HM
Rússland 2018
Gunnar Helgason
Hvað segja landsliðsmennirnir okkar um HM og hver
er saga keppninnar? Hver eru óvæntustu úrslit íslenska
landsliðsins og hvernig var leið þess á HM í Rússlandi?
Hvaða æfingar er gott að gera til að verða betri í fót-
bolta? Og hvað ætli Jón Jónsson úr Víti í Vestmanna-
eyjum sé að gera núna? Þessi fjöruga bók eftir Gunnar
Helgason geymir allt þetta og margt fleira.
56 bls.
Forlagið – Mál og menning
G
Léttlestrarbækur
Haninn sem vildi ekki verða höfðinu styttri
Örninn og spætan
Huginn Þór Grétarsson og Huginn Þór Grétarsson
Tvær nýjar léttlestrarbækur: Haninn sem vildi ekki
verða höfðinu styttri og Örninn og spætan. Léttlestrar-
bókaflokkur Óðinsauga hefur notið mikilla vinsælda.
Stuttur texti á hverri blaðsíðu auðveldar börnum lestur
bókanna. Hentar vel fyrir byrjendalæsi.
20 bls.
Óðinsauga útgáfa
B
Litlir Könnuðir
Hafið
Pöddur
Á ferð og flugi
Sveitabærinn
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Líflegar og fræðandi gluggabækur fyrir litla könnuði
sem hafa áhuga á pöddum og hafinu. Bækurnar eru
í sama bókaflokki og Sveitabærinn, Á ferð og flugi og
Líkaminn.
16 bls.
Setberg bókaútgáfa
G
Lærðu að láta þér líða vel og vera í jafnvægi
Judith M. Glasser og Kathleen Nadeau
Þýð.: Gyða Haraldsdóttir
Bókin er skrifuð fyrir krakka sem eiga erfitt með til-
finningastjórnun en glíma e.t.v. líka við áhyggjur, hvat-
vísi, vanlíðan, lítið sjálfstraust og ónóga samskiptafærni.
Bókin gefur börnum hagnýt ráð og kennir aðferðir til
að átta sig á vandanum, koma auga á styrkleika og veik-
leika í eigin fari og finna lausnir. Foreldrar fá líka leið-
beiningar um hvernig þeir og aðrir fullorðnir geta stutt
börnin í að taka á erfiðleikum sínum.
128 bls.
Skrudda
19
Barnabækur FR ÆÐI OG BÆKUR ALMENNS EFNIS
24. OG 25.